Enn af systkinunum á Kvískerjum!
9.6.2010 | 15:00
Í þessu skrifi mínu um hringþeytingu mína hefur mér ekki tekist að móðga neinn en var hissa á sjálfum mér að setja ekki Þórbergssafnið í flokk með steinasafni Petru, Fuglasafni Sigurgeirs og Byggðasafninu á Skógum. Það ætti enginn að fara hring um eyjuna án þess að reka út álkuna á þessum fjórum stöðum. Þá tókst mér að gleyma Ara Björnssyni þegar ég taldi upp hin merku systkini á Kvískerjum. Að ég skyldi ekki fletta þessu upp sýnir bara hvað ég held að ég sé vel að mér en er ekki.. með sama hætti misnefndi ég Benedikt bróður þeirra Steinþórs og Þórbergs og kallaði Stein sem var afi þeirra bræðra. Sváfnir Sveinbjarnarson sem var lengi sóknarprestur á Kálfafellsstað í Suðursveit (og síðar á Breiðabólstað í Fljótshlíð) benti mér á þessi glöp. Ég leyfi mér að taka upp úr óprentuðum minningum hans þar sem hann talar um systkinin á Kvískerjum.
,,Öll voru systkinin vel að sér um almenna þekkingu - og þá alveg sérstaklega í því sem
sneri að jarðfræði og gróðurfari umhverfisins. En það sem sérstaka athygli vakti var
sú verkaskipting eða sérhæfing sem ríkti á flestum sviðum heimilisstarfa, fræða og verk-
mennta. Systurnar, Guðrún eldri og Guðrún yngri, kunnu svo til allra verka í matar-
gerð og geymslu, sem og í móttöku og viðurgjörningi við gesti og ferðafólk, að uppfyllt
hefði ýtrustu kröfur sem seinni tíma ferðaþjónusta gerir til stjórnenda og starfsfólks.
Létt var þeim einnig um að fræða ferðafólk, svara spurningum og leysa úr hverjum
helst vanda sem að höndum bar. Gestrisni og umhyggjusemi var þessu fólki inngróin.
Flosi var elstur bræðranna og sérgrein hans var kunnátta og færni í tungumálum flestra
nágrannaþjóða. Auk norðurlandamála, ensku og þýsku, las hann einnig frönsku og
finnsku. Hann mun hafa annast bréfaskipti við erlenda fræði- og vísindamenn, auk þess sem eftir hann liggja einnig vandaðar ritgerðir, m.a. um jökla- og jarðfræði.
Ari var næstelstur og hafði með höndum stjórn búskaparins á Kvískerjum. Hann var
vel lesinn í búvísindum hvers konar og átti góðan bókakost um þau efni, enda fræða-
sjór um málefni bænda og búskapar. Hinir bræðurnir unnu að búskapnum undir hans
stjórn eftir því sem þörfin kallaði.
Sigurður var næstur í aldursröð og hann var sagnfræðingurinn og fræðagrúskarinn í hópnum. Hafði aflað sér mikillar þekkingar á sögu héraðsins allt frá landnámi, svo og
persónusögu og ættfræði sveitunga sinna og héraðsbúa. Hann hafði og stundað atvinnu
sem ýtustjóri, einnig í öðrum landshlutum, - og einnig grafið eftir heimildum, bæði af fornmenjum í jörðu og á skjalasöfnum í höfuðborginni og víðar. Hann var einnig mjög virkur í félagsmálum sveitar og héraðs.
Ingimundur var veiðimaðurinn í hópnum, kunni vel að fara með skotvopn, sem og
veiðitæki í vötnum, bæði fyrir fisk og sel. Þau störf voru stunduð af hófsemd og virð- ingu fyrir lífríki náttúrunnar, hvort sem matfanga var aflað eða vargi haldið í skefjum.
Helgi var smiður og tæknimaður heimilisins. Lagtækur vel og útsjónarsamur, enda full þörf á slíkum hæfileikum, þar sem ekki var til annarra að leita sökum fjarlægða og tor-
leiðis. Hann smíðaði jafnvel heimilistæki, svo sem þvottavél, eftir eigin uppdráttum og útreikningum.
Hálfdan var fugla- og skordýrafræðingur og safnari, talinn standa í fremstu röð hér-
lendra vísindamanna á því sviði. M.a. fenginn til að taka þátt í leiðangri til Grænlands
til að rannsaka lífríkið á þeim slóðum, auk mikilvægra starfa og rannsókna á þessu
sviði hérlendis.
Páll bróðir þeirra á Fagurhólsmýri var tónlistarmaðurinn í fjölskyldunni. Hann var
organisti og söngstjóri í Hofskirkju og hélt uppi söngmenningu í sveitinni, einnig á
öðrum samkomum og gleðimótum.
Frásögnin er öll í þátíð því að Sváfnir er að lýsa liðnum tíma en Hálfdán og Helgi eru lifandi og búa á Kvískerjum. Já, þetta var og er indæl tíð.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.