Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Hornfirðingar á ferð!
26.6.2009 | 08:33





Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stjórnin á siglingu-ekki veitir af!
25.6.2009 | 19:15
Sagt það áður. Segi það enn: Jóhanna Sigurðardóttir er góður forsætisráðherra. Vinnusöm, dugleg og klók. Hún hefur líka sér við hlið mjög vinnusaman og skynsaman fjármálaráðherra. Stöðugleikasáttmálinn er frábær árangur og hefði auðvitað ekki komið til nema vegna þess að Vilhjálmur Egilsson og Gylfi Arnbjörnsson eru alvörumenn og endurspegla alvörufólk. Næst er það samþykkt Icesave og síðan umsóknaraðild að ESB. Gangi þetta eftir verður Ísland á hraðri leið út úr vandanum.
Því miður virðist það vera lenska að tala ríkisstjórnina niður. Það er furðuleg árátta. það stendur samt til bóta t.d virðist Framsóknarflokkurinn vera þagnaður og það er sannast að segja mikil hvíld í því. Vonandi halda hin hófsamari öfl um málbeinið þegar hann byrjar aftur.
En meginhættan er innan úr þeim hópi vinstri grænna sem telur hjartað ráð för. það fólk skyldi átta sig á því að hlutverk hjartans er að dæla blóði en það er heilinn sem ræður til hvers hjartað er að því.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.6.2009 kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Byggingarkrani í Selvogi!
24.6.2009 | 08:55
Uppsveiflan kom aldrei í Selvoginn, vestustu sveit Árnessýslu, þar sem Strandarkirkja ræður ríkjum. Þessi fallegi héraðsstubbur svaf að mestu leyti af sér góðærið. Lífið gekk sinn vanagang. Þó var byggt þar kaffihús. Nú er öldin önnur. Nú er þar risinn byggingarkrani í stíl höfuðborgarsvæðisins. Fyrsti byggingarkraninn í Selvogi. Það mætti halda að æðið hafi náð þangað og ekki frést af hruni. Já og nei, það stendur til
að byggja brú yfir ósinn sem tengir Hlíðarvatn við Atlantshafið. Suðurstrandarvegur skal þar liggja á brú. Við hann hefur verið unnið dag og nótt undanfarin misseri og eru undirstöður hans komnar alla vega langleiðina á milli Þorlákshafnar oig Krísuvíkur. Klikkið á myndina helst tvisvar þá sést betur einsemd kranans. Fleiri myndir á kirkjan.is/strandarkirkja
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Húsið góða á Höfn!
23.6.2009 | 20:38

Falin fegurð á Mýrunum!
23.6.2009 | 08:03
Það eru fáir á ferli uppi við Fláajökul og Heinabergsjökul á Mýrum í Austur Skaftafellssýslu. Þó er stórfenglegt við rætur skriðjöklana. Á Mýrunum er falin fegurð. Uppeftir að að jöklum aðeins illa merktir slóðar. Mýrarhreppur hinn forni er í meginatriðum landsvæði sem maður ekur hratt í gegn um á leið austur eða suður. Á þessum kafla eru tugir kílómetra milli fjalls og fjöru. Áður fyrri hlupu jökulárnar til og frá en nú hafa varnargarðar komið reglu á sýstemið. Þarna er gott að þvælast ef fólk vill njóta íslenskrar náttúru í friði og spekt. Og svo er líka hægt að fá sér ís í Árbæ og bændagisting er nokkur á þeirri bæjartorfu. Brunnhóll held ég sé meðal þeirra sem auglýsa sig.
,,Sveitamennska" eða ,,nesjamennska" á Stöð 2
22.6.2009 | 19:02
,,Allir aðilar málsins voru af erlendu bergi brotnir, en búsettir hér á landi hljómaði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Hvað ljósi varpaði þetta á fréttina fréttastjóri góður. Flestar alvöru fréttastofur í Evrópu fara að þeim tilmælum Evrópuráðsins að sleppa svona föðurhúsatilvísunum ef þær varpa ekki neinu nýju ljósi á fréttina. Þær ala á fordómum. Nú þarft þú fréttastjóri góður að geta þess ef brotamenn eru af íslensku bergi brotnir. Tíunda þetta nákvæmlega alltaf. Líka þegar fréttir eru góðar. Ekki sakar að geta þess ef fólk er frá Akureyri o.s.frv. Þetta er ,,sveitamennska" svokölluð sem þú fellur í og haft var um þá sem ekki höfðu vanist lífinu í þéttbýlinu. Réttara væri kannski að tala um nesjamennsku? Tekur ekki tilmælum frá útlöndum? Íslenskumennska gæti það heitið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Cafe Tulinius á Höfn
22.6.2009 | 13:42
Var á þvælast á Höfn um daginn. Frábær staður. Flott sundlaug, glæný, feykilega vel heppnuð, falleg (blátt vatnið í lauginni rennur saman við bláhvítan jökulinn sem hverfur í bláan himininn...). Fór á eftir í Cafe Tulinius þar sem Gauti Árnason töfraði fram ristaðar beyglur....ég ætla ekki að segja með hverju. Þær voru ofboðslega góðar og viðmótið allt og þjónustan. Toppeinkunn. Þau reka þetta saman Gauti og konan hans Ragnheiður Rafnsdóttir. Cafe Tulinius er til húsa í því sem kallað var fundarhús kaupfélagsins austast við Hafnarbrautina norðanmegin. Þar bjuggu Ásgrímur Halldórsson og Guðrún Ingólfsdóttir konan hans. Þar ólst upp Halldór Ásgrímsson. Við hliðina rekur Anna Lú ásamt fleirum Humarhöfnina er mér sagtþar var skrifstofa KASK. Þangað kom maður stundum inn í þröngar kytrur önnum kafinna skrifstofumanna. Þetta var áður en okkur bar af leið. Áður en gróðinn af verslun fór úr byggðarlögum til þess að fjármagna snekkjur auðmanna í skattaparadísum.
Myndin er af húsi Humarhafnarinnar. Cafe Tulinius er til hægri utan við myndina. Notið ímyndunaraflið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað varð um hið skemmtilega samfélag síðustu aldar?
22.6.2009 | 08:54
Knattspyrna er eitt af tækjum auðvaldssamfélagsins til þess að fá okkur hveitipokana til þess að gleyma stund og stað og halda áfram að láta kúga okkur og það gerðist í gær með mig þegar Fram vann KR 3-0. Ég var staddur í sjónvarpsstólnum mínum þegar ég heyrði tíðindin og stökk upp úr honum alsæll og alkátur, steingleymdi Icesave og Kópavogi jafnvel Evrópusambandinu um stund. Við höfum ekki unnið þá síðan þeir svindluðu á okkur í innkastinu hérna forðum daga. Í morgun hef ég lesið um þennan glæsta sigur í öllum þeim blöðum sem ég hef náð til sem sagt Morgunblaðinu, áður fyrri las maður um þetta líka í Tímanum og Þjóðviljanum og síðar um daginn í Vísi eða Dagblaðinu. Það er fábreyttara núna. Hvað varð um hið skemmtilega samfélag síðustu aldar?
Nokkrir kaldir dagar á Skaganum!
21.6.2009 | 17:27
Á meðan umræða um ESB geysaði á heimasíðu minni var ég á fótboltamóti á Akranesi sem foreldri drengs í 7.flokki Ægis sem er knattspyrnufélag í Þorlákshöfn. Fótboltaköppunum tókst vel upp unnu bæði og töpuðu og gerðu jafntefli.. Enginn meiddist og enginn sleppti sér. Nokkur góð tilþrif sáust. Foreldrarnir úr Þorlákshöfn og annarsstaðar að voru til fyrirmyndar. Allir sem við hittum á Akranesi tóku okkur vel, fólkið á Bakkatúni 20 þar sem við feðgarnir gistum ásamt litlu systur, fólkið í Olís skálanum sem bjó til fínar samlokur, fólkið í veitingatjöldunum og aðrir foreldrar. Allir komu fram af stakri kurteisi. Það eina sem var að það var kuldinn, það var fimbulkuldi, það var alveg hræðilega kalt. Þetta er rokraskat. Fyrst var hann á norðan, síðan austan, sami kuldinn. En það hittist nú bara svona á. Þarna er ábyggilega stundum hlýtt. Og rosaleg helgi: Ég sá bæði Eið Smára og Hermann Hreiðarsson.
Á myndinni efst sjáum við hið frábæra lið Ægis ásamt þjálfara sínum Garðari Geirfinnssyni. Á öðrum myndum foreldra í kuldanum. Aðeins fegurð leiksins hélt á þeim hita.
Jón Sigurðsson og ESB fóbían!
18.6.2009 | 17:55
Það er eðlilegt að menn vitni í Jón Sigurðsson á þjóðhátíðardegi ekki síst á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Fyrir kemur hins vegar að menn beita honum ótæpilega fyrir vagn sinn og draga þá einfaldar ályktanir af skoðum hans og verkum. Jón Sigurðsson var t.a.m.enginn einangrunarsinni. Hann vann að sjálfstæði landsins og barðist fyrir frjálsri verslun. Ekkert í skrifum hans bendir til þess að hann hefði á 21. öldinni verið á móti aðild að ESB svo dæmi sé tekið. Það er svo aftur annað mál hvað mikil fóbía hefur gripið um sig meðal marga vegna hins sárasaklausa ESB. Ég kom á heimili um daginn þar sem fólkið nötraði og skalf af hræðslu nýbúið að lesa grein þar sem endalokum Íslands var lýst ef gengið yrði í þetta bandalag sjálfstæðra þjóða. Fullyrt var að innganga þýddi endalok landbúnaðar og að öllum auðlindum okkar yrði rænt. Helst var að skilja á greininni að fólk yrði skilið eftir allsbert og bjargarlaust hér í kuldanum. Staðreyndin er sú að þegar við göngum í ESB breytist ekkert nema kjör manna batna og verða stöðugri og byggð t.d. á Vestfjörðum eflist ef eitthvað er. Ég veit ekki betur en að landsbyggðin hafi búið við árvissa hnignum síðastliðin tuttugu ár- það er ekki hægt að gera ver.