Út frá dagbókum Matthíasar!
22.8.2008 | 08:53
Dagbækur Matthíasar (Johannessen) minna okkur á að fortíðin er jafn óviss og framtíðin. Við vitum að sönnu ekki allt um það hvað gerist í framtíðinni en við vitum sennilega enn þá minna um það sem gerist í fortíðinni. Nútíð já. Foríðin er ekki eitthvað fast og bundið heldur sú upplifun sem við höfum af henni hvert og eitt og þessi upplifun breytist. Í framtíðinni munum við vita meira um fortíðina en við gerum nú en aldrei vita allan sannleikann frekar en um framtíðina því að ekkert gerðist óháð mismunandi upplifunum á því sem gerðist.
Þjóðir hafa tilhneigingu til þess að dvelja við og upphefja það skásta úr fortíð sinni. Þess vegna verða bæði Davíð Oddsson og Ólafur Ragnar sveipaðir hetjuljóma þegar fram líða stundir (en eins og allir vita mætti auðveldlega gera skúrka úr báðum eins og úr flestum þeim sem sagan upphefur).
Við sem persónur berum með okkur sögur úr fortíðinni og þær móta okkur. Flestir draga sig niður með óþægilegum minningum sem verða óþægilegar síendurteknar möntrur hugans. Það fólk á að endurhugsa þessar örsögur. Það er til annað huglægt mat á því sem gerðist. Endurskrifum smásögur fortíðarinnar sem hafa verið að hrjá okkur. Sjáum jákvæðu hliðarnar! Var þetta akkúrat svona? Sjáum kómísku hliðina. Skreppum afturí tímann og upplifum hlutina með jákvæðari hætti. Drögum þann lærdóm af dagbókum Matthíasar að ekki er allt sem sýnist. Gerum okkur svo ferð til framtíðar og teiknum upp það sem við viljum sjá. Framtíðin er nefnilega alveg eins óráðin og fortíðin. Og við getum mótað hana ekkert síður en fortíðina. Góðan daginn.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.