Alhæfingarpytturinn!
8.10.2007 | 08:19
Fríða Björk Ingvarsdóttir skrifar Ljósvakann í Mbl í dag, er að fjalla um útvarpsmessur og dettur í alhæfingarpyttinn og segir:
,,Tónninn í prestum landsins er þó nokkuð sem fer sífellt meira í taugarnar á Ljósvaka. Það er eins og þeir séu alltaf að prédika yfir börnum. Eins og þeir þurfi alltaf að draga seiminn noti hreinlega gamaldags og þreytandi hljóm við að koma orðum sínum á framfæri
Við hér í Ölfusinu könnumst ekki við svona presta og frábiðjum okkur svona alhæfingar.
Hún hefði t.d. getað sagt. Prestar sem valdir eru í útvarpsmessur (einkum nágrannar hennar í Reykjavík) eru svona og svona ef henni finnst þeir vera svona og svona. Amen
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.