Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Skuggalífhvolfið
17.2.2009 | 11:29
![]() |
Framandi lífverur hugsanlega að finna á jörðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hið félagslega taumhald!
15.2.2009 | 14:39
Siðrof er þegar viðmið samfélagsins veikjast og hverfa. Það er ekki nokkur vafi að það hefur orðið siðrof í íslensku samfélagi eins og Stefán Einar bendir á í Silfri Egils. Egill er duglegur við að draga fram fólk sem hefur gríðarlega margt mikilvægt til málanna að leggja og gerir það vel. Hefur miklu meira til málanna að leggja heldur en hinir hefðbundu álitsgjafar innanúr flokkunum og kemur á daginn að voru ekkert sérstakir og höfðu auðvitað fyrst og fremst það dulda hlutverk að hafa félagslegt taumhald á liðinu. Við hrunið slaknaði á hinu félagslega taumhaldi sem sérhvert samfélag stundar til þess að skapa reglu og festu og forðast byltingu og við þurfum að vera á verði þegar reynt verður að taka í tauminn. Við finnum þegar tekið verður í tauminn því að þá verðum við sár í munnvikunum og þögnum.
Flottur Jón Baldvin !
14.2.2009 | 21:00
![]() |
Ingibjörg Sólrún ekki að hætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvar eru hugmyndirnar um nýtt og betra Ísland?
12.2.2009 | 17:00
![]() |
Niðursveiflan meiri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nú, þegar fólkið grætur.......!
12.2.2009 | 10:03
Það liggur við að mér finnist að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að sjá sóma sinn í að bjóða ekki fram í næstu kosningum eins hrapallega og honum hefur mistekist við stjórn landsins síðustu árin. Þetta eru örugglega allt saman ágætis fólk en hefur sogið á sér nýfrálshyggjuputtann í mörg ár eins og snuð og reynir nú að leggja hvern steininn á fætur öðrum í götu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur sem leggur nótt við dag ásamt samráðherrum sínum að ná tökum á ástandinu eitthvað sem ekki gekk í eftirhrunsstjórn Geirs Haarde. En þeir ættu að sjá sóma sinn í að gefa þessari stjórn þokkalegan starfsfrið. Nú, þegar fólkið grætur, eru engir tímar fyrir ábyrgðarlausa stjórnarandstöðu. Þessir strákar því að strákar eru þetta mest, ættu að fara út á land í fiskvinnu og þrasa þar við færibandið engum til tjóns því að stjórnvitringar eru þeir ekki.
Og það sama ætti auðvitað að gilda um Framsókn. Miðað við höfðatölu ber sá flokkur mesta sök á því hvernig komið er. Nú er þeirra meginmál að sjá til þess að framtíðarseðlabankastjóri þurfi ekki að vera hagfræðingur væntanlega til þess að hann geti verið lögfræðingur eða fyrrverandi formaður eða þá búfræðingur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Stjórn Jóhönnu fær engan frið!
11.2.2009 | 18:10
Í hvert sinn þegar Sjálfstæðismenn fara í minnihluta umhverfist allt. Þeir kunna ekki við sig, eru pirraðir, valdakerfið titrar. Sjálfstæðismenn hafa undirtökin í atvinnulífinu, bankakerfinu, embættismannakerfinu, fjölmiðlum og sveitastjórnum. Allt kerfið vinnur að því að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur mistakist. Hinir flokkarnir spila með þeim á víxl. Nú spilar Framsókn með Sjálfstæðisflokkum og gerir ríkisstjórninni eins erfitt fyrir og hún þorir. Það er í raun sorglegt hve lítinn starfsfrið ríkisstjórn stjórnin fær. Fyrst og fremst er horft er til kosninga og valdahlutfalla. Hvað sem öðru leið var þjóðarnauðsyn að gefa henni starfsfrið fyrstu vikurnar. Það varð ekki!
Byggðamál 1. grein - landsbyggðin á hausnum!
10.2.2009 | 09:20
Nú er Kaupfélag Héraðsbúa farið á hausinn. Flutningar fólks á suðvesturhornið byrjuðu fyrir alvöru í upphafi 20. aldar verulega herti á þeim á tímum síðari heimstyrjaldar nokkuð hægði á þróuninni á sjötta og sjöunda áratug aldarinnar en síðan þá hefur þéttbýlisþróunin verið jöfn og örugg. Allan þennan tíma hefur landsbyggðin kveinkað sér undan þessari þróun (eins og hún komi fólki alltaf jafn mikið á óvart). Heilu kynslóðirnar hafa eytt lífi sínu í þennan harmagrát. Í hverjum einustu kosningum lofa stjórnmálamenn því að rétta við hag landsbyggðar. Það kátbroslega í þessu er að milli þess að fólk kveinar kýs það í auknum mæli flokka sem aðhyllast markaðsbúskap jafnvel frjálshyggju en hvort tveggja hugmyndafræðin byggir á því að sem styðst sé á milli neytenda eru því stjórnmálastefnur sem óhjákvæmilega leiða til þéttbýlismyndunar.
Gríðarleg orka fer í þetta vonlausa andóf.
ESB -brýnt að sækja um aðild!
7.2.2009 | 23:06
Mjög brýnt er að aðildarumræður að ESB komist aftur á dagskrá í pólítískri umræðu hér á landi. Eins og bent er á í leiðara Morgunblaðsins í dag, sunnudag, eru hagsmunir okkar mjög brýnir að ákvörðun um aðildarumsókn sé tekin fljótt. Ákvörðun um að sækja um aðild myndi ,,að öllum líkindum þegar í stað auka trú á íslensku efnahagslífi, bæði innanlands og utan, segir þar. Ástæða er til að taka undir þessa skoðun. Undanfarið hafa ESB andstæðingar leikið lausum hala með þann dæmalausa hræðsluáróður að við missum allt og töpum öllu við ESB aðild. Þetta er dæmalaus fjarstæða. Að öllum líkindum mun staða okkar styrkjast á flestum sviðum. Við eigum samleið með ríkjum Evrópu. Það er aldrei brýnna en nú að átta sig á því.
Áætlun um ESB aðild grundvallaratriði
7.2.2009 | 10:13
Flest okkar vilja búa í réttlátu og góðu samfélagi þar sem menn og konur jafnt eru frjáls til athafna og velferðarnet traust. Við viljum að áætlanir okkar um framtíðina standist. Við viljum eiga landið okkar og helstu auðlindir saman og hirða afrakstur af þeim sameiginlega. Við viljum ekki ríka flottræfla við viljum ekki ofurlaun. Við viljum aðskilnað dómsvalds, löggjafarvalds og framkvæmdavalds og svokallað gagnsæi. Við viljum ekki að skoðanir manna bitni á þeim. Við viljum að konur og menn séu jöfn fyrir lögum og reglum hvort heldur þeim er beitt af almannavaldi eða einstaklingum. Mín skoðun er sú að við náum þessum markmiðum best með þátttöku í nútíma samstarfi frjálsra og fullvalda þjóða í Evrópu bæði innan ESB og Evrópuráðsins og er í hópi þeirra að telja yfirlýsingu um þá áætlun að leita inngöngu í ESB grundvallaratriði til þess að við getum unnið okkur út úr núverandi erfiðleikum´.
Sjálfstæðismenn í réttu hlutverki!
6.2.2009 | 14:50
![]() |
Pétur Blöndal ákallar Ögmund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |