Við eigum samleið með Evrópu -leiðin liggur til Samfylkingar!
14.2.2008 | 09:46
Framsóknarflokkurinn er búinn að vera sagði Magnús vinur minn þar sem hann gekk á undan mér inn gólfið. Ég skal segja þér afhverju hélt hann áfram. Íraksstríðið og Fjölmiðlamálið fóru með hann. Halldór ætlaði að fara sínu fram með flokkinn en Framsóknarmenn láta ekki teyma sig. Framsóknarmenn vilja ráða ferðinni og ef foringinn fylgir ekki línunni þá fara þeir og þeir fóru. Sjálfstæðismenn eru öðruvísi þeir elta foringja sinn. Fylgja honum gegnum þykkt og þunnt. Þess vegna verða þeir ráðvilltir þegar foringinn bregst eða er ekki nógu ákveðinn, hélt hann áfram.
Þetta eru kannski skilaboð Magnúsar til Geir Haarde að verða ákveðnari. Mér sýnist ný skoðanakönnun staðfesta það. Samfylkinginn er að sigla framúr. Burtséð frá skýringu Magnúsar þá virðist Sjálfstæðisflokkurinn standa fyrir flest það sem var og er farinn að gjalda þess.
Samfylkingin er hins vegar flokkur framtíðarinnar sem bæði bankar, fyrirtæki og almenningur veðja á í vaxandi mæli. Hún gerir sér nefnilega grein fyrir því að við eigum fyrst og fremst samleið með Evrópu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta er að verða evrópskt flokkaskipting. Samt sýnd veiði ekki gefin.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 10:03
Við skulum ekki gleyma því að íslenskir kjósendur eru fljótir að gleyma og þessi skoðanakönnun getur verið gleymd og grafin eftir örfá misseri. Spyrjum að leikslokum við næstu kosningar.
Skúli Freyr Br., 14.2.2008 kl. 10:11
Ég óttast svolítið það sem Skúli segir hér, kjósendur virðast láta berja sig allt of lengi, hinsvegar sýnir flenging Framsóknar að hugsanlega er að koma inn ný kynslóð sem er á meiri hreyfingu, hef lengi sagt að það þurfi næstu eða þarnæstu kynslóð til að unga fólkið hætti að kjósa eins og "pabbi gerði". Þarna vigta fjölmiðlar mjög þungt.
Sjáið bara þversögnina varðandi kvótakerfið í sjávarútvegi? Það eru 70-80% þjóðarinnar á móti ruglinu og flykkist síðan á kjörstaði til að styðja þá sem bera ábyrgð á skepnuskapnum?
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 14.2.2008 kl. 10:28
Annað hitt strákar mínir og það er að það gætu farið að spretta hér upp allskonar smáflokkar sem gætu tekið töluvert til sín þegar á reinir og þá er ekki gott að vera framsóknarmaður eða hvað?
Vignir Arnarson, 14.2.2008 kl. 10:46
Held að það þurfi ekki að gera ráð fyrir framsókn sem stjórnmálaafli sem skiptir máli í framtíðinni. Það sem er eftir af þeim er ekki stjórnmálaflokkur, heldur hópur ósvífinna einstaklinga af jónínugerðinni sem einskis svífst í hagsmunapoti. Allt almennilegt fólk sem kaus þau í eina tíð, er flest farið yfir til Vinstri grænna og er ásamt gömlu kommunum uppistaðan í þeirra fylgi. Hitt er annað mál, ef Samfylking heldur vel á sínum spilum, á hún að geta tekið þann status, sem sambærilegir flokkar hafa annarsstaðar í Evrópu. Sjálfstæðisflokkurin mun liðast í sundur - þetta hefur í raun aldrei verið einn flokkur. Hann verður ekki mikið lengur stærstur íslenskra stjórnmálaflokka, það eru engin efni til þess. Held að fólk sé að átta sig á því að það er hluti af Evrópu og sósíaldemokratískt samfélag er einfaldlega það sem hefur gefist best þar.
Nöldrari (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 11:42
Alex, er ekki tími til að fara mæta í Lárusarhúsi? Is´s over.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 19:40
Ha,ha...
..hann Alex hefur kannski trú á aðkvótakerfi Framsóknar og andskotans ásamt "Lómatjarnarskassinu" bjargi málunum? Kannski að það verði nú? En frekar finnst mér það nú ótrúlegt. Ég hef meiri trú á aðferð Guðna en það kemur bara "of seint og of lítið".
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 14.2.2008 kl. 20:42
Framsóknarflokkurinn lengi lifi!
Lýður Pálsson, 14.2.2008 kl. 22:53
Ég bara hreinlega skil ekki af hverju samfylkingin siglir fram úr, hver er ástæðan, hvað er svona gott við þeirra stefnu? Mér hefur alltaf fundist samfylkingin vera tækifærissinnar og það sást best þegar þau fóru upp í ból sjálfstæðismanna, sem voru höfuðandstæðingar þeirra frá upphafi:S
Daníel Haukur, 14.2.2008 kl. 23:38
Það skyldi þó ekki vera að Framsókn komist í form eftir ormahreinsun síðustu missera. Að klárinn jafni sig af iðraveikinni og fari að tölta á ný.
Gestur Guðjónsson, 15.2.2008 kl. 10:31
Hér er besta lýsing á Sjálfstæðismönnum og foringjahollustu þeirra sem ég hef séð. Spurning hvað veldur slæmri útkomu flokksins í skoðanakönnunum - þessi lýsing eða klúðrið í borginni.
Lára Hanna Einarsdóttir, 15.2.2008 kl. 10:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.