6,1 á Richter -enn í nettu sjokki.

Miklu sterkari hér en skjálftinn um aldamótinn.  Ég steig ölduna á stofugólfinu að í því er viritst í eilífðartíma, sennilega 6-8 sekúndur. Hvinurinn fór vaxandi þann tíma og datt svo niður. Húsið fór beinlínis af stað.  Það sem mér datt í hug var að nú hefði einhvers staðar hrunið.  Núhefði einhver slasast. Ég hljóp út og á leikskólann - öll börn óhult - þar sem voru inni höfðu skriðið undir borð með leikskólakennurunum, stöku barn grét.  Allir í nettu sjokki.  Alls staðar sást fólk flýta sér að vitja barna sinna.

Hjá mér hrundi úr hillum bækur og dót, einn illa festur reykskynjari þeyttist í gólfið. Hef ekki neinar fregnir af meiðslum í Þorlákshöfn. Börnin eru enn með reiðhjólahjálma sína á höfðinu að ráði föðurins sem enn er í nettu sjokki. Hefur aldrei góður verið í jarðskjálftum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skúli Freyr Br.

Allur er varinn góður. Gott að börnin séu með hjálmana á hausnum.

Kveðja úr Danaveldi, þar sem jörðin er föst undir fótum okkar.
Skúli, Sigrún og börn

Skúli Freyr Br., 29.5.2008 kl. 17:42

2 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sæll Baldur.

Gott að heyra að þú og þínir eru óskaddaðir. Hefur þú séð eða heyrt einhverjar tilkynningar um skjálftana og viðbrögð við þeim á Ensku eða öðrum tungumálum en íslensku. Er bara hugsað til nýbúa sem á svæðinu búa.

kv,

Svanur Gísli Þorkelsson, 29.5.2008 kl. 18:27

3 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Gott að allir eru hólpnir,- og mikið er ég fegin að búa fyrir norðan ;)  man ekki eftir fyrri skjálftanum 2000 ( svaf þann seinni af mér ) og finnst það alveg nægjanleg jarðskjálftalífsreynsla, dugar mér fyrir lífstíð.  Sonur minn og famelí flúðu upp í Landeyjar.....

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 29.5.2008 kl. 22:01

4 Smámynd: Linda litla

Í skjálftanum 2000 þá voru líka upptökin í Holta og Landsveit og þá varð fólk á Hellu og nærsveitum verst úti. Núna er upptökin í Ingólfsfjalli og þá verða Selfoss, Hveragerði og nærsveitir verst úti.

Þetta er alveg hræðlegt þegar að svona náttúruhamfarir ríða yfir.

Voandi er þetta bara búið.

Linda litla, 30.5.2008 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband