Flokkarnir ættbálkar og hagsmunasamtök !

Því miður koma flokksbönd í veg fyrir það að miðjan fái að ráða í íslensku samfélagi.  Færi fólk eftir skoðunum sínum væri létt að mynda sterka miðjustjórn með vinstri áherslu.  Samfylkingin ásamt Steingríms armi Vinstri Grænna annars vegar og hins vegar vinstra armi Framsóknar þ.e. Guðmundi Steingríms, Birki Jóni og Siv Friðleifsdóttur.  Eftir sætu öfgar til vinstri og hægri. Þorgerður Katrín ætti líklega heima þarna líka.

Gallinn við flokkanna er að þeir eru ættbálkar og hagsmunasamtök og allir flokkar, nema þá helst Samfylkingin, spanna allt litrófið í hverju máli. Og ekkert gengur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Þór Strand

Finnst þér í alvöru Samfylkingin óspillt?

Einar Þór Strand, 6.10.2009 kl. 18:05

2 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Það er ekkert miunnst á það....vinur.  kv. B

Baldur Kristjánsson, 6.10.2009 kl. 21:09

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Haltu þig við Biblíuna, klerkur minn, þú hefur engan skilning á pólitík.

Baldur Hermannsson, 7.10.2009 kl. 18:30

4 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Það besta við bloggheima er að fá svona hlýjar og góðar athugasemdir. Vegni þér vel. MBkv. baldur

Baldur Kristjánsson, 7.10.2009 kl. 18:50

5 Smámynd: Baldur Hermannsson

Vegni þér sjálfum ávallt vel og gleymum því aldrei að sælir eru fátækir í anda.

Baldur Hermannsson, 7.10.2009 kl. 18:57

6 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Hver andskotinn hefur hlaupið í þig??

Baldur Kristjánsson, 7.10.2009 kl. 19:02

7 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hehe ég ætla nú rétt að vona að Óvinur mannkynsins sé ekki hlaupinn í mig!

Baldur Hermannsson, 7.10.2009 kl. 19:11

8 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Nei, þú hefur kannski bara gaman að gelta að fólki!  Kv. B

Baldur Kristjánsson, 7.10.2009 kl. 19:50

9 Smámynd: Baldur Hermannsson

Alls ekki, mér finnst bara pólitískar greiningar þínar yfirleitt grunnar og full einstrengingslegar.

Ég hef reyndar alltaf undrast að þjóðkrikjan skuli leyfa klerkum sínum að taka jafn virkan þátt í pólitík og þú gerir, því slíkir prestar hrinda jafnan frá sér stórum hluta safnaðarins. Ég þekki fólk í ákveðnu prestakalli, þar sem klerkur er á fullu í pólitíkinni, og þetta fólk segir mér að mestur hluti sóknarinnar sé farið að hunsa hann fyrir vikið. Ég tek fram að þetta er ekki þitt prestakall.

Prestar sinna að jafnaði verkefnum sem eru æðri veraldlegum stjórnmálum, þeir eru þjónar Guðs á jörðu, og þeir ættu ekki að spilla þeirri þjónustu.

Baldur Hermannsson, 7.10.2009 kl. 19:57

10 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Ég tek ekki þátt í pólitík. Hvorki með virkum hætti né óvirkum. Þó ég visslega mætti það sem prestur. Þú misskilur eitthvað.  Ég hef  hins vegar (hófssamar) skoðanir á mönnum og málefnum. Það kannn að rugla þig eitthvað að ég er ekki þröngsýnn íhaldsmaður á íslenska vísu.  Hvar eru gáfur þínar?  Er þetta ekki Baldur Hermannsson?  Mér líður eins og ég sé að rífast við einhvern þröngsýnan kjána?  Er þetta ekki maðurinn sem skoraði vistarbandið á hólm?  Frjálsynda hetjan sjálf? Hvað er að gerast með hugsun þína? Nei, þetta hlýtur að vera einhver annar, fyrigefðu!

