Ofsóknirnar á hendur Roma fólkinu halda áfram!

Þeir fordómar sem Roma fókið hefur orðið að þola af ítölskum yfirvöldum eru þeim til skammar. Beint og óbeint er Roma fólkið stimplað sem glæpamenn af málsmetandi mönnum í ríkisstjórn úr Norðurbandalaginu.  Roma eru handteknir og þeir fluttir fyrirvaralaust úr landi (þrátt fyrir það að vera ESB borgarar en allur gangur er á því hvort þeir hafa sinnt skráningarskyldu).  Vísað er í nýsett lög. Tekin eru fingraför af börnum og fullorðnum líkt og gert var á tímum nasista í Þýskalandi. Ofsóknir á hendur Roma, bæði Roma frá Rúmeníu og ítölskum Roma ríkisborgurum fara dagvaxandi. Þau lífskjör sem margir Roma búa við eru fyrir neðan allt velsæmi. Andúð á innflytjendum almennt fer vaxandi á Ítalíu og það bitnar örugglega á mönnum sem koma frá Íslandi í leit að pólitísku hæli.  Þannig er nú það.  Og íslenskir fjölmiðlar tala hver í kapp við annann um sígauna þó að alveg ljóst sé að þessar manneskjur vilja láta tala um sig sem Roma fólkið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Þetta minnir óneitanlega á upphaf seinni heimstyrjöldina í þýskalandi ekki satt?

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 4.7.2008 kl. 10:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband