Alhæfingarpytturinn!

Fríða Björk Ingvarsdóttir skrifar Ljósvakann í Mbl í dag, er að fjalla um útvarpsmessur og dettur í alhæfingarpyttinn og segir:

 

,,Tónninn í prestum landsins er þó nokkuð sem fer sífellt meira í taugarnar á Ljósvaka.  Það er eins og þeir séu alltaf að prédika yfir börnum. Eins og þeir þurfi alltaf að draga seiminn –noti hreinlega gamaldags og þreytandi hljóm við að koma orðum sínum á framfæri”

 

Við hér í Ölfusinu könnumst ekki við svona presta og frábiðjum okkur svona alhæfingar.

 

Hún hefði t.d. getað sagt. Prestar sem valdir eru í útvarpsmessur (einkum nágrannar hennar í Reykjavík) eru svona og svona ef henni finnst þeir vera svona og svona.  Amen


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband