Af frambærilegum mönnum!
9.6.2008 | 18:53
Óskar Bergsson er einn frambærilegasti fulltrúi Framsóknarflokksins, skynsamur, jarðbundinn og hugsar áður en hann talar. Hjarta hans slær til vinstri. Það væri mjög óklókt hjá Samfylkingunni að móðga hann út af borðinu. Hallur Magnússon bloggmeistari ætti að verða kandidat Framsóknarflokkins í borginni til Alþingis enda bæði sviphreinn og tillögugóður. Hefur ótvíræðan kjörþokka. Örflokkurinn hefur ekki efni á því að sniðganga slíka talenta.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:06 | Facebook
Athugasemdir
Ég gæti sem best trúað því að Samfylkingarfólk ætti að fara varlega í að hreykja sér á kostnað Framsóknar. Nú liggur það ljóst fyrir að Samfylkingin hefur tekið við hlutverki Framsóknar sem hækja til allra verka Sjálfstæðisflokksins m.a. að halda áfram að brjóta mannréttindi á íslenskum sjómönnum.
Sigurjón Þórðarson, 9.6.2008 kl. 20:26
Það er verst Sigurjón að þeir sem eru á móti þessum mannréttindabrotum hafa engan valkost. Kv. B
Baldur Kristjánsson, 9.6.2008 kl. 20:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.