Beðist afsökunar á hroðvirknislegri skilgreiningu á Framsóknarflokknum!
16.7.2008 | 13:04
Það kemur að daginn að nokkrir háttsettir Framsóknarmenn lesa bloggið mitt og ég hef í símtölum verið harðlega ganrýndur fyrir að kalla Framsóknarflokkinn ,,afturhaldssaman bændaflokk". Þetta er hér með dregið til baka. Nær hefði verið að tala um framfarasinnaðan nútímaflokk með áberandi í haldssömum og afturhaldssömum elementum innanborðs. Eins mætti tala um fyrrverandi meginflokk og sýna með því orðavali faglegt hlutleysi.
þetta brotthvarf Framsóknarflokksins sem meginflokks er ekki með öllu gott fyrir íslenska þjóð. Hún hefði alveg átt skilið að njóta Guðna Ágústssonar sem forsætisráðherra og sú tíð gæti enn komið þó ekki sé það nú trúlegt. Guðni er eins höggvinn út úr íslensku úr íslensku hamrabergi, stendur djúpum fótum í íslenskri mold, er skynsamur í betra lagi og þó hann horfi mikið inn til dala þá á hann það til að horfa til sjávar einnig yfir höf og lönd og Evrópu. En auðvitað skiptir máli hvort að sitja hvítir hrafnar eða svartir á öxlum hans.
Jónas frá Hriflu átti mikinn þátt í að stofna bæðir Alþýðuflokk og Framsóknarflokk. Alþýðuflokkurinn skyldi vera fyrir verkafólk í bæjum. Framsóknarflokkurinn fyrir bændur og búalið. það fór svo að flestir fluttu í bæinn. það er því í samræmi við sýn Jónasar að Alþýðuflokkurinn dafni(undir nafninu Samfylking) og Framsóknarflokkurinn leggi upp laupana að mestu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:33 | Facebook
Athugasemdir
Það kemst enginn hjá því að lesa bloggið þitt. Næstum daglega er birt brot af því í einhverju dagblaðanna og því ekki undur þó stjórnmálamennirnir lesi.
Það sem þú skrifar á líka fyllilega erindi við fleiri en þá sem hér kíkja inn.
Kær kveðja,
Sigþrúður Harðardóttir, 16.7.2008 kl. 13:22
Þú skrifar vel Baldur, þó ekki sé ég nú alltaf sammála þér. Þetta síðasta er déskoti mikill viðsnúningur. Fullyrði að þú hafir verið beittur líkamlegum þvingunum af félögum í hinum afturhaldssama bændaflokki (án gæsalappa) ;-)
Sem betur fer eru menn frjálsir að skoðunum sínum og ganga í þá stjórnmálaflokka sem þeim sýnist en ekki þá sem þeim eru skammtaðir af einhvers konar Hriflumaskínu.
S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 16.7.2008 kl. 15:41
Algerlega þarflaust að draga skilgreiningu þína til baka, séra Baldur. Þetta er þín skilgreining, þinn skilningur og þú átt ekki að láta þessa menn hafa það af að snúa þér svona.
Friðrik Þór Guðmundsson, 16.7.2008 kl. 16:40
Það átti nú að vera smá kímni í þessu! Kv. B
Baldur Kristjánsson, 16.7.2008 kl. 17:05
Það átti nú að vera smá kímni í þessu! Kv. B
Baldur Kristjánsson, 16.7.2008 kl. 17:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.