Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Reiði, gremja og sorg og brostnir draumar!
17.6.2009 | 22:05
Ég finn til með þessum landa mínum sem rústaði húsinu sínu á þjóðhátíðardaginn. Þessi maður var að láta draum sinn rætast að byggja hús yfir sig og fjölskyldu sína. Við þekkjum þennan draum. Það má vel vera að hann hafi tekið of hátt lán, hefði átt að gæta að sér. En allt látæði samfélagsins sagði honum að þetta væri í lagi.Stjórnmálamenn, útrásardólgar og fréttablöð þeirra lofuðu og prísuðu ástandið og þegar þeir vissu betur reyndu þeir að leyna og blekkja (og bjarga eigin skinni). Þessi maður er því fórnarlamb, eitt af ótalmörgum. Það er mikil reiði, gremja og sorg í íslensku samfélagi nú um stundir og brostnir draumar.
![]() |
Eyðilagði íbúðarhúsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ömurlegar fréttir frá Belfast!
17.6.2009 | 19:20
Ömurlegt að sjá (á Sky) hvernig hópur af rasistum, glæpamönnum, hefur hrakið um eitt hundrað Rúmena mest konur og börn frá heimilum sínum í Belfast og fólkið hefur þurft að leita skjóls í kirkju. Þó að alkunnur urgur sé í fólki í Belfast út af fjölda aðkomumanna þá gengur þetta fram af flestum og gaman að sjá hvað stjórnmálamenn fordæma þetta glæpsamlega athæfi af miklum þunga. Það getur skipt máli um þróun samfélags að hafa stjórnmálamenn með skýra hugsun og bein í nefinu. Rasistarnir verða eltir uppi og dæmdir vonandi.
Evrópusambandsaðild í aðsigi!
17.6.2009 | 17:17
Evrópusambandssinnum vex fiskur um hrygg í Noregi. Ef Írar eru ekki búnir að samþykkja Lissabonsáttmálann þá gera þeir það fjótlega. Í ljós hefur komið að andstæðingar sambandsins lugu því, ásamt öðru, að að Lissabonssáttmálinn þýddi það að fóstureyðingar yrðu að vera frjálsar. Að minni hyggju sjá æ fleirri Íslendingar að ESB aðild ásamt upptöku Evru er besta leiðin til þess að ná fram stöðugleika hér á landi, til þess að ungt fólk ílendist hér, til þess að varðveita sjálfstæðið. Nægilega margir Sjálfstæðismenn munu sitja hjá til þess að umsókn frá okkur fer í sumar. Forysta Framsóknar er hins vegar að mála sig út í horn með gífuryrðum. Hinn evrópusinnaði flokkur Halldórs Ásgrímssonar er orðinn neikvæður og hefur snúið höfðinu inn til dala í stað þess að líta til hafs.
Kalt í fleiri en einum skilningi!
16.6.2009 | 11:18
Það var alltaf kalt á 17. júní. Ég var leiddur á sokkabuxum niðrí bæ með íslenskan fána og ískraðist þar um í kuldagjólu þar til ég fékk að fara til ömmu minnar sem bjó í Unuhúsi og gaf mér kakó. Vorið á Íslandi veldur iðulega vonbrigðum. Þessi vonglaða þjóð lítur til vorsins með bjartsýnum hug (líkt og hún sé að fara að horfa á íslenska landsliðið í fótbolta) og rekur sig alltaf á það sama. Á Íslandi er kalt. Því miður er kalt í fleiri en einum skilningi hjá mörgum þetta vorið.
Stjórnsnilld Jóhönnu Sigurðardóttur
15.6.2009 | 14:36
Jóhönnu Sigurðardóttur og ríkisstjórn hennar er að takast að búa þannig um hnútana að það verður enginn pólitískur ávinningur að því að bregða fæti fyrir ESB umsókn. Mikill meirihluti Íslendinga vill, tel ég, búa við eðlilegt pólitískt samband við meginland Evrópu. Vill geta hindrunarlaust keypt þaðan vörur og flutt þaðan vörur. Vill hindunarlaust geta flutt til meginlandsins, starfað þar og fjárfest. Og ég tel sömuleiðis að drjúgur meirihluti Íslendinga sé á þeirri skoðun að Icesave samkomulagið sé nauðsynlegt ef við ætlum ekki að lifa í einhverju barbaríi hér til eilífðarnóns. Það mun enginn fitna pólitískt á því að fella Icesave samkomulagið enda yrðum við þá á ömurlegum byrjunarreit. Stóryrtar yfirlýsingar Sigmundar Davíðs og Eyglóar Harðardóttur um landráð, voðaverk og ánauð vekja furðu. Það er ekki að sjá að þau tali fyrir hæglátan, ábyrgan bændaflokk.
Blómaskoðunarferð í Skaftafelli
15.6.2009 | 11:42
Ég var farinn að taka efnahagsumræðuna svo nærri mér að ég brá mér í blómaskoðunarferð í þjóðgarðinn í Skaftafelli með engum öðrum en Hálfdáni Björnssyni á Kvískerjum. Það var satt að segja meiri háttar upplífun þó að það væri rigning allan tímann og maður yrði rennandi blautur jafn vanbúinn og maður er alltaf. Gengið var austur með hlíðinni áleiðis að Skaftafellsjökli og Hálfdán strollaði út fyrir stíg á tveggja mínútna fresti og við á eftir inn í rennvott kjarrið og fræddumst um nafngiftir blómanna og kenningar um uppruna nafnanna. Náttúran fær annan blæ þegar augu hins merka náttúrufræðings hjálpa okkur til að skynja hana. Þessi náttúruskoðunarferð var að undirlagi þjóðgarðsins en þar ræður nú ríkjum Regína Hreinsdóttir sem er á myndinni með Hálfdáni Þar sem þau standa með börn fyrir framan sig. Börnin heita
Svanlaug Halla og Rúnar. Það verður enginn svikinn af því að koma í þjóðgarðinn taka þar gönguferðir með eða án leiðsögu um þetta yndislega svæði þar sem fágætar gróðurtegundir þrífast í nábýli við jökla og sanda, sannkölluð náttúruparadís. Ég tók nokkrar myndir og þarf ekki að spyrja að því að Hálfdán er þessi með regnhlífina. Á myndunum má meðal annarra kenna Jóhann bónda í Svínafelli og Brynju á Hofi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ragna: Undanþáguheimild Dyflinarsamkomulagsins verði beitt!
11.6.2009 | 11:35
Ragna er flottur Dómsmálaráðherra með hjartað á réttum stað. Nú hefur hún látið gera skýrslu um það hvort hvort endursenda eigi hælisleitendur til Grikklands á grundvelli svokallaðrar Dyflinarreglugerðar, en mjög hefur verið um það deilt. Skýrsluhöfundar leggja til að meginreglan verði sú að hælisleitendur verði endursendir til Grikklands (líkt og Danir gera) á grundvelli nefndrar reglugerðar en hvert mál verði samt skoðað vel m.t.t. þess hvort að viðkomandi muni njóta lögvarinna réttina þar og hvort hætta verði sé á því að hann verði sendur áfram til ríkis sem er á svörtum lista. Sérstaklega sé þessa gætt ef um er að ræða sjúka einstaklinga eða einsömul börn. Þarna er ágætur tónn sleginn en að mínu viti eiga íslensk stjórnvöld oftar en þau gera að beita undanþáguheimild Dyflinarsamkomulagsins þannig að Ísland beri ábyrgð á meðferð hælisumsóknar. Við eigum að standa með fólki eins og kostur er. Og eitt: Í skýrslunni er margtalað um það að ,,endursenda fólk eins og um vöru sé að ræða eða bréf. Tölum frekar um að senda fólk til baka eða láta fólk fara til baka. Skýrslan: http://www.domsmalaraduneyti.is/utgefid-efni/skyrslur_til_radherra/nr/6760
Vinstri stjórnir halda illa!
11.6.2009 | 09:01
Vinstri stjórnir halda illa, því miður .Gamalkunn hættumerki sjást. Fólkið með ,,eigin samvisku stígur fram. Að baki ríkisstjórnar þarf að vera ákveðin hópmyndun, kollektív samviska. Það gerist ekki í vinstrinu. Hægri menn, einstaklingshyggjufólkið, virðist eiga auðveldara með að starfa í hóp í pólitík á Íslandi. Í þingræði hafa þeir alltaf yfirhöndina til lengri tíma litið sem kunna að starfa saman. Einu munurinn frá fyrri tíma er að fjölmiðlaumhverfið er vinsamlegra. Mogginn hefur t.d. ekki lagst í stjórnarandstöðu. Þar rífast heiftarlega þau Agnes Bragardóttir og Vilhjálmur Egilsson og Vilhjálmur vill ekki sjá hinn sjálfsagða punkt Agnesar að atvinnurekendur eiga ekki að sitja í stjórnum lífeyrssjóða.
Félagsfræði þöggunarinnar
10.6.2009 | 15:40
![]() |
Eva Joly íhugar að hætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Erum við ójafnaðarmenn Íslendingar?
10.6.2009 | 08:18
Í könnun Félagmálaráðuneytis og Mannréttindastofu kemur fram að tæplega 60% Íslendinga telja algengt eða mjög algengt að fólki sé mismunað eða það áreitt vegna kynþáttar eða þjóðernis. Fjórðungur telur sig hafa orðið vitni að mismunun eða áreitni vegna þjóðernis eða kynþáttar. Fjórðungur telur mismunun vegna trúar eða trúarskoðunar algenga eða mjög algenga.
Þó að þetta séu ívið lægri tölur en í löndum í norðanverðri Evrópu þá er þetta alvarleg vísbending um það að ekki sé, í þessum efnum, allt eins og það ætti að vera hjá þjóð þar sem mikill meirihluti fólks vill án efa lifa í samfélagi þar sem mismunun af ofangreindum ástæðum er ekki liðin.
Í þessu samhengi er eðlilegt að vekja athygli á skýrslu eftirlitsstofnun Evrópuráðsins ECRI sem hefur það verkefni að ráðleggja ríkisstjórnun um leiðir til að vinna gegn mismunum sem stafa af kynþáttafordómum. ECRI hefur vakið athygli ríkisstjórnar Íslands á því að lagarammann þurfi að styrkja bæði refislöggjöf og almenna löggjöf og fræða með beinskeyttari hætti en nú er bæði nemendur og kennara um kynþáttafordóma og hvernig mismunun þrífst í skjóli þeirra.
Við höfum ekki sinnt þessum málum nægilega og fáum að óbreyttu skömm í hattinn þegar eftirlitsstofnunin kemur hingað aftur 2011. Í uppbyggingu nýs samfélags er það verðugt markmið að útrýma kynþáttafordómum og mismunun vegna þeirra.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)