Össur- hinn íslenski Kennedy?

Össur Skarphéđinsson hefur boriđ af öđrum rćđumönnum í eldhúsdagsumrćđunum í kvöld.  Hann er sá eini sem hefur talađ nćr blađalaust. Hann tók ţráđinn beint upp frá síđasta rćđumanni.  Össur  er sannfćrandi og talar um ţađ sem máli skipti. Mjólkurkýr framtíđarinnar sem eru fyrst og síđast sprotafyrirtćki í tćkni- og orkugeiranum.

Ég sé Össur fyrir mér sem nćsta forseta lýđveldisins, hann er mćlskur, gáfađur, hugsar fram í tímann, talar fjölskrúđugt og myndrćnt mál. Fer vel í rćđustól eins og Guđjón Arnar Kristjánsson. Hćfilega gildvaxnir  menn eru oft flottir (uppáklćddir), traustvekjandi og sannfćrandi. Össur minnir mig svolítiđ á Edward Kennedy í rćđustól en virđing ţess snillings hefur aukist jafnt og ţér međ aldri og vaxandi mittismáli.

Nú er einhver í pontu sem byrjađi rćđuna sína svona:  ,,Nú er eitt ár liđiđ síđan núverandi ríkisstjórn tók viđ völdum. Margt hefur gerst á ţessum tíma..........." Hafa sumir alţingismenn aldrei lesiđ neitt um nauđsyn ţess ađ grípa athyglina í upphafi rćđu. Össur haltu rćđunámskeiđ á ţinginu. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Sigurđarson

Össur er náttúrlega góđur í rćđustólnum - -en stundum gleymir hann sér nú dálítiđ karlinn.   Eigum viđ ekki frekar ađ gera Össur ađ fastafulltrúa í Öryggisráđinu?   Hann mundi tukta ţá til fulltrúa stórveldanna og setja ofan í viđ N-Kóreu og Íran - - um leiđ og Múgabe og herforingjar í Myamar fá sinn skammt.

Held ađ hann mundi líka koma á sambandi á milli Kúbu og umheimsins - núna ađ gengnum CAstró úr embćtti

Benedikt Sigurđarson, 27.5.2008 kl. 22:24

2 Smámynd: Svanur Gísli Ţorkelsson

"Ask not what your country can do for you; ask what you can do for your country" Frćgustu rćđuorđ   John F. Kennedy, í eiđdaga rćđunni 1961.

Eđa var hann kannski ađ "vitna" til orđa Kahlil Gibran sem skrifađi  í  "The New Frontier," áriđ 1925--- "Are you a politician asking what your country can do for you or a zealous one asking what you can do for your country?"

En ég er eiginlega viss um ađ setningin "Ich bin ein Berliner" 1963 í Berlín er orginal :)

Ţetta gćtu veriđ ţröngir skór fyrir Össur ađ ganga í.

Kveđja,

Svanur Gísli Ţorkelsson, 28.5.2008 kl. 00:50

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Össur er feikna-rćđumađur, ţađ sá ég m.a. og heyrđi, ţegar hann talađi blađlaust langar stundir og glćsilega á Alţingi um mál Erfđagreiningarinnar og sjúkraskránna. En honum eru afskaplega mislagđar hendur, eins og alţjóđ ţekkir, og ţó ađ margt í afstöđu hans til orku- og umhverfismála bendi til ţess, ađ hann, gamli Allaballinn, sé nú "lengst til hćgri í flokknum" Samfylkingar, eins og Sigurđur G. Tómasson og Andrés Magnússon blađamađur voru sammála um í ţćttinum 'Vikulokin' á Rás 1 á laugardaginn, ţá vćri ţađ eins og ađ hleypa fíl í postulínsbúđ ađ senda hann Össur í Öryggisráđiđ.

Jón Valur Jensson, 28.5.2008 kl. 01:11

4 Smámynd: Sigurđur Ţórđarson

Össur getur talađ, jú mikil ósköp en stundum á hann ţađ til ađ fara fram úr sér.

Hvernig var ţađ ekki međ laxeldiđ sem hann kallađi stóriđju framtíđarinnar og vildi setja í hvern fjörđ? Ţađ draup aldeilis ekki smjör af hverju strái eins og hann spáđi, ţvert á móti var laxeldisćvintýriđ hrein martröđ fyrir lánastofnanir, hiđ opinbera og ţá einstaklinga sem ţar komu nćrri. 

Sigurđur Ţórđarson, 28.5.2008 kl. 09:03

5 identicon

Fyrir mína parta eruđ ţiđ nú full brattir herrar mínir. Sumir eru t.d. vođalega fegnir í dag ađ Össur skuli ekki vera landbúnađarráđherra m.v. samlíkingu hans á ríkisstjórninni og frískum lömbum sem nudda saman hornum ađ vori. Lömb fćđast ekki hornótt, í besta falli hrútlömb sem fćđast međ litla hnúđa. Ţađ gildir ekki um stelpu-lömb. Segir ţađ ykkur eitthvađ um hugsunarhátt ráđherrans?

Helga Sigrún Harđardóttir (IP-tala skráđ) 28.5.2008 kl. 12:04

6 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Helga Sigrún sćl: Ţeim sem ekki lesa á blöđum og flytja almennilega ţeim verđur alltaf á smámistök.  Ţađ er flokkspólitík blinda ađ höggva (um of) eftir ţessu!

Baldur Kristjánsson, 28.5.2008 kl. 12:27

7 identicon

Blessađur Baldur, minn gamli félagi. Ég man ţá tíđ... ;o)

Helga Sigrún Harđardóttir (IP-tala skráđ) 28.5.2008 kl. 14:21

8 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Floksspólitísk blinda hefur aldrei hrjáđ mig.  kv. B

Baldur Kristjánsson, 28.5.2008 kl. 14:24

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband