Ég vil kaupmanninn á horninu aftur!

Ég vil versla við kaupmanninn á horninu.  Ég vil heimsendingarþjónustu.  Við erum eins og idjótar að vaða um mörg hundruð fermetra búðir – einu sinni til tvisvar í viku – keyra miklar vegalengdir, bera allt heim. Gróðinn af viðskiptum okkar rennur ekki til samfélagsins – fer til örfárra gróðapunga í skattaskjól eða lystisnekkjur.  Þetta var svona fyrir hrun og þetta verður svona eftir hrun.  Ég vil kaupmann sem lifir og hrærist í því samfélagi sem búðin hans er í, eyðir þar peningum sínum og blandar þar geði við fólk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fararstjórinn

Mæli með Melabúðinni!

Fararstjórinn, 3.6.2009 kl. 13:48

2 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Kaupmaðurinn á horninu hætti ekki útaf því að Bónus opnaði nýja búð.  Kaupmaðurinn á horninu hætti af því að fólk hætti að versla hjá honum og fór að versla í Bónus.

Þetta er semsagt okkur að kenna.

Annars versla ég reglulega í hverfisbúðinni (Þín verslun).  Sérstaklega í kjötborðinu.

Verst hvað allt er hrikalega dýrt!

Matthías Ásgeirsson, 3.6.2009 kl. 14:15

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Pétursbúð er búðin mín, labba þangað á inniskónum!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 3.6.2009 kl. 14:55

4 Smámynd: Haraldur Baldursson

Hann er farinn í langt frí og kemur ekki aftur.

Haraldur Baldursson, 3.6.2009 kl. 15:23

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hvað með Kjötborg sem er við hliðina á GRUND!  Annars skal ég fara í búðina fyrir þig, tek tvöþúsund kall fyrir skiptið ef verslað er í Bónus eða Hagkaup.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 3.6.2009 kl. 15:43

6 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Melabúðin er góð og Skerjaver var líka góð búð, en neyddist til að loka vegna þess að íbúar Skerjafjarðar versluðu ekki nóg í heimabyggð.  Og svo opnaði 10-11 tvær búðir í nágrenninu, þannig að samkeppnisstaðan var erfið.  En það er spurning, Baldur, hvort við erum ekki að verlsla við eigendur stóru búðanna jafnvel þegar við verslum í hverfaverslunum, því hverjir eiga heildsölurnar aðrir en ÞEIR....?

Ómar Bjarki Smárason, 3.6.2009 kl. 16:17

7 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Fátt veit ég meira lýjandi en risaverslanir sem og Kringlur og Smárarlindir þessa heims. Þegar hafist var handa við að byggja enn eina höll heimskunar (Smáralind) á sínum tíma hristi ég hausinn yfir geðveikinni, "er enn eitt verslunarbáknið virkilega það sem vantar" spurði ég. Smáralindin á eftir að standa lengi sem hlálegur minnisvarði um heimsku mannanna.

Georg P Sveinbjörnsson, 3.6.2009 kl. 20:31

8 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Tek undir skrif síðuhaldara.

Axel Þór Kolbeinsson, 4.6.2009 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband