Nýnazistar eru skelfilegt fyrirbrigði
26.8.2007 | 11:35
Ég hef átt hið prýðilegasta samneyti með Morgunblaði konu minnar í morgun. Í blaðinu er svo margt áhugavert. Í man ekki eftir öðru eins niðursökkvi í blað íslenskt en i útlöndum voru þessir unaðslegu sunnudagsmorgnar og þessi stóru blöð sem yljuðu manni um hjartarætur langt fram eftir degi.
Ég ætla að hefja lánastarfssemi eins og Ari Þór Vilhjálmsson sem skv. Mbl.tekur þátt i byltingarkenndri örlánastarssemi á netinu og hefur meðal annars hjálpað Roma (Sígauna eins og Morgunblaðið kallar það) að opna reiðhjólaverkstæði í Búlgaríu. Roma fólkið á mjög erfitt uppdráttar í Búlgaríu, lifir á jaðri samfélagsins í fátækt og oft fyrirlitið. Síðan sem Ari Þór bendir á er kiva.org. Fólk getur látið muna um sig með því að lána 25 dollara og engin ástæða er til að ætla annað en að þú fáir endurgreitt.
Þá hef ég jafnhliða hinum dásamlega lestri raðað í mig tómötum, brokkkólí, rauðu greipi og bönunum sem maður á að gera samkvæmt viðmælendum Mogga vilji maður ekki fá blöðruhálskirktilskrabbmein og þar sem ég á mér þá ósk heitasta að fá að deyja úr lungnabólgu á tíræðisaldri þá er ég dauðhræddur um að verða hrifinn burt af einhverjum djöflinum fyrr og sjötti hver karl fær nú víst þennan illkynja sjúkdóm. Það verður ekkert rautt kjöt í dag og engin mjólk takkfyrir.
Víkur þá sögunni að Karli Blöndal sem skrifar um árásir á útlendinga í Þýskalandi og víðar en ráðamenn í Evrópu hafa vaxandi áhyggjur af kynþáttahatri í þýskalandi, Frakklandi, Belgíu, Danmörku og Ítalíu. Einkum óttast menn vaxandi umsvif nýnasista og flokka sem kynda undir með þeim svo sem NPD, DVU og Lýðveldisfokkinn. Nýnasistar eru skelfilegt fyrirbrigði sem ráðast á fólk og limlesta og drepa. Þeir eru bannaðir í Þýskalandi. Megnið af dreifiritum þeirra eru prentuð í Danmörku vegna rúmra málfrelsis og prentfrelsisákvæða þar. Umhugsunarvert.
Nóg að sinni af hinu ágæta Morgunblaði, sem mætti auðvitað vera þykkara, og mér og gæti ég þó skrifað langt mál um Reykjavíkurbréfið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:07 | Facebook
Athugasemdir
Já, mikil fjölgun og uppivöðulssemi útlendinga á borð við múslíma í Vestur-Evrópu, sem sýna andúð sína á lífsháttum og menningu gestgjafaralanda sinna, er næring fyrir öfgasamtök á borð við Ný-Nazista.
Örlygur N. Jóhannsson (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 18:20
Já, og þeir nærðust á Gyðingum forðum....!
Baldur Kristjánsson, 26.8.2007 kl. 18:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.