Grundvallarspurningar!!
15.2.2008 | 15:44
Umræðan á Íslandi er yfirborðsleg. Grundvallarspurningar á borð við það í hvernig þjóðfélagi og í hvernig heimi viljum við búa deyja sé þeim varpað fram. Það virðist vera sátt um óbreytt ástand. Menn eru eins og milli svefns og vöku. Rífist er um einstaka menn, einstakar virkjanir, einstakar ákvarðanir í vaxtamálum. Hvar er grundavallarumræðan?: Viljum við meiri jöfnuð? Viljum við alvöru innspýtingu í menntakerfið? Til hvers er menntun? Hvað er háskólamenntun? Hvar ætlum við að vera eftir 20 ár? Ætlum við að lækna alla eða bara þá ungu? Ætlum við að halda áfram að eiga heimsmet í að samþykkja ekki hælisleitendur? Ætlum við að auka kennslu í mannréttindum og rasisma eða ætlum við að halda áfram að gubba úr úr okkur rasistum? Ætlum við okkur að lifa í samfélagi sundurlyndis eftir 20 ár? Hvar eru grundvallarspurningarnar? Hvar er umræðan um lífsgildin? Ég fullyrði að flestir sjá slíka umræðu aldrei nema í sjónvarpsauglýsingum.
Að undanskildu aðdáunarverðu framtaki Bubba Morthens er fátt gott að gerast. Mikið á sá maður mikið lof skilið fyrir það að efla til samblásturs gegn rasisma.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Svo sannarlega grundvallarspurningar og þeim þurfa helst allir að svara, öðruvísi virkar ekki gangverkið.
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 15.2.2008 kl. 19:17
Takk fyrir góðan og umhugsunarverðan pistil. Svo sannarlega virðist mann íslenskt samfélag oft og tíðum eins og fólk gangi hér um í fastasvefni.
Greta Björg Úlfsdóttir, 17.2.2008 kl. 03:29
Ekki spurning um það Gréta og ég er nokkuð viss um að Baldur hefur myndað sér skoðun á málefninu.....við þurfum bara að átta okkur á hvar við erum á kortinu.....
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 17.2.2008 kl. 07:28
Baldur! Mér finnst þú fara offari!
Er eitthvað endilega víst, að þeir sem eru mótfallnir því að útlendingum hér á landi fjölgi enn meira á næstu árum, séu rasistar. Ef hinir sömu geta fært gild og þokkalega málefnaleg rök fyrir því sjónarmiði sínu á skoðunin fullan rétt á sér. Þjóðfélagið er ekkert "gubba út úr sér rasistum" enda þó einstaka menn og konur hafi skoðanir á útlendingamálum sem eru á jaðri hins viðtekna. Félagslegur rétttrúnaður er jafnan af hinu slæma. Og hvað er samfélag sundurlyndis? Er það andstæða samfélags þar sem dægurlagið er eintóna sólskríkjusöngur. Þar sem gagnrýnin umræða er talin til óþurftar.
Orðið er frjálst!
Kveðja,
Sigurður Bogi
Sigurður Bogi Sævarsson (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 20:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.