Er Hveragerði fallegasti bær á Íslandi?

Alveg sérstakur bær Hveragerði.  Gróðursældin með ólíkindum. Snemma hneigðist þangað garðyrkjusamt fólk sem breytti Hveragerði í Edenslund með garðyrkjustarfi sínu og skógræktarstarfi.  Blíðan undir björgunum og suðan í jarðskorpunni gerðu útslagið. Fyrir vikið er Hveragerði hlýlegur bær og fallegur. Ekki hægt að finna samjöfnuð nokkursstaðar innanlands.  Og sundlaugin í Laugaskarði er sérstök. Þægilegan gróðurilm leggur fyrir vit manns úr heitu pottunum.  Þú gleymir stund og stað en manst þó hvar þú ert því laugin og umhverfi hennar er engri annarri lík.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég segi að það sé Hafnarfjörður ..

En Hveragerði er fallegur  

Brynjar Jóhannsson, 16.7.2008 kl. 18:22

2 identicon

Ég segi líka að það sé Hafnarfjörður. Einhvern daginn ætla ég að flytja þangað.

Ibba Sig. (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 18:50

3 Smámynd: Le Betiz

Þvaður er þetta! Ótrúlegt að heyra.

Le Betiz, 16.7.2008 kl. 19:56

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nei, elsku drengurinn minn, Hveragerði er ekki fallegasti bær á landinu. Fallegasti bær á landinu heitir Ólafsvík og þar býr líka fallegasta og best gerða fólkið í landinu, sem sannast best á sjálfum mér.

Kveðja.

Jóhannes Ragnarsson, 16.7.2008 kl. 21:00

5 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Þetta er vel mælt og þó svo að einhverjir bæir séu af einhverjum taldir fallegri þá er sundlaugin í Laugarskarði Best og Hveragerði verður fegurri með hverju árinu.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 16.7.2008 kl. 22:46

6 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Ég get verið sammála þér um sundlaugina og veit að þær gleðjast Laugaskarðssystur, Jóhanna og Ester, þegar þær heyra af þessari hrifningu þinni á staðnum

Sigþrúður Harðardóttir, 16.7.2008 kl. 23:16

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Nei, afsakið Baldur en ég verð að svara neitandi!

Hornafjörður er fallegasti bærinn

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.7.2008 kl. 23:44

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Nei Húsavík er fallegasti bær á landinu.....en sundlaugin er góð

Hólmdís Hjartardóttir, 16.7.2008 kl. 23:53

9 Smámynd: Aprílrós

Sko !

Saurbær í Dalasyslu er fallegastur bær á Islandi og þar á eftir kemur Hafnarfjörður.

Kvðja Guðrún Ing

Aprílrós, 17.7.2008 kl. 02:03

10 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Sæll Baldur, held að við höfum deilt pottinum í Laugaskarði (bestu laug á landinu) í gærmorgun, þú með lítinn ljóshærðan gutta með þér ?

En í gærmorgun var Hveragerði fallegasti bærinn á Íslandi því veðrið setti rétta mynd á hann

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 17.7.2008 kl. 08:19

11 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Man eftir þér í lauginni. Guttinn er stelpa. Kv. B

Sæl frænka:  Sammála með Saurbæinn! kvþ B

Róslín: Frá Höfn er fallegasta útsýnið!  Við þekkjum það. kv. B

Baldur Kristjánsson, 17.7.2008 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband