Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hitti því miður ekki Dalai Lama!

Ég hef því miður ekki átt þess kost að hitta Dalai Lama og enginn á hans vegum hefur heldur haft samaband við mig.  Ég er í raun og veru hálf feginn því að þar með losna ég við óþægindi af hálfu kínverska stjórnvalda.  Annars er mér hlýtt til Tíbetska búddans og kann að meta kenningar hans um þýðingu jákvæðs hugarfars.  Þær hafa ratað inn í aðra hverja sjálfshjálparbók í veröldinni.  Ég fylgdist grannt með flótta hans frá Tíbet yfir til Nepals held ég í fréttum Ríkisútvarpsins árið 1959 minnir mig sem sagt fyrir sléttum 50 árum. Dalai Lama var þá á flótta í fjallaskörðum milli Tíbets og Nepal dögum og jafnvel vikum saman með kínversk stjórnvöld á hælunum. Það spurðist ekki til hans dögum saman. Ríkisútvarpið gerði þessu mjög góð skil. Þessi fréttaflutningur höfðaði mjög til barnsins og sennilega hámark þeirrar spennu sem ég upplifði sem barn fyrir tíma tölvuleikja.  Hvort sem þetta hefur orðið til þess að ég er sá andlegi leiðtogi sem ég er skal ósagt látið.


Í tilefni af komu Dalai Lama!

Dalai Lama og þeir Tíbet búddar boða jákvæðni.  Þeir kenna að maðurinn eigi að temja sér að hugsa hlýtt til annarra. Neikvæðni fari illa með líkamann. Jákvæðni fer vel með heilsuna. Í þokkabót geta jákvæðir straumar haft áhrif á fjendur manns og virka því á heiminn. Hógværð og nægjusemi eru ríkir þættir í kenningu þeirra og lífsstíl. Tilveran er órjúfandi heild. Hið andlega hefur áhrif á hið líkamlega. Búddinn er afslappaður.  Byltir ekki veröldinni með látum eða stríði. Þeir eru dæmdir til að tapa fyrir valdagráðugum kommúnistum og gráðugum stessuðum kristnum kapitalistum.  Hið góða sigrar yfirleitt ekki þó það sé kenning bæði búddista og kristinna. Það sigrar að lokum væri jákvæð afstaða búddista og kristinna.


Framlag okkar Rúnars til kreppunnar!

Annað sinn í vetur sem hjóli sonar míns, Rúnars, er stolið.  Fyrst var það blátt og fallegt svo var það rautt, stílhreint og töff enda drengurinn orðinn sjö ára. Hjólinu var stolið fyrir utan skólann. Upp úr mér valt þegar við vorum að leita: Ég ætla bara vona að hjólið komi sér vel hvar sem það er.  Sá stutti fékk hugljómun þar sem hann sat og syrgði hjólið: Pabbi, þetta er bara okkar framlag til kreppunnar!!

Kreppan er börnum hugleikin. Ég hef tekið eftir kvíða í hugskoti þeirra. Þau ræða þetta í sínum hópi og útskýra margt sem á vegi þeirra verður með kreppunni. Upp úr þeim velta líka setningar sem sýna ástandið á heimilum þeirra. Gerum allt sem við getum til þess að vernda börnin.


Sauðburður langt kominn- börnin enn í skóla!

Enn einn góðviðrisdagurinn virðist ætla að kveðja sér hljóðs hér á Suðurlandi, sauðburður er langt kominn og enn eru blessuð börnin í skóla.  Hvernig væri að stytta skólaárið. Börn fara á mis við vorið.  Það er kjánalalegt hér í sveitinni,. Við högum okkur eins og stórborgarbúar.  Skólinn var lengdur án þess að námsefni væri bætt við. Það ætti að hætta skólahaldi um miðjan maí, senda sem flest börn í sveit.  Bændur gætu haft tekjur af því að taka við börnum. Önnur gætu leikið sér.  Fleirri gætu fengið vinnu við það hjá sveitarfélögum að skapa sem besta aðstöðu sem slíks.


Hlýjar kveðjur til Sjálfstæðisflokksins!

Afmæliskveðja mín til Sjálfstæðisflokksins hefur farið illa fyrir brjóstið á nafnlausu strákunum sem hafa tekið sér það hlutverk að ráðast að þeim sem gagnrýna flokkinn.(amx.is).

Málflutningur þeirra sýnir að þeir hafa þrifist í óhollu pólitísku andrúmslofti.

Þeir hóta þjóðkirkjunni!!

Þeir reyna að grafa undan þeim sem skrifaði pistilinn!!!

Þeir draga rangar ályktanir um tilvistarvanda Sjálfstæðisflokksins!!

Þetta eru (sjálfskipaðir) varðhundar öflugasta fokks lýðveldisins!!!
þetta er óþægilegt.!

Það versta er samt að þeir eru húmorslausir!!!

Oft hef ég gagnrýnt Framsóknarflokkinn og Vinsti Græna. Aldrei fengið þöggunarviðbrögð.

Og þetta er nafnlaust!!!!!

Ég sendi Sjálfstæðisflokknum hér með hlýja afmæliskveðju. Það er margt gott um þann flokk að segja og þar er margt indælisfólk. Vitaskuld.  Flokksins helstu mistök eru að hafa alið upp svona stráka sem reyna að þagga niður í öðrum.


Er ekki kominn tími á Sjálfstæðisflokkinn?!

Eins og fram hefur komið í fréttum er Sjálfstæðisflokkurinn 80 ára um þessar mundir.  Ég spyr:  Er ekki nóg komið? Flokkar eru nefnilega eins og manneskjur.  Þeir fara að hiksta komnir um áttrætt. Þeir eru flottir á mótunaarskeiði sínu og velmektarárum taka með sér dýrmæta reynslu inn í elliárin en margur óþarfinn er líka í farangrinum, gömul klíkubönd, ættir og hópar sem hafa hreiðrað um sig, gamlar syndir sem fylgja og þá má nefna versta einkennið. Flokkurinn fær stöðu hjáguðs, flokksblinda magnast.

Þegar svona er komið verður stöðugt erfiðara að þrífa, mosi safnast í hornin niðri, kóngulóarvefir í hornin uppi.  Það er eðlilegt að leggja gamla flokka niður þegar svona er komið og stofna nýja(í nýjum herbergjum) með skýrari tilvísun í snarbreyttan heim.

Ég beini þessu ekki neitt sérstaklega að Sjálfstæðisflokknum.  Alþýðubandalagið þekkti sinn vitjunartíma, sömuleiðis Alþýðuflokkurinn. Flokkarnir sem stofnaðir voru á rústum þeirra flokka eru miklu heilbrigðari og betri en úrsérgegnir forverar þeirra enda fara þeir nú með stjórn landsins.

Og Framsóknarflokkurinn er orðinn óþarfur, enda níræður og hans helsta slagorð er að hann sé snarbreyttur. Hann er þó ekki breyttari en svo að hann heldur aðaleinkenni sínu enda breyta níræðir sér sjaldan.  Einkenni hans er: Það veit enginn hvað hann er að kjósa þegar hann kýs Framsóknarflokkinn. Með eða móti.....(fyllið inn, hér má setja hvaða málefni sem er).

Allir þessir flokkar voru góðra gjalda verðir á sínum tíma. Og Sjálfstæðisflokkurinn hefur hafið niðurferðina, er nú bara miðlungsflokkur, má muna glæstri tíð.


Afskekktur pylsuvagn!

Er afskekktasti pylsuvagn landsins í Selvogi? Eða segir maður pulsuvagn? Pylsusvagninn hennar Guðrúnar Tómasdóttur í Götu er búinn að vera þarna í mörg ár. Hún er hér í dyrum. Í pylsuvagninum má einnig fá handverk og annað smálegt. Selvogurinn er annars miðja vegu við suðurströndina milli Þorlákshafnar og Krýsuvíkur.  Þar er fábýlt.  Í Selvoginum er mesta áheitakirkja landsins, kirkjan á ströndinni, kirkjan við hafið, Strandarkirkja.  Það er gott að koma í Strandakirkju. Bæði kirkjan og pylsuvagninn eru opin alla daga.hofnin_og_strondin_007.jpg

Vorhátíð í Þorlákshöfn

Vordagur 2009 018Ásgeir og ÁsgerðurVið vorum að reyna að halda vor í dag hér í Þorlákshöfn.  Bæði var vorhátíð í Leikskólanum og svo Kjörísmót Knattspyrnufélagsins Ægis á gervigrasinu. Ég skrapp út og tók nokkrar myndir sem sýna yfirleitt hamingjusamt fólk þó að allhvass kirkjuvindur hafi staðið á völlinn gert leikmönnum erfitt fyrir og kulvísum foreldrum.  En allt var þetta nú innan ágætra marka. það var bjart og fallegt. Kirkjuvindur er austlæg hafgola og stendur þá af kirkjunni beint á völlinn.  Ég kenndi þarna Skallagrímsmenn (neðst til hægri þar er Elínborg Sturludóttir prestur í Stafholti ásamt föruneyti sínu)), Fylkismenn, Vestmanneyinga, ÍR inga, HVordagur 2009 014ellubúa, Hvergerðinga og Ægismenn (neðst til vinstri).  Fótboltamenn og foreldrar hvaðanæfa. Sumarið er að koma og meginverkefni margra foreldra að elta sparkviss börn sín um allar trissVordagur 2009 009ur. Myndin efst til hægri sýnir leikskólastjórann okkar Ásgerði og Ágeir sem er ein aðalsprautan í Björgunarsveitinni. Fleiri myndir inn á www.kirkjan.is/thorlakskirkja

Strandarkirkja, kirkja vonarinnar!

strandarkirkja_098-150x150_851992.jpgÞegar Íslendingar ferðast um land sitt í sumar er upplagt að koma við í Selvoginum og heimsækja Strandarkirkju.  Strandarkirkja er kirkja sjómanna, kirkja alþýðunnar, kirkja vonarinnar. Hennar er fyrst getið í Kirkjuupptalningabók Páls Jónssonar biskups í Skálholti en sá var á fótum um aldamótin 1200.  Helgisögnin segir ungur bóndasonur úr uppsveitum Árnessýslu hafi ásamt skipshöfn sinni verið að koma frá Noregi með við til húsagerðar. Þegar þeir voru komnir nær landi brast á ofsavestrandarkirkja_001-150x150_851993.jpgður, þoka og dimmviðri og þeir héldu að þeir væru að farast. Ótti manna við hafnlitla suðurströndina hefur verið mikill bæði fyrr og síðar. Þeir hétu því að byggja kirkju næðu þeir landi þar sem þeir næðu landi. Það skipti engum togum að við þeim blasti ljós, þeir réru á ljósið, skyndilega varð allt kyrrt, þegar birti af degi sáu þeir að þeir höfðu róið eftir örmjórri rennu gegnum mikinn brimgarð. Þeir reistu kirkjuna Strandarkirkju sem nú er mesta áheitakirkja á Íslandi og þótt víðar væri leitað.  Hægt er að fá meiri upplýsingar um kirkjuna á www.kirkjan.is/strandarkirkja  


Upp er runninn Uppstigningardagur!

Uppstigningadagur, blítt, fallegt, blátt veður, hlýtt. Fjörtíu dagar liðnir frá Páskum, tíu dagar í Hvíatsunnu.  Í dag varð Jesú Kristur uppnuminn til himna samkvæmt ritningunum: ,,þegar hann hafði þetta mælt, varð hann uppnuminn að þeim ásjáandi, og ský huldi hann sjónum þeirra” (Post.1:9).  Kirkjan hefur gert þennan dag að degi aldraðara sennilega í stíl við það sem gengur og gerist annarsstaðar. Mér hefur alltaf fundist þetta val svolítið kómískt. Steinólfur í Ytri-Fagradal á Fellsströnd segir á einum stað frá bónda sem var á þessum degi svo hræddur um asð verða uppnuminn eins og Guðs sonurinn að hann fór í þykka mikla frakkann sinn, fyllti stóra vasa hans af grjóti og vék ekki úr frakkanum fyrr en sól var sest. Það er betra að fara varlega.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband