Flottur Jón Baldvin !

Jón Baldvin flottur. Mælskur, fróður, snjall greinandi. Skemmtilegasti og gáfaðasti stjórnmálamaður seinni ára.  Sennilega sá sem stenst best alþjóðlegan samanburð.  Hinn pólitíski rógur hefur aldur Jóns í flimtingum. Of gamall?  Alls ekki.  Jón Baldvin er akkúrat að komast á besta pólitíska aldurinn. Elliær, segir rógurinn einnig.  Ha!  Það væri betur að yngri stjórnmálamenn væru jafn andlega snarpir. Áfram Jón Baldvin. (Yrði flottur varaformaður á eftir Ingibjörgu).
mbl.is Ingibjörg Sólrún ekki að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Baldur

Jón Baldvin hefur alltaf verið flottur. Hann er líka án efa með gáfaðri stjórnmálamönnum okkar. Og hann er einnig stjórnmálamaður sem maður þarf ekki að skammast sín fyrir á erlendri grundu. Heimsmaður. En eins og guðfræðingar vita flestum öðrum betur er gæfan ekki alltaf förunautur gjörvileikans. Pólitískur ferill Jóns hefur ekki verið með sama glæsibrag og maðurinn sjálfur. Jón er ekki of gamall til þess að taka þátt í stjórnmálum. Hann er heldur ekki elliær. En hans tími í pólitík er einfaldlega liðinn. Það er slæmt fyrir hann og Samfylkinguna að hann skuli ekki gera sér grein fyrir því. (Gamall félagi hans, sem er sama marki brenndur, er nú að múra sig inni í Seðlabankanum).

Halldór Sverrisson (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 21:27

2 Smámynd: Eysteinn Þór Kristinsson

Flottur! Nei! Veruleikafirrtur! Já!

Eysteinn Þór Kristinsson, 14.2.2009 kl. 21:36

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hefði Jóni forseta Sigurðssyni þótt eitthvað "flott" við það, að áberandi Íslendingur á 21. öld ætti eftir að hafa það sem einhverja sína helztu stefnu að framselja áunnin fullveldisréttindi Íslands til meginlands Evrópu á ný? Segðu mér annan betri, Baldur!

Jón Valur Jensson, 14.2.2009 kl. 21:52

4 identicon

Flottur, mælskur, fróður, snjall, -- skemmtilegastur, gáfaðastur

(breitti vatni í vín, lífgaði fólk frá dauða ??)

Kæri Baldur,  ég ætla bara að vona að (elli) eða einhver önnur æri hafi ekki tekið sér bólfestu í þér.

 Bestu kveðjur.

Haddi.

Halldor H. Hilmarsson (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 22:45

5 Smámynd: Guðmundur Björn

Þú gleymir önugur gamall karl.  Já fólk getur verið staurblint á Íslandi í dag.  Það sannaðir þú með þessum skrifum.

Guðmundur Björn, 14.2.2009 kl. 23:34

6 identicon

gamall?  thad er eitthvad ad ykkur, thad erflestir velthenkjandi pólitíkusar á hans aldri og eldri

Hallgrímur (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 23:55

7 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Jón Valur, þú ferð með bull og staðlausa stafi um ESB. - Sæmra væri þér að segja satt.

Já Jón Baldvin, er flottur og trúr sannfæringu sinni, segir það sem aðrir þora ekki.

Helgi Jóhann Hauksson, 15.2.2009 kl. 04:51

8 Smámynd: Ólafur Als

Sammála þér Jón Valur. Sjálfbirgingsháttur J.B. virðist hafa smitast yfir á aðdáendur hans.

Ólafur Als, 15.2.2009 kl. 09:49

9 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Jón er vel greindur (og alltaf vel greiddur) og mælskur. En er eftirspurnin í samræmi við framboðsyfirlýsingu hans? Ég er evrópusinni og met Jón fyrir framlag hans á því sviði. Einnig hefur hann loks séð ljósið í málefnum Palestínu. En hann gerir engum gagn með þessu nýja útspili. Síst sinni eigin pólitísku arfleifð.

Hjálmtýr V Heiðdal, 15.2.2009 kl. 11:51

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Helgi Jóhann, hvað sagði ég ósatt um Evrópubandalagið?! Líttu aftur á innleggið, og hættu svo sjálfur að skrökva í fegrun þinni á þessu tröllabandalagi sem Jacques Delors vildi gera að "Großmacht"!

Jón Valur Jensson, 15.2.2009 kl. 13:53

11 identicon

Já Jón Baldvin er sannarlega skarpur greinandi og það svíður mörgum, eins og m.a. kemur fram í sumum athugasemdum hér. Hvort tími hans í stjórnmálum mun koma að nýju er svo annað mál - að mínu mati er hlutverk hans frekar "mentor" þeirra sem reiðubúnir eru að taka upp merki nútímalegrar jafnaðarmennsku í íslenskum stjórnmálum.

Reinhard Reynisson (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 13:57

12 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Jón kemur af stað sundrungu og leiðindum, þá gleðjast hægri menn. Hann er að vinna fyrir þá með þessu.  Er hann ekki búinn að gera nægan óskunda með hægri sveiflunni þarna í denn?

Þórdís Bára Hannesdóttir, 15.2.2009 kl. 14:01

13 identicon

Ég er gamall samflokksmaður Jóns Baldvins, en mér var ekki skemmt að hlusta á hann í fréttum Sjónvarps í gær.  Ræða hans var óvina fögnuður og hljóta andstæðingar Samfylkingarinnar að hafa fagnað við ræðu hans. Jón átti drýgstan þátt í því að við Íslendingar gerðumst aðilar að EES á sínum tíma og eins og hann hefur útskýrt í ágætri blaðagrein varð hann að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn til að koma því í gegn, þar sem Framsókn og Alþýðubandalag snerust gegn því máli en nú vilja allir Lilju kveðið hafa. Það er lífsspursmál fyrir þessa þjóð og framtíð hennar að við göngum til liðs við ESB ríkin og tökum hér upp alvöru mynt. Til þess þurfum við Evrópusinnar að snúa bökum saman og framlag Jóns í gær var ekki til þess. Þvert á móti er hann að skapa óeiningu í þeim flokki sem vill að við göngum í ESB og get ég séð fyrir mér Ragnar Arnalds og aðra þjóðrembumenn núa saman höndum af ánægju, þeir fitna á fjósabitanum

Kristján E.Guðmundsson (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 14:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband