Laffer -Bogi - Egill -Geir

Flott viðtalið hjá Boga Ágústssyni við Arthur B. Laffer (var að horfa á það í endursýningu). Laffer er frábærlega sannfærandi, skemmtilegur og sjarmerandi. Nú kjósum við þá sem vilja lágan flatan skatt t.d. 15% á einstaklinga og fyrirtæki  (hverjir eru það?) og rífum okkur upp úr kreppunni.  Bogi, Egill og þessir gaurar eiga svo að fá ótakmarkaða heimild til þess að ræða við alvöru menn í veröldinni um efnahagsmál, menningarmál - hvaðeina.  Þátturinn hans Egils er farinn að líða fyrir smæð hinar pólitísku elítu -það sem bjargaði þættinum í dag var maðurinn sem Sjálfstæðisflokkurinn bar gæfu til að setja í leiðtogasætið - virkar öfgalaus, yfirvegarður og skynsamur og viðtalið við hann var eftir því gott.

Og viðtölin hjá Boga eru klassaviðtöl - þetta og viðtalið við norska utnaríkisráðherrann.

Nú má auðvitað segja að við getum horft á viðtöl við erlendar mannvitsbrekkur á erlendum sjónvarpsstöðvum eða lesið bækur eftir þá.  En það er ekki það sama. Íslenskir spyrlar á borð við Boga og Egil, þegar hannn rambar á útlending, setja með spurningum sínum orðræðu þeirra í íslenskt samhengi.  það er svo gagnlegt og opnar ýmis hugskot sem hafa aldrei opnast eða eru búin að vera lokuð lengi.. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Pétur Blöndal hefur lengi talað fyrir lágum, flötum skatti.  Held það sé í eina skiptið sem ég hef verið sammála þeim mæta manni ;)

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 17.2.2008 kl. 17:55

2 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Sæll

Þetta er það sem hefur vantað í íslenska fjölmiðlaflóru, dýpkun viðfangsefna með ákveðinni staðfæringu. Ef hægt er að telja það til vansa þá var Bogi helst til passívur.

Ragnar Bjarnason, 17.2.2008 kl. 18:07

3 identicon

Til þess að geta lækkað skattprósentuna þarf að afnema persónuafsláttinn, ef ríkið á að halda óbreyttum tekjum. Þrátt fyrir það gæti lága flata skattprósentan aldrei nálgast 15%, hún þyrfti að vera svo miklu hærri en það.

Þeir sem hafa lágar tekjur tapa á slíkri breytingu, en þeir hagnast mest sem hæstar hafa tekjurnar. 

Svoleiðis gjörningur hugnast ekki okkur frjálslyndum jafnaðarmönnum. 

magnús (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 18:18

4 Smámynd: Baldur Kristjánsson

það fer nú eftir því hvað við erum frjálslyndir........kv. B

Baldur Kristjánsson, 17.2.2008 kl. 18:30

5 identicon

Mér svelgdist svo á þegar Laffer þessi fór að fyrra bragði að tala um það að Íranir hefðu sleppt gíslunum daginn eftir innsetningu Reagans af því að þeir hafi vitað hversu harður hann yrði í horn að taka.

Þetta sagði mér það eitt að viðmælandi Boga væri annað hvort ófyrirleitinn áróðursmaður - eða gjörsamlega úti á þekju og hefði t.d. aldrei heyrt um eitt stk. Íran-Kontra mál...

Nú eru það viðtekin sannindi í að Reagan-stjórnin samdi við klerkastjórnina um Íran um lausn gíslanna í skiptum fyrir vopnasölu. Það var viðurkennt fyrir dómstólum.

Eftir þessa yfirlýsingu gat ég ekki tekið Laffer alvarlega sem álitsgjafa um bandarísk stjórnmál.

Stefán Pálsson (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 18:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband