Datt þrisvar og brosti hringinn!
7.6.2009 | 08:51
Ég rakst á þenna brosandi englending við T-bæ í Selvogi í gær. Hann var búinn að hjóla um Ísland í ellefu daga. Fór frá Keflavík vestur um Snæfellsnes, Dali, Húnavatnssýslur, Skagafjörð og suður Kjöl og var nú kominn alla leið í Selvoginn á leið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gærgdagurinn, ellefti dagur hans var fyrsti sólardagurinn, rok og rigningu fékk hann alla daga en brosti nú hringinn. Hann sagði að hlýtt og gott viðmót Íslendinga hefði glatt sig. Hann var búinn að gera við nokkrum sinnum og hafði dottið þrisvar. Aftur: Já og fara þá austurum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.