Baldur Kristjánsson, 7.10.2009 kl. 23:29

11 Smámynd: Baldur Hermannsson

Nei, ég hef líka alltaf talið óviðeigandi að prestar starfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn eins og Hjálmar Jónsson gerði. Þetta hefur ekkert með mínar stjórnmálaskoðanir að gera. Að vísu tilheyri ég sjálfur trúfélagi þar sem prestar myndu láta það verða sitt síðasta verk að taka þátt í pólitík - eins og þú gerir - og hrinda þannig frá sér safnaðarfólkinu. Það kemur mér á óvart hvað þú ert viðkvæmur fyrir þessu. Það var engan vegin ætlun mín að ergja þig, en það er og verður sannfæring mín að prestur sem vinnur gott og einlægt starf í sínu prestakalli sé að vinna miklu dýrmætara starf en það sem pólitíkusar annast. Þjóðkirkjan ætti að setja þjónum sínum vissar takmarkanir í þessum efnum.

Baldur Hermannsson, 8.10.2009 kl. 00:44

12 Smámynd: Ingimundur Bergmann

Líkast til hefur Kristur verið fyrsti sósíalistinn og því er það hneisa hve margir prestar hafa verið hallir undir Sjálfstæðisflokksins, flokk yfirstéttarinnar.

Ingimundur Bergmann, 8.10.2009 kl. 07:51

13 Smámynd: Baldur Hermannsson

Ingimundur, af lestri Nýja Testamentisins er alveg augljóst að Kristur var ekki sósíalisti og raunar finnst mér ekki viðeigandi að bendla hann við stjórnmálaflokka. Auðvitað er allt í lagi að prestar séu hallir undir íhaldið, en það er ekki við hæfi að þeir gerist forsprakkar í héraði fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Baldur Hermannsson, 8.10.2009 kl. 10:24

14 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Ég sé ekki hvernig spursmálið um presta og pólitík kemur færslu minni við. Færslan er ekki pólitísk - hún er stjórnmálafræðilegs eðlis - ekki neitt stórvirki sem slíkt og ekki ætlað að verða það.  Meira svona stjórnmálafræðilegt andvarp. En ég verð að segja það að mér leiðist þeir menn heldur sem geta ekki lesið það sem ég skrifa án þess að æpa prestur-prestur og ég verð að segja það að heldur myndi ég kjósa mér þjónustu Hjálmars Jónssonar, sem ég veit hvar stendur heldur en þeirra sem borga bara í flokkssjóði. 

Og ef menn geta ekki unnt mér þess að vera með slík andvörp ef svo má segja án þess að þurfa að tala um grunnhyggni og einfeldni og opinbera þöggunaráráttu sína - einu sinni mátti prestur ekki skrifa smásögu - þá bara bið ég þá um að halda sig frá síðunni minni og auglýsa sitt innræti annars staðar. Kv. B.

Baldur Kristjánsson, 8.10.2009 kl. 10:50

15 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Þú meinar Baldur að Framsóknarmenn allra flokka sameinist

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 9.10.2009 kl. 11:00

16 Smámynd: Ingimundur Bergmann

Ungum var mér gefið Nýja Testamentið og las ég það af mikilli samviskusemi. Því miður hefur ekki farið eins mikið fyrir slíkum lestri á seinni árum því líkast til hefði maður gott af að rifja þann góða teksta upp sem oftast. Hvort hann er sósíalskur eða ekki er vitanlega matsatriði fyrir hvern og einn, en eins og ég les tekstann, þá er hann það. Ég sé það er ég skoða athugasemd mína (nr 12) að líkast til hef ég farið eitthvað illa framúr þann daginn, það sem ég vildi sagt hafa um málið kemst ekki með góðu móti fyrir í svo knöppum teksta, en eins og hann er þarna, þá er um skæting að ræða og biðst ég forláts á því.

Ingimundur Bergmann, 14.10.2009 kl. 14:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband