Niður með nöldrið - upp með húmorinn!
4.6.2009 | 11:25
Ég er ánægður með stýrivaxtarlækkunina. Ég er ánægður með auknar álögur á tóbak, brennivín og bensín. Ég er ánægður með ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Þar á bæ vinnur fólk vel. Ég er ánægður með það aðhald sem AGS veitir. Ég er ánægður með það að við skulum vera að færast nær því að sækja um aðild að Evrópusambandinu. ESB aðild er algjör forsenda þess að hér verði gott að búa á næstu áratugum. Ég er meira að segja ánægður með Bjarna Benediktsson - hann virkar hógvær og sanngjarn. Þegar maður opnar blað eða kveikir á sjónvarpi þá vellur út kraumandi óánægja með allt og alla, neikvæðni, bölsýni, samsæriskenningar til hægri og vinstri. Erum við að festast í óæskilegu fari óánægjunnar, neikvæðninnar? Við verðum að snúa við blaðinu og fara að láta ánægju okkar með það sem vel er gert í ljós! Hætta þessu stöðuga nöldri. Það gerir okkur ljót í framan.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Mikið er ég sammála þér.
Lenti einu sinni í svona gildru varð herpt í framan og leið líka illa innra með mér.
Hólmfríður Pétursdóttir, 4.6.2009 kl. 11:49
Ertu líka ánægður með að hækkun af brennevínið leiðir til hækkun húsnæðislánin okkar og aukir verðtryggðar skuldir Ríkissjóðs?
Heidi Strand, 4.6.2009 kl. 13:33
Baldur það er harðbannað að vera ánægður með nokkurn skapaðan hlut um þessar mundir. Þeir sem sjá eitthvað jákvæt eru bara óábyrgir.
Finnur Bárðarson, 4.6.2009 kl. 15:05
Heyr Baldur! Neikvæð viðbrögð við þessum orðum sýna hvað þau eru nauðsynleg.
Birnuson, 4.6.2009 kl. 20:57
Klerkar ríkiskirkjunnar hafa adrei verið fremstir svokallaðra raunsæismanna, enda um langan aldur með sjálftökurétt úr sjóðum allra landsmanna. Og þetta með fríðleikann, tja! það verður Baldur bara að gera upp við sjálfan sig!
Halldór Halldórsson, 5.6.2009 kl. 03:11
Góður, að vanda. Tek undir þetta með þér.
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 6.6.2009 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.