Vel mannaður Samfylkingarbekkur!
16.3.2009 | 15:04
Að fundi loknum var hersingin með Íslendinginn í broddi fylkingar leidd út á Íslandstorg og hann látinn lesa áletrunina á skildinum eins og hún hljómar á Íslensku. Það er gott að vera Íslendingur í Eistlandi en Ísland var var eins og við vitum fyrsta landið sem viðurkenndi sjálfstæði Eistlands árið1991, 22. ágúst. Ég hef áður ekki fengið að boga leigubíl í Tallin vegna þessa.. Háskólaprófessor bauð mér í mat gegn því að ég kenndi honum að bera fram nafnið Jón Baldvin Hannibalsson. Hér skal fullyrt að Ísland hefði ekki haft þor í að vera í farabroddi þjóða ef ekki væri fyrir það að Baldvin var utanríkisráðhera á þessum örlagatímum í sögu þjóða. Og þeir gátu ekki notað hann í Samfylkingunni í Reykjavík. Svakalega er þar vel mannaður bekkurinn.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta stappar nærri geðveiki.
JK (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 16:03
Ég hefði kosið Jón Baldvin og undrast ákvörðun Samfylkingarfólks.
Hilmar Gunnlaugsson, 16.3.2009 kl. 20:12
Líklegt er að hann hafi fengið refsingu fyrir formannsmálið. Það er varla mögulegt að fólk hafi ekki séð mannkosti hans, reynslu og þekkingu.
Gunnlaugur B Ólafsson, 21.3.2009 kl. 19:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.