Sígaunar og kynþáttafordómar
7.5.2007 | 17:46
Sígaunar eða Roma fólki-ð eins og það er víða kallað eða Roma-Sintí fólkið eða Roma Gypsi er að finna í flestum löndum Evrópu. Uppruni þess er talinn vera á Indlandi annars er hann horfinn í huliðshjúp sögunnar. Margt af Roma fólkinu hefur aðlagast samfélögum sínum prýðilega en annað ekki. Þeir sem fjallað hafa um Roma fókið draga fram að það hugsi meira í fjölskyldutengslum en samfélagstengslum, hugsi meira um að lifa lífinu meðal sinna nánustu en að ná frama í samfélaginu sem verður þeim meira framandi en öðrum. Í gegnum aldirnar hafði Roma fólkið meira svigrúm en nú til þess að ferðast eftir sínu höfði og hirti ekki um ríkisfang. Þeir áttu samt sín svæði og sín þing. Með lokuðum ríkjum og reglugerðarverki nútímans hefur líf þeirra orðið erfiðara og þeir í auknum mæli verið neyddir til að setjast að um kyrrt og reyna að aðlagast þjóðfélaginu. Það hefur gengið misjafnlega og ekki hefur bætt úr að þeir mæta alls staðar fordómum þar sem þeir koma og þar sem þeir eru: Gott dæmi af íslenskri bloggsíðu :
Sígaunar þessir héldu sterkt í menningu sína sem einkennist einna helst af betli og þjófnaði.
Verið er að tala um hópinn sem kom hingað. Skæðari kynþáttafordóma og endurspeglast í þessari setningu er vart hægt að hugsa sér.
Víðast hvar býr Roma fólkið við fátækt. Það á erfitt með að fá vinnu og húsnæði og mjög fáir ganga menntaveginn. Verst eru kjör þeirra í Rúmeníu. Ótrúlega hátt hlutfall Roma barna þar eru í skóla fyrir seinþroska nemendur og oftast er ástæðan sú að þeir eru illa heima í máli svæðisins. Mjög fáir Roma ganga menntaveginn.
Það að vera Roma þýðir að þú færð ekki inngöngu í skóla hversu fær sem þú ert. Þú færð ekki húsnæði hversu venjulegur sem þú ert og þú færð ekki vinnu hversu duglegur sem þú ert.
Ég heimsótti Romahverfi í útjaðri Kiev um daginn og það var mikil fátækt, fólkið þar hafði haft vinnu í verksmiðju sem var lögð niður. Það flutti á staðinn vegna verksmiðjunnar fyrir áratugum síðan og byggði sín hús. Það hafði ekki hirt um lóðaleigusamninga. Nú voru stórfyrirtæki að hrekja þau af lóðum sínum og veifuðu þinglýsingum. Einhverjir mannréttindalögfræðingar voru komnir í málið. Þær sögðu mér konurnar að þeim væri alltaf sagt fyrst upp.
Þó að aðstæður þarna væru ömurlega þá var gleði og kátína ríkjandi. Allar konurnar höfðu safnaðst saman við stórt borð og spiluðu lottó eða bingó. Sælgætismolar voru í verðlaun.
Menning Sígauna er nefnilega rík og fjölbreytt. Fjölskyldu- og vinahópar halda vel saman eins og fyrr segir, dans og söngur og hljóðfæraleikur er mjög áberandi í menningu þeirra og alls kyns töfrabrögð og leikir. Litskúðugur og sérstakur fatnaður kvennanna er dæmigerður og skartklæði karla og kvenna einstök.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.