Þótt þú langförull legðir..........

Ólafur Ragnar er ágætur forseti. Veldur embættinu vel. Embættið hefur í meðförum hans sterka formgerð og hann er greinilega hörkuduglegur. Virðist vera á þönum frá morgni til kvölds innanlands sem utan. Maður heyrir helgisögur um þátt hans í strandhöggi íslenskra manna erlendis. 

Ég held sem sagt að fáir myndu halda betur á embættinu.  Hann sé forseti harla góður.  Hann mætti þó láta af dekri sínu við ríka kaupmenn en kannski er það bara sú mynd sem fjölmiðlar draga upp. 

En þá eru bara fjögur ár eftir. Ólíklegt er að Ólafur sitji lengur en þeir forverar hans sem lengst hafa setið Vigdís og Ásgeir. Í augnablikinu koma mér í hug tvær manneskjur  sem valda myndu embættinun ágætlega Guðni Ágústsson og Ögmundur Jónasson. Næst kjósum við nefnilega frekar heimakæra persónu. Margreyndir menn í stjórnmálum munu í framtíðinni einoka embættið.  Stjórnkerfi eru orðin það flókin að það er eiginlega ómögulegt að menn utan stjórnmálageirans komist að.

Fer vel á því að Kristinn Sigmundsson syngi ,,þótt þú langförull legðir sérhvert land undir fót...." við embættistöku Ólafs. Hver skyldi hafa valið það?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband