Í stólinn með Egil Helgason
18.2.2008 | 10:46
Fornvinur minn Egill Helgason er eins og prestur í prédikunarstól -hann er með svo virðulegt blogg að samlíking við prédikunarstól er ekki fjarri lagi. Blogg hans er efst á eyjan.is
Egill hefur rétt fyrir sér. Úr prédikunarstól á ekki að tala um pólitík -alls ekki. það má ekki skilja mig þannig. En enginn prestur kemst hjá því að tala um grundvallaratriði: mannréttindi, umhverfi, lífskjör.
Annars yrði hann að þrástagast á setningunni: Guð er á himnum. Guð er góður.
Mörgum ferst þetta sjálfsagt illa úr hendi eins og Egill bendir á og vaða á súðum um pólitísk málefni. Guðfræðileg umfjöllun um grundvallaratriði er vandasöm.
Hvorki kirkjan né aðrir mega láta stjórnmálamenn ýta sér út úr umræðu um manninn og tilvist hans. Málefnið er of dýrmætt til þessa ð það verði eftirlátið einum hópi manna!
Annars þarf ég að bjóða Agli og geri það hér með að prédika í Strandarkirkju í sumar. Ég er viss um að hann fer ekki ver með prédikunarumboðið en margur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:09 | Facebook
Athugasemdir
Hann getur predikað sem hann hefur kyn til.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 13:12
Talandi um kirkjuna og kristni, er það ekki eins og að henda stein úr glerhúsi að tala um mannréttindi og lífskjör í kirkjum þegar guðinn er mesti morðingi sögunnar, að eigin sögn.
Hvernig er hægt að tengja þennan guð við mannréttindi þegar hann hefur traðkað á þeim alla tíð samkvæmt eigin ferilskrá.
Þú ert kannski einn af þeim sem finnst í lagi að guðir drepi... eða a.m.k. þinn guð
DoctorE (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 13:17
Nei DoctorE! kv. B
Baldur Kristjánsson, 18.2.2008 kl. 13:26
Umhverfisverndarsinnum hefur tekist að koma óorði á umhverfisvernd með gífuryrðum og bulli. Þess vegna er umræða um þau mál eldfim og um dægurþras á ekki að funda í guðshúsum. Og auðvitað er það "yfirlýsing" af hálfu þeirra sem ráða húsinu að leyfa þennan fund í Fríkirkjunni. Hefðu Þjóðernissinnaðir öfgamenn hefðu fengið húsið fyrir fund með yfirskriftinni "Ísland fyrir Íslendinga"?, eða öfgasinnaðir ofsatrúarmenn sem tala gegn samkynhneigð og fóstureyðingum? Held ekki.
Gunnar Th. Gunnarsson, 18.2.2008 kl. 18:09
Þú misnotar gróflega stöðu þína sem prestur í Þjóðkirkjunni með því að prédika pólitík samanber þegar þú kallaðir Frjálslynda flokkinn rasistaflokk í aðdraganda alþingiskosninga í vor.
Magnús Þór Hafsteinsson, 18.2.2008 kl. 19:37
Prestar geta ekki gert að þessu, sérstaklega þegar Bloggur (sem er eins konar Satan) hefur náð valdi á þeim. Ég fyrirgef Baldri.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.2.2008 kl. 19:48
En ekki síra Agli!
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.2.2008 kl. 19:51
Magnús Þór! Ég prédika aldrei pólitík í kirkju. Sjálfur fer ég nokkuð Egilsllínuna. En gangi þér allt í haginn Magnús minn! kv. B
Baldur Kristjánsson, 18.2.2008 kl. 19:57
prédika á egilslínunni í praksis...en theorían er augljós. Biblían er lítils verð ef hún er ekki -af presti í prédikunarstól t.d. - heimfærð yfir á aðstæður mannsins í nútímanum. Kv. B
Baldur Kristjánsson, 18.2.2008 kl. 20:51
Magnús! Minnist þess fyrir síðustu kosningar að þú komst með kommenti í blaði þar sem þú sagðist vilja láta banna skoðanakannanir, það er þegar einhver slíkt birtist þar sem tölur voru óhagstæðar Frjálslynda flokknum. Nú segir þú Baldur misnota stöðu sína sem prestur með því að segja Frjálslynda vera rasista, sem hann hefur vitaskuld fullt leyfi til. Það hefur engin leyfi til að hefta málfrelsið -- en í ljósi framansagðra dæma mætti ætla að slíkt væri afstaða þín.
Sigurður Bogi Sævarsson (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 21:25
Hvernig væri að nota þessi guðshús í þágu mannréttinda, umhverfis og lífskjara? Þau virðast fyllast betur þá en við venjulegar guðsþjónustur. Hvað veldur? Mögulegt að fólk sé orðið þreytt á að heyra þvagl um að virða ríkisstjórn og blessa ráðherra og þar á eftir að trúa á Guð og beygja sig fyrir valdi..............ja hvers? Varla virðist það sem svo að þessir hlusti á raddir þjóðarþegna.
Og hvar er barátta fyrir náttúrinni og auðgæfum jarðar betur gerð en í húsi af slíku tagi. Samkvæmt þessari blessaðri bók skapaði Guð himinn og jörð. Það væri þá skrítið ef fólk gæti ekki safnast saman til að stuðla að verndun þessa auðs.
Og allt er skilgreint sem pólitík um leið og óhefðbundnar umræður hefjast. Hverjir eru það sem eru hræddir. Jó nema þeir sem hafa skorðað hugsjónir í hefðbundin form og samkvæmt þeim eiga hlutir að gerast á ákveðnum stöðum. Kannski er fríkirkjan sá eini griðarstaður, þar sem lögregluvald hernaðarsinna ekki nær til.
Oj, oj, eitthvað verður að gerast til að hægt verði að hafa skrílinn undir valdi sínu - "þetta fólk" á ekki að geta safnast saman. Þjóðvarnarsinnar hvað varðar auðæfi landsins og verndun umhverfis eru nýju hryðjuverkartakarnir er það ekki? Það verður að sjá til að "þetta fólk" komi ekki til tals nema fjórða hvert ár og þá með þögninni einni gegnum að kjósa með krossi.
ee (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 21:41
Tek undir með DoctorE, trú er hræsni!
Valsól (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 22:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.