Málþing félagsmálaráðherra og íslenskir blaðamenn!
11.1.2008 | 21:04
Félagsmálaráðuneytið hélt í dag málþing um innflytjendamál til þess að undibyggja nýja framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda. Um 200 manns sóttu málþingið sem tókst vel í alla staði og hlýtur að vera rós í hnappagatið á ráðherra og Hrannari Birni Arnarssyni formanni Innflytjendaráðs sem greinilega hafði yfirumsjón með málþinginu. Innflytjendaráð er undirrituðum nokkuð skylt þar sem hann var í forsæti nefndar sem gerði tillögu um þessa skipun
Það kemur ekki á óvart þó að fræðimenn og þeir sem vinna að málefnum innflytjenda flytji góðar tölur um mikilvægi þess að vel sé staðið að ,,aðlögun innflytjenda í íslensku samfélagi. Fyrst ber að segja að starfsfólk Alþjóðahúss í Reykjavík og Fjölmenningaseturs á Ísafirði hefur unnið geysigott starf og ásamt nokkrum sveitarfélögum með Reykjavíkirborg í brjósti fylkingar og borið hitann og þungann af því ágæta starfi sem hér á Íslandi hefur verið unnið í málefnum innflytjenda. Embættismenn ríkis eru örugglega einnig allir af vilja gerðir.
Það sem má gagnrýna er það að stjórnmálamenn hafa mátt gera betur í að taka inn í löggjöf ráðgjöf erlendra og innlendra sérfræðinga sem sett hefur verið fram í formi sáttmála eða ráðgjafar. Vonandi stendur það til bóta og engin ástæða til að ætla annað á meðan manneskjan með hjartað á réttum stað situr á stóli félagsmálaráðherra.
Einna best þótti undirrituðum að heyra í dag hvað Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga (og einnig Oddný Sturludóttir frá Reykajvíkurborg) var ekta í tali sínu um að gera vel í máefnum innflytjenda og einnig það að fá upprifjun á því að Morgunblaðið er eini fréttamiðillinn sem hefur sett sér sérstakar siðareglur þegar kemur að umfjöllun um lögbrot í þá veru að ekki skuli greint frá uppruna lögbrjóta nema málefnalegar ástæður séu til. Skipti það máli í samhengi fréttarinnar að viðkomandi komi frá Raufarhöfn eða Færeyjum á að geta þess annars ekki. Eins og allir sjá lenda menn í staðalímyndum og fordómum sem bitna á saklausu fólki ef uppruni er tíundaður þegar um aðkomufólk er að ræða (annars ekki!) og er raunar kjánalegt og hallærislegt.
Það er sattt að segja svolítið hneyksli og svolítið afturúr að íslenskir fréttamenn og fjölmiðlamenn skuli ekki hafa sett sér almennar siðareglur í þessum efnum, líkt og fréttamenn í flestum öðrum Evrópuríkjum.
Ef ég man rétt eru íslenskir blaðamenn þar í hópi með blaðamönnum í fyrrum Sovétlýðveldum sem hafa sér það til afbötunar að þeir hafa þurft að gera afskaplega margt við erfiðar aðstæður á skömmum tíma.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:12 | Facebook
Athugasemdir
Ég tók eftir því fyrir mörgum áratugum að fréttaflutningur norskra dagblaða af glæpum í Osló var settur þannig upp að það virtist vera eins og allir glæpir væru framdir af innflytjendum. Það var líka alltaf tiltekið í hvaða borgarhluta glæpurinn væri framin og úr hvaða borgarhluta þeir sem frömdu glæpinn komu. Eins var mökkur af greinum um sem höfðu rasistalegan undirtón, töluðu um innflytjendavandamálið. Umræðan í íslenskum blöðum hefur aldrei verið svona.
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 12.1.2008 kl. 08:17
Að svo litlu leyti sem ég þekki til innflytjenda löggjafarinnar er hún meingölluð og sem verra er enginn virðist kannast við að þær(þessar lagasetningar9 eigi að gilda og að farið sé eftir þeim.Svo vantar alla UPPLÝSINGAFLÓRUNA til réttra aðila.Mér finnst slæmt til afspurnar hvernig ÓPRÚTNIR menn fara ílla með innflytjendur.Og sem verra er þar gerir enginn neitt í neinu!Lýsandi dæmi um lögjafar og framkvæmdavaldið.
Þetta er eins og GÖG og Gokke.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 03:01
Skemmtilega orðað hjá þér ,,Að vera ekta í tali sínu" ... Segir allt sem segja þarf um hin sem ekki eru ekta.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.1.2008 kl. 08:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.