Það munar um Ingibjörgu Sólrúnu

Það verður gaman að fylgjast með stjórnmálum á næstunni þó ekki væri
nema vegna þess að Steingrímur J. Sigfússon og Guðni Ágústsson eru
snillingar í orðræðu pólitískra vígaferla. En mér mislíkaði hvernig
Guðni réðist að Ingibjörgu Sólrúnu í ræðu sinni. Hún klauf ekki
Kvennalistann, eins og hann hélt fram.  Hún eyðilegði ekki
R-listasamstarfið, eins og hann leyfði sér að fullyrða. það var hins
vegar hneyksli hvernig Framsóknarmenn og Vinstri Grænir komu fram þegar
hún kaus að fara í fimmta sætið í Reykjavík suður forðum sem þá var
ekkert nema líklegt varamannssæti.  Þar fóru þeir offari,
sennilega af því að Ingibjörg er kona.  Hún er sem betur fer komin
á fullt skrið aftur, réttu megin á sínu hrosssi.  Ég fagna því
vegna þess að ég hef tekið eftir því að það munar um Ingibjörgu 
þar sem hún fer....til hins betra.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Ég er sammála þessu öllu, nánast hverju orði, en fannst samt Steingrímur flottastur í kvöld.

María Kristjánsdóttir, 31.5.2007 kl. 21:27

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

ég þarf að bæta við þetta, var að hlusta á moggabloggarann Guðfríði Lilju. Hún er best, hefur ástríðu, - ekki pólitíkusarfés einsog Ingibjörg er því miður komin með.

María Kristjánsdóttir, 31.5.2007 kl. 21:55

3 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Við erum sammála um margt!  B

Baldur Kristjánsson, 31.5.2007 kl. 22:21

4 Smámynd: Baldur Kristjánsson

...en, ég held að Guðfríður Lilja sé efnileg og þá kemur að því að hún setur upp svokallað pólitíkusarfés....andlit taflmannsins, konunnar reyndar.

Baldur Kristjánsson, 31.5.2007 kl. 22:25

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Laukrétt Baldur, mér fannst Guðni bara í afleitu jafnvægi og dældi endalausu bulli í allar átti. Var greinilega að reyna að vera fyndinn, eins og honum tekst nú oft. Mér þótti hann líka ansi skorinorður, með réttu eða röngu, í garð "félaga" sinna í andstöðunni....Held honum láti illa að vera í stjórnarandstöðu sem er vont mál fyrir hann því ég held að þar verði hann næstu...???8 árin??12 árin??

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 31.5.2007 kl. 22:38

6 Smámynd: Viðar Eggertsson

Það á ekki af Framsókn að ganga! Nú hefur hún neyðst til að sýna sitt rétta andlit: Guðna! Mér fannst hann með ólíkindum í umræðunni. Gamaldags póltíkus sem lætur fjúka það sem honum finnst skemmtilegt frekar en rétt, en það versta er að það sem hann hélt að væri skemmtilegt, var ruddalegt og ómálefnalegt - og beinlínis rangt.

Varð fyrir vonbrigðum með steingrím. Hann sem er oft svo skemmtilegur ræðumaður, var bara núna fúll og leiðinlegur!

Er sammála þér um Ingibjörgu Sólrúnu. Hún er áhugaverðasti pólitíkus sem við eigum. Guðfríður Lilja er vonarpeningur, sönn og réttsýn. Skandall að hún komst ekki á þing. Þá hefði maður farið að horfa og hlusta á umræður frá þingi alla daga, kannski ekki gott?

Viðar Eggertsson, 2.6.2007 kl. 11:44

7 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Ég er ánægð með hve þú kannt vel að meta formanninn minn. Ég vildi að ég kynni eins vel við þinn...

Guðfríður Lilja er málefnaleg og klár kona...

Sigþrúður Harðardóttir, 2.6.2007 kl. 17:50

8 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Hvaða flokkshugsun skaust þarna inn??

Baldur Kristjánsson, 2.6.2007 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband