Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Ísland, eins og bátur í brælu!?
20.5.2009 | 08:46

Ég hef þá skoðun, og hef lengi haft, að Ísland eigi heima meðal þjóða Evrópu. Félagslega, menningarlega, sögulega eigum við þar heima. Þess vegna eigum við að sækja um aðild að Evrópusambandinu og ganga inn ef góður samningur næst. Evrópusambandið er samstarfsvettvangur þjóða Evrópu. Við eigum, að mínum dómi, að verða þar fullgildir aðilar með tíð og tíma.
Í gangi er skelfilegur hræðsluáróður mestan part frá sama fólki sem barðist með oddi og egg gegn þáttöku okkar í EFTA og Evrópska Efnahagssvæðinu. Það eina sem gerist við inngöngu í ESB og upptöku Evru er að kjör alls almennings taka hægt og sígandi að batna og verða stöðugri og réttindi neytenda og launafólks aukast. Þá fáum við betra verð fyrir útflutningsafurðir okkar.
Með umsókn horfum við fram á veginn. Efnahagslega séð er upptaka evru ásamt inngöngu í ESB eina raunhæfa lausnin. Engin önnur lausn hefur staðist umræðu. Við eigum því í raun og veru ekkert val nema við ætlum okkar að verða um ókomna tíð fórnarlömb þeirra sem braska með krónuna. Þá verður íslenska þjóðin eins og bátur í brælu um ókomna tíð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Guðfríður Lilja hnýtir í forsætisráðherra!
19.5.2009 | 07:56
Maður hefur séð þetta fyrr. Þetta er ekki að ganga. Guðfríður Lilja hnýtir í forsætisráðherra. Stjórnin ekki tveggja vikna. Hún og Ásmundur bóndi eru öfgafullir ESB andstæðingar í stíl Hjörleifs Guttormssonar og Bjarna Harðar. Ríkisstjórnin er því innbyrðis sundurleit því að afstaðan til Evrópu er grundvallaratriði sem mótar alla stefnu í peningamálum og efnahagsmálum. Annað hvort horfa menn til ESB aðildar og Evru eða halda áfram að búa við óstöðugleika með háum vöxtum, háu verðlagi og tilheyrandi fórnarkostnaði almennings í landinu. Afleiðingin verður einangrun og fólksflótti.
Fólkið í ríkisstjórn næstu ára hlýtur að vera nokkurn veginn sömu megin á ásnum þegar kemur að afstöðunni til Evrópu.
Sammála sykurskatti!
18.5.2009 | 13:07
Sportidjótar lélegur þrýstihópur!
18.5.2009 | 11:57
![]() |
Hughes verður áfram með Man.City |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gerum ímyndina sanna!
17.5.2009 | 09:06
Þetta var sigur fegurðarinnar, hinnar óspilltu hreinu fegurðar, hin unga óspillta fjallkona sigraði í líki Jóhönnu Guðrúnar. Hreinleikinn, þar var sem blár himinninn rennur saman við bláhvítan jökulinn og hverfur í bláma hafsins, höfrungur tákn friðurnar, seglskip tákn hinnar hreinu endurnýtanlegu orku þetta var sigur hins óspillta. Ósigur þeirra sem hafa allt uppumsig, ósigur þess sem gerir út á yfirborðsmennskuna. Til hamingju með annað sætið. Verðum sú þjóð, það land sem þessi ímynd gekk út á. Gerum hana sanna. Hún gæti verið sönn.
![]() |
Ísland í 2. sæti í Moskvu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Baráttan gegn kynþáttafordómum!
16.5.2009 | 08:27
Það er með ólíkindum hvað kynþáttafordómar krauma hér í yfirborðinu. ECRI leggur mikla áherslu á kennslu gegn kynþáttafordómum ogf kynþáttamismunun. Það þurfi að kenna krökkum, unglingum, sjúkraflutningamönnum, fréttamönnum, lögreglum og dómurum hinar margvíslegu birtingarmyndir kynþáttafordóma og hvernig bregðast skuli við þeim. Þetta er lykilatriði í uppbyggingu góðs samfélags sem verður að vera laust við tortryggni, hvað þá hatur og illsku milli fólks af ólíkum uppruna. Almenn kennsla í mannréttindum dugar þar ekki. Þá þurfum við að temja okkur allt önnur vinnubrögð í móttöku flóttamanna. Á árinu 2007 gerði ECRI fjölmargar athugasemdir við þann feril hjá okkur. Ný ríkisstjórn er líkleg til þess að taka upp lög um móttöku flóttamanna og endurskoða innflytjendalöggjöfina. Innflytjendamál þurfa að vera í fastari stjórnskipunarlegri skorðum, vera t.d. sérstök deild í nýju innflytjendaráðuneyti.
(ECRI stendur fyrir European Commision against Racism and Intolerance- Sjálfstæð sérfræðinganefnd Evrópuráðsins).
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Af kirkjugaungu alþingismanna og fyrirlestri Jóhanns Björnssonar!
15.5.2009 | 09:05
Það er stillt og kyrrt og bjart í fyrsta sinn í langan tíma. Snillingurinn KK í útvarpinu. Góður dagur vonandi. Verst að Jóhann Björnsson hjá Siðmennt skuli tala fyrir engum hópi þingmanna á Hótel Borg. Þeir hefðu haft gott af því að hlýða á þennan ágæta siðfræðing. En þingmenn fara örugglega ekki að rjúfa þá hefð að ganga úr kirkju, dómkirkju yfir til Alþingis. Kristindómurinn á miklu sterkari rætur meðal þjóðar en svo.
Nú á siðferðið ekki sitt eina ból í kristninni frekar en í öðrum trúarbrögðum. Að einhverju leyti er siðferðið slegið okkur í brjóst og á rætur í skynsemi og hugsun, gagnkvæmni, hagsýni, gáfum þróast og þroskast hjá þjóðum eins og Grikkjum til forna og réttsýnt fólk á öllum tímum hefur komið auga á að mannlíf þrífst aldrei nema viss grundvallarprísíp í samskiptum manna séu höfð í heiðri.
En hinu verður ekki á móti mælt að höfuðtrúarbrögð mannkyns hafa þroskað og nært siðferðið það er að segja samúðina og réttlætið í samskiptum. Þetta eru reyndar sömu grundvallarprínsíp og Móse kom með ofan af fjallinu þannig að hin gyðing-kristna hefð kom þarna snemma inn.
Dómkirkjugangan er okkar hefð. Hefð okkar er hin kristna hefð. Trúarskynjun breytist þó milli tímabila og er miklu ,,fullorðnari nú en oft áður. Við er ekki lengur svo ,,guðhrædd en teljum ,,fallegt og jafnvel ,,skynsamlegt að trúa. Kannski er meginbreytingin þessi: Áður fyrr trúði fólk einfaldlega. Nú trúir fólk vegna þess að það telur að trúin geti fært því ýmislegt gott. Áður fyrr fór fólk einfaldlega í kirkju. Nú fer það í kirkju vegna þess að það er gott fyrir sálina.
En á öllum tímum hafa verið til guðleysingjar. Þeir hafa ekkert síður en aðrir þurft að berjast við sjálfa sig og þeir hafa ekkert síður en aðrir mótað siðferðið sem trúarbrögðin hafa þó þrátt fyrir allt átt þátt í að koma til þeirra.
Best væri ef þingmönnum hefði verið boðið upp á það að hlýða á fyrirlestur Jóhanns Björnssonar fyrir kirkjugönguna.
(myndir af og úr Strandarkirkju: kirkjan.is/strandarkirkja/
Vinstri stjórn betri fyrir dreifbýli?!
14.5.2009 | 14:52
Í Bæjarráði Ölfuss sitja eingöngu fulltrúar minnihlutaflokka á landsvísu þ.e. fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Ályktunin endurspeglar sennilega ótta margra stórra fyritækja í Þorlákshöfn sem eiga kvóta svo sem Auðbjargar, Hafnarness og Þormóðs ramma um að fyrirtækin þoli ekki fyrningarleiðina en ég gæti trúað að hagsmunir Frostfisks sem kaupir eingöngu fisk á markaði væru aðrir þó væru þeir sennilega hlutlausir gagnvart þessari fyrihuguðu breytingu.
Ályktunin er hógvær sýnist mér, þarna er beðið um viðræður og samráð. Mér er fullkunnugt um að útgerðarmenn í Þorlákshöfn meina það sem þeir segja. Þeir telja fyrirtæki sín í stórhættu ef fyrningarleiðin verður farin.
Vonandi stendur ríkisstjórnin þannig að málum að fólkið í Þorlákshöfn hafi mikla og góða vinnu til frambúðar og að skaðlausu mætti atvinnlífið hér verða töluvert fjölbreyttara.
Og vonandi temja allir sér hófsemi í orðavali bæði í umræðum og ályktunum. Allir rísi upp yfir eigin hag og ímyndi sér að þeir geti lent alls staðar á Íslandi framtíðarinnar og í öllum stöðum - hagi máli sínu og aðgerðum samkvæmt því (John Rawls).
Hitt er svo annað mál og þessu óskylt að fræðilega séð ættu vinstri stjórnir að vera heppilegri fyrir dreifbýli en hægri stjórnir. Hægri stjórnir eru líklegri til að láta markaðinn ráða en vinstri stjórnir líklegri til þess að taka fé af einum og láta annann hafa. Í þessu tilviki að flytja fé frá þéttbýli til dreifbýlis. Þetta ættu margir ,,harðir" hægri menn að athuga. Þetta er fræðilega rétt og sagan sýnir þetta líka: Dreifbýlið hefur aldrei átt eins undir högg að sækja og síðna 1990 eða þar um bil.
Útgerðarmenn myndu segja að fyrningaleiðin afsanni þessa kenningu.
(Myndirnar eru teknar af heimasíðu Ölfuss)
![]() |
Ölfuss hræðist fyrningarleiðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Yndislega óíslensk hugsun!
14.5.2009 | 08:36
Það er svipuð vegalengd og að fara frá Reykjavík til Víkur í Mýrdal að fara frá Tallin til Tartu sem er óskaplega falleg borg sunnarlega í miðju Eistlandi. Ég var búinn að vera í Tallin í nokkra daga til að ræða við embættismenn, sem eru svipaðir hvar sem þú kemur um innflytjendalöggjöf og um það hvort þeir væru nógu réttlátir við Rússana sem misstu ríkisborgararéttinn þegar þeir losuðu sig undan Sovétinu og nú var ferðinni heitið til Tartu til að kanna hvernig þeir stæðu sig á sveitarstjórnarstiginu. Glæsibíll innanríkisráðuneytisins ók okkur á lestarstöðina og síðan tók við þriggja tíma lestarferð þessa 185 kílómetra leið. Lestin var sem sagt hægfara enda frá Sovéttímanum og hún bompaði upp og niður enda teinarnir líka frá Sovéttímanum. Útifyrir mismunandi þrifalegur skógur, byggð á stangli. Það vantar ekki landið. Eistlendingar þurfa að endurbyggja allt teinakerfið sitt og lestarkerfið og búast við því að fá til þess framlag frá Evrópusambandinu.
Tartu er falleg borg. Ógrynni af fallegum byggingum gefa mannlífi notalega umgjörð. Íbúar um 99 þúsund. Þeir hafa einn borgarstjóra og fimm staðgengla hans og einn af þeim var gestgjafi minn. Ég spurði hann af hverju þeir segðu ekki eitt hundrað þúsund. ,,Það er ekkert markmið í sjálfu sér að vera hundrað þúsund. Við vorum rúmlega hundrað þúsund en eru nítíu og níu þúsund núna sagði hann. Þetta var yndislega óíslensk hugsun. Tartu er háskólaborg. Hún var og er að mörgu leyti enn miðstöð háskólamenntunar á þessu svæði í heiminum. Falleg miðaldaborg sem dregur enn að sér námsmenn hvaðanæfa. Ég sé á Wikepidíu að Hafnarfjörður er systurbær Tartu. Fallegur bær Hafnarfjörður.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Kiev - falleg borg og markvert fólk!
13.5.2009 | 10:20


Ég var settur upp á elleftu hæð í gömlu háhýsi í miðborg Kiev. Minnugur bókarinnar ,,þeir sem undirbúa sig komast af þú gætir lent í eldsvoða rannskaði ég útgönguleiðir. Eftir nokkra athugun komast ég að þeirri niðurstöðu að best væri að horfa á hótelið brenna af svölunum sem voru við herbergið og bíða eftir súpermann- svo sofnaði ég. Morgunverðurinn var upp á sextándu hæð.
Kiev er falleg borg, víðáttumikil, hæðótt, þar er gríðarlega mikið af fallegum stórum byggingum sem hýsa ráðuneyti, stofnanir, söfn. Þessar stóru, fallegu byggingar eru málaðar í ýmsum litum en það sem kemur meira á óvart: Hinar hefðbundnu blokkir sem risu í borgum kommúnistaríkjanna eru hér margar hverjar fallega skreyttar með litum og tilbrigðum í arkitektúr.
Ég flutti erindi á ráðstefnu sem ECRI (sjálfstæð nefnd á vegum Evrópuráðsins) stóð fyrir. Hálftíma erindi um skýrslu ECRI um það hvernig þeir Úkraínumenn gætu bætt löggjöf sína og framkvæmd hennar til þess að koma í veg fyrir mismunun sem stafar af uppruna manna, þjóðerni, litarhætti, trúarbrögðum og þess háttar atriðum. Ráðstefnuna sóttu um 120 manneskjur, fulltrúar yfirvalda þ.m.t. tveir ráðherrar, umboðsmaður alþingis þeirra um mismunun, hæstaréttardómarar, alþingismenn, fréttamenn, fulltrúar mannréttindasamtaka. Í umfjöllun minni var líka komið inn á umfjöllun pressunar þegar kemur að málum sem snerta útlendinga, fjallað um óábyrga stjórnmálamenn sem kynda undir elda, ólíðandi fordóma gagnvart Roma fólki, gyðingaandúð og ofbeldi sem stúdentar frá Afríku hafa mátt upplifa (nokkrir þeirra hafa reyndar ekki upplifað það heldur verið drepnir og lögreglan liggur undir því ámæli að rannsaka þau morð ekki sem kynþáttaglæpi).
Það kom mér á óvart hvað menn voru hreinskiptir í umræðum m.a. tók umboðsmaður fullum fetum undir flest það sem við (með mér var Eva Smith Asmundssen forseti ECRI) gagnrýndum eða höfðum ráðlagt. Aðrir þ.m.t. blaðamenn voru gagnrýnir. Engin þöggun þarna, enginn ótti. Allar sjónvarpsstöðvar voru við upphaf fundarins. Úkraína er flókið fjölmenningarsamfélag þar sem helmingur þingmanna hefur rússnesku að móðurmáli hinn helmingurinn Úkraínsku. Þeir virðast þó staðráðnir í því að tileinka sér leikreglur sem fela í sér að öllum verði gert jafnhátt undir höfði hvaðan sem þeir koma, hvernig sem þeir líta út, hverju sem þeir trúa. Þeir eiga auðvitað mikið verk fyrir höndum en hafa á undraskömmum tíma komið sér upp tækjum í þessu skyni. Þeir hafa t.d. í samræmi við ráðleggingar ECRI undirritað og samþykkt viðauka nr. 12 við Mannréttindasáttmála Evrópu og þar með skotið okkur Íslendingum ref fyrir rass en viðauki þessi gerir fólki auðveldara fyrir að sækja rétt sinn gagnvart innlendum dómstólum og Mannréttindadómstóli Evrópu telji það sig hafa verið beitt tilefnislausu misrétti.
Þeir sem undirbúa sig vel komast vel af.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)