Sunnudagshugvekjan
22.6.2008 | 10:47
Sumarið hefur sigið inn með öllu sínu veldi. Sólin allan sólarhringinn. Þetta er ótrúlegt. Náttúran er lifnuð. ,,Allt í fjöri iðar titrar/ angar blóm sem fyrrum kól. Dásamlegur tími fyrir okkur Íslendinga sem við mættum gera meira af því að njóta. Þó ekki væri nema með því að leggjast út á grasflöt, finna gróðurangan, nema suð býflugunnar, fegurð blómanna, finna fjögurra laufa smára, óska sér, gleyma áhyggjum, lifa í núinu, lifa í dagþéttri veröld eins og barn eða dýr, hafa ekki áhyggjur af stríði eða friði, glæp eða refsingu, lífi og dauða, bara vera, njóta verundarinnar, fíla lífið í botn. ,,Sé maður gamall er gott á horfa á börnin leika sér í grasinu áhyggjulaus og glöð, sjá sig í sporum þeirra, minnast liðinna daga með ánægju. Baða sig í skini sólar yst sem innst. Láta gleðina leika um sig. Grípa hamingjuna sem er hérna innan seilingar. Sunnudagur dagur sólarinnar dagur gleðinnar dagur hvíldarinnar. Aldrei skulum við vanmeta hvíldina. Það er gott að hvíla lúin bein. Gott að hvíla hugann líka. Sökkva sér niður í Sunnudaginn. Láta öðrum dögum amstrið eftir. Hafa mánudaginn til sinnar mæðu.
Í dag er samkvæmt kirkjutímatalinu fimmti sunnudagur eftir Þrenningarhátíð en þrenningarhátíð eða trínitatis er sunnudagurinn eftir Hvítasunnu. Jesús er í guðspjalli dagsins við Geneseretsvatn og mannfjöldinn þrengir að honum til að hlýða á Guðs orð. Við ,,eftirbátar hans þurfum ekki að hafa bát til taks þó að kirkjunni sé reyndar sótt eins og á öllum tímum reyndar af fólki sem hafnar trúarbrögðum, telur þau vera vitleysu í besta falli saklausa í versta falli stórhættulega. En Jesú sá tvo báta við vatnið og fiskimenn að þvo net sín. Hann bað mann að nafni Símon að leggja lítið eitt frá landi og tók að kenna mannfjöldanum úr bátnum. Þetta er glæsileg sviðsetning ræðunnar. Síðan segir hann við Símon: ,,Legg þú á djúpið og þeir fylla bátinn. Við þekkjum eftirmálann: ,,Héðan í frá skaltu menn veiða sagðann og þeir yfirgáfu allt og fylgdu honum.
Þetta er málið: Hann kallar í sína þjónustu karla og konur og framkvæmir með þeim verk sitt á jörðu. Hann kallar mig og þig en til hvers? Til allra góðra verka væntanlega. Bæði til þess að verða miskunnsamir Samverjar og reisa við þá föllnu, bera út í sólina þá sem ekki geta farið þangað sjálfir. Kynslóðirnar hafa í nafni hans reynt að lækna sjúka, bera smyrsl á sárin, aðstoða fátæka, standa með þeim sem minna mega sín, boða réttlæti, miskunnsemi, frið. Þeir hafa rekið málstað barna og gamalmenna, hinna kúguðu, afskiptu. Þeir hafa boðað og barist fyrir réttlátum samfélögum í stíl við guðsríkið framtíðarsýn allra kristinna manna þar sem réttlætið eitt ríkir. Þeir hafa boðað fagnaðarerindið ekki bara í orði heldur einnig í verki.
En boðendur hans hafa einnig drepið, misþyrmt, kúgað. Stuðlað að því að viðhalda misskiptingu, misrétti, þrælahaldi, dauðarefsingum, kvennakúgun í hans nafni. Í þessum efnum sannast hið fornkveðna: Veldur hver á heldur. Þar sem hann er ekki lengur í bátnum útifyrir í eiginlegri merkingu þá verðum við að treysta hvert öðru og okkar eigin hugsun þegar kemur að því að útleggja orð hans. Þegar kemur að því að gefa orðum hans vængi.
Hvernig má þetta vera?
Bókstafshyggjan gerir ráð fyrir því að Guð hafi gripið inn í söguna og sett ófrávíkjanlegar reglur. Svona skal þetta vera ,,drengir", þá væntanlega. Líkt og hann gerði ekki ráð fyrir þróun í hugsun mannsins, nýrri þekkingu, þróun hugmynda. Ég sé ekki alveg fyrir mér nútíma samfélag jafnréttis, lýðræðis, þekkingarleitar og framþróunar ef þessi áhersla hefði náð yfirhöndinni í kristnum samfélögum. Þá hefðum við ennþá þræla, konan væri ennþá ,,bakvið eldavélina og við fyrirlitum homma eins og fyrrum. Og ég sé ekki fyrir mér að kristin lífssýn verði meðal höfuðafla í hugmyndadeiglu framtíðar ef framlag hennar verður það eitt að hanga á því sem einu sinni var álitið rétt í ljósi orða Biblíunnar eins og hægt er að skilja þau bókstaflega.
Sú leið sem meirihluti kristinna manna hefur hins vegar ætíð farið er að leggja kærleiksviðmið Jesú Krists á alla hluti. Biblían er þeim vissulega innblásið Guðs orð en hana ber að skilja út frá kærleika Krists, túlka út frá kærleiksviðmiði því sem hann setur.
