Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Sýnum manndóm -fordæmum athæfið!

Sýnum manndóm.  Stöndum með Halldóri Kristni Björnssyni.  Fordæmum athæfið.  Við viljum lifa í samfélagi þar sem menn mega gagnrýna, einnig sitt eigið fyrirtæki, undir nafni.  það á ekki að reka menn fyrir skoðanir sínar. Það á ekki að þagga niður í fólki. Viljum við fyritæki sem það gera? Viljum við þjóðfélag þar sem það er stundað?  Örvum álit, skoðanir, gagnrýni, dagsljós. Lifum í birtu upplýsingar, ekki í myrkri.

Sjónvarpsfréttahorn Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur á Mbl. ber af flestu sem maður sér í fjölmiðlum.  Hún er stöðugt með óþægilegar, óvæntar fréttir. Hennar stíll er ekki að þóknast.


mbl.is Bloggari rekinn fyrir skrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andúðin á öðrum

Andúð á ,,öðrum” fer vaxandi í heiminum.  ,,Aðrir” eru ,,öðruvísi” og þeir eru mjög eins sem ,,við” erum ekki. ,,Við “ erum ekki eins, ,,við” erum margbreytileg, hver einstaklingur er sérstakur. ,,Við” höfum nöfn hvert og eitt ,,þau” eru nafnlaus. ,,Við” sjáum heiminn í samhengi sínu, erum gáfuð tileinkum okkur góða hluti. ,,Þeir” eru múgur, gjarnan öskrandi múgur sem skilur ekki sjálfsagða hluti.  ,,Við” aðhyllumst skynsamleg og góð og umfam allt rétt trúarbrögð meðan ,,þau” aðhyllast vafasöm trúarbrögð alls óskyld ,,okkar” trúarbrögðum.” ,,Við” eru hérna í góðu landi.  ,,Þau” eru í löndum sem eru langt í burtu og þar eru stöðugt einhver vandræði.


Atvinnuleysi í Ölfusinu?!

Einhvers staðar sá ég að 80 manns væru á atvinnuleysisskrá í Ölfusi, já það var á INN sjónvarpsstöð þar sem þau voru að deila um Bitruvirkjun í þætti Óla á Hrauni bæjarstjórarnir í Ölfusi og í Hveragerði og líka spá í það hver yrði formaður Flokksins.  Ólafur Áki nefndi það að um 80 manns væru atvinnulausir í Ölfusi. Nú er það svo að atvinnuleysi er alvarlegt mál og vonandi tekst okkur að finna vinnu fyrir alla sem fyrst.

Árið 2002 var atvinnuleysi í Ölfusi. Þá komum við upp í Þorlákskirkju athvarfi fyrir atvinnulausa.  Fólk kom á morgnana, fimm, sex manneskjur stundum, lásu Moggann og Fréttablaðið, drukku kaffi, átu vínarbrauð úr bakaríi Más bakara og Önnu sem nú eru búin að selja bakaríið til Gríms bakara, frænda Benna heitins Thor., og spjallaði við hvert annað og prestinn.  Einhvern tímann kom maður og miðlaði fróðleik um ástand og horfur. Svo hætti fólk að koma – ástandið lagaðist- presturinn var aftur einn með vínarbrauðin sín.

Er áhugi fyrir því að þetta verði endurtekið? Eigum við að opna athvarf lesa Moggann og éta saman vínarbrauð? Er atvinnuleysi farið að hrjá fólk hér í Ölfusi eða er þetta lítið meira en hefðbundið atvinnuleysi ennþá? Ég vil endilega að fólk hafi um þetta samband. Maður á víst ekki að loka sig af sé manni hent heim. Ég þekki þetta reyndar sjálfur, einu sinni var mér hent heim og fór ferlega illa með sjálfsálitið.  Hafið endilega samband við prestinn eða prestinn í Hveragerði ef menn búa í Ölfusinu fyrir ofan Þurá. Þeir sem vita um einstaklinga sem eru að koðna niður af þessum sökum láti vita – í ágætu hófi á maður að skipta sér af náunganum.  Sími minn er 8980971 og netfangið bk@baldur.is


Stjórnarskráin; Vantar jafnréttisákvæði!

það vantar jafnréttisákvæði í stjórnarskrá lýðveldisins. Evrópuráðið leggur til í meðmælum frá 13. febrúar 2007 að verndarákvæði gegn kynþáttafordómum verði sett inn í stjórnarskrána.   Sú hugsun þarf að koma vel fram í stjórnarskrá að allir séu jafnir fyrir lögum og að misrétti verði ekki liðið hvort sem er vegna kyns, kynhneigðar, kynþáttar, uppruna, litarháttar, trúarbragða, þjóðernis eða nokkurs annars.  Í raun og veru er um það að ræða að taka upp viðauka nr. 12 við Mannréttindasáttmála Evrópu en þann viðauka hafa Íslendingar skrifað undir en ekki innleitt í íslenska löggjöf. Á þessari jafnréttishugsun byggjast lýðræðissamfélög vesturlanda og á henni hvílir allt starf Evrópuráðsins. Á jafnréttishugsjóninni ætti íslenskt samfélag að hvíla hvað sem öðru líður.

 


mbl.is Björg kaus að vinna að nýrri stjórnarskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórflokkurinn festir sig í sessi!

Ég óska nýju ríkisstjórninni velfarnaðar.  Vonandi tekkst henni vel til.  Vonandi sitja Framsóknarmenn á strák sínum (orðið svolítið strákagengi þar). það er augljóslega mikilvægt að ríkisstjórnin nái að koma málum sínum fram.  Ekkert er verra fyrir þjóðina en þras og pattstaða. Ég óska Jóhönnu og ríkisstjórninni alls góðs og styð hana fyrstu sporin a.m.k.

Skelfilegu tíðindin eru svo auðvitað þau að gamli fjórflokkurinn virðist vera að festa sig í sessi.


Orsending til nýs menntamálaráðherra!

Ég vil sérstaklega beina því til nýs menntamálaráðherra að beita sér fyrir því að  mannréttindakennsla verði aukin í grunnskólum, framhaldsskólum og háskólum ekki síst í lögfræðideildum.  Hugsun manna er allt of léttkeypt fyrir staðalímyndum, fólki er ætlað illt sem gott eftir útliti, uppruna, kynþætti, trú.  Þessi hugsunarvankantur liggur djúpt í þjóðarsálinni.

Það er meðal standarleiðbeininga Evrtópuráðsins að kenna börnum að hugsa ekki eftir farvegi kynþáttafordóma.  Kennsla virkar:  Margir verða betri menn á því augnabliki þegar athygli þeirra er vakin á þessu.  Eldri kona sagði mér að hún hefði aldrei hugleitt hvað væri rangt við það að hallmæla gyðingum vegna innrásarinnar í Gaza en