Kjósum aftur!
13.5.2007 | 09:29
Kjósendur hafa ekki svarað neinum spurningum og engin tímamót er í
sjónmáli. Það er jafntefli eða þrátefli. Álver eða ekki?
Virkjanir? Meiri velferð? Evrópa? Engin skýr svör. Ríkisstjórn
Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks yrði ríkisstjórn um ekki neitt!
Myndi hún nálgast Evrópu? Auka jöfnuð að einhverju marki? Stoppa
stóriðju? Slík stjórn myndi springa fljótlega ef Samfylkingin ætlaði
sér eitthvað innan hennar og ef ekki þá lognast út af úr leiðindum og
Samfylkingin missa þriðjung fylgis síns. Hún yrði engin tímamótastjórn,
engin Viðeyjarstjórn svo ekki sé talað um Viðreisnarstjórn. Sömu sögu er að segja um
hinn kostinn sem er í spilunum Framsókn, VG og Samfylking undir forystu
Ingibjargar: Stóriðja? Evrópa? Sömuleiðis innan þeirrar stjórnar
slíkar gjár að hún gæti aldrei orðið tímamótastjórn! Engin sátt um
hvert halda skuli með íslenskt samfélag. Það virðist ekkert fleirra í
spilunum. Núverandi ríkisstjórn yrði eins og afturganga. Úr því sem
komið er yði sennilega best að fá minnihlutastjórn
(Framsóknarflokksins) sem gæti reynt að halda öllum góðum þar til kosið
yrði aftur.

Ríkisstjórnin hélt velli með minnsta mun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:47 | Facebook
Athugasemdir
Góður punktur.
Pétur Björgvin, 14.5.2007 kl. 08:01
Stórsigur VG og D bendir til þess að þjóðin vilji alls ekki taka upp aðildarviðræður í Evrópusambandið. Þessir tveir flokkar ættu vel að geta unnið saman því það er fleira sem sameinar þá heldur en aðskilur.
Guðrún Sæmundsdóttir, 14.5.2007 kl. 16:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.