Nýir tímar kalla sífellt á ný viðfangsefni, nýja sýn, nýja túlkun, byggðra á reynslu mannkyns, nýrri þekkingu, nýjum rökum, himininn yfir oss er stöðugt að breytast. Þá ætti svar hinna kristnu manna við hverju nýju viðfangsefni að vera: Hvernig hefði hann brugðist við úr bátnum? Hvað hefði hann sagt? Hvernig rímar þetta við boð hans: ,, Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra?. Hvernig rímar þetta við boð hans: ,, Þú skalt elska....náunga þinn eins og sjálfan þig? Hvernig rímar þetta við það allir séu skapaðir í Guðs mynd? Hvar er kærleikur hans í þessu? Fordómaleysi? Sá sem grefur sig inn í bókstafstrúna og veifar sífellt fordæmandi setningum og setningarhlutum úr Biblíunni, honum má líkja við hellisbúa sem grefur sig sífellt lengra inn í fjallið en gengur ekki mót hellismunnanum og horfir yfir víðlendar sléttur, sér sól rísa yfir nýjum degi, rismikil fjöll, gróskumikla skóga, gleði og hamingju mannlífsins, ný og spennandi úrlausnarefni. Hann er eins og saltstólpi, fjötraður í eigin bing. Saltstólpar ferðast ekki. Hvorki með Kristi né öðrum. Kristnum er ætlað annað hlutskipti. Þess vegna kom Kristur fram og smellti kærleikanum í hvert orð, hverja hugsun, hverja sýn. Við eigum að fylgja honum. Verum með í ferð Krists í átt til framtíðar. Yfirgefum allt sem bindur hugsun okkar, leysum fjötra vanahugsunar og fylgjum honum. Áfram gakk..
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þakka þér fyrir þessa hugvekju séra Baldur. Mjög skynsöm nálgun og upplífgandi frammi fyrir óþolandi bókstafstrúar-einstrengingshættinum í sumum innan sem utan Þjóðkirkjunnar. Takk.
Friðrik Þór Guðmundsson, 22.6.2008 kl. 11:40
Þakka þér Baldur. Mildur og beinskeyttur í senn.
Svanur Gísli Þorkelsson, 22.6.2008 kl. 12:17
Þakka prýðisgóða hugvekju, sem nýtist flensugemling eins og mér, sem kemst ekki á samkomu eða guðsþjónustu vegna veikinda.
Ég hef mikið verið að deila á reglugerðarfasismann, sem sér ekkert nema hráar reglur og gleymir tilganginum með reglunum.
Það er samt sem áður nauðsynlegt að deila á það virðingarleysi fyrir lögum og reglum, sem tröllríður samfélaginu og sér í lagi ungu fólki.
Það er stundum eins og reglur og góð siðferðisgildi skipti suma engu máli og þeir telja að þeir megi traðka á þeim eins og þeim sýnist til að svala fýsnum sínum.
Jesús sagði um síðustu tíma: Og vegna þess að lögleysi magnast, mun kærleikur flestra kólna. (Matteus 24:12)
Þessi orð sýna að kærleikur þrífst best í samfélagi þar sem virðing er borin fyrir lögunum. Kærleikur felst ekki í því að samþykkja hvaða dellu sem er og leyfa mönnum að komast óáreittir upp með sitt siðleysi.
Theódór Norðkvist, 22.6.2008 kl. 18:05
...Góður, takk fyrir pistilinn...
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 22.6.2008 kl. 20:38
Góður pistill Baldur! Áfram með smérið og niður með bókstafstrúna. Hvaða trúarbrögð sem hún kennir sig við í það og það skiptið. Líka þegar hún kennir sig við vantrú og boðar þá trú af miklu ergi!
Sigurður Hreiðar, 22.6.2008 kl. 22:47
Ég þori ekkert að segja.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.6.2008 kl. 00:35
Baldur, ertu til í að biðja Sigurð Hreiðar að segja okkur meira um bókstsafstrúarfólkið sem kennir sig við Vantrú og boðar þá trú af miklu ergi.
Ég má ekki spyrja, þá verður allt vitlaust.
Matthías Ásgeirsson, 23.6.2008 kl. 09:08
Góð predikun! Kærleikurinn er án nokkurs vafa megininntak kristninnar. Stærsta deila kristinna manna nú á tímum snýst um syndina. Hvað er synd og hvernig skal bregðast við henni. Það sem stendur mest í okkar heimshluta hvað þetta varðar er hvort samkynhneigð er synd eða ekki.
Biblían minnist nokkrum sinnum á samkynhneigð og þá í neikvæðu samhengi. Það sem gamla testamentið hefur um málið að segja ætti ekki að skipta kristna menn miklu máli, þar sem þetta kemur ú ævafornum textum sem innihalda skilaboð sem engin fer eftir hvort sem er.
Jesús minnist ekki á smakynhneigð. Páll postuli á aftur á móti skrifar harðorðan texta gegn samkynhneigðum. En er sá texti guðlega innblásinn? Mér hefur alltaf fundist að hann sé skrifaður í reiði og frústrasjón yfir mótlæti. "Þetta eru bara helv. hommar" mentalítet.
Annað mál sem kristin kirkja þarf að taka afstöðu til er útbreiðsla íslams á vesturlöndum. Ætla kirkjunnar menn að tala vel um úlfinn sem býður þess að tæta sauðina í sig. Ætla kirkjunnar menn að umbera með bros á vor ásælni trúarbragða uppruninn frá falsspámanni sem sagði sinn innblástur koma frá Jehóva.
Ég er þeirrar skoðunar að ef kirkjunnar menn ætla á einhverju hippísku umburðarlyndistrippi að glutra niður yfirburðastöðu kristindóms á vesturlöndum þá séu hinir sömu kirkjunnar menn óvinir kristninnar.
marco (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 12:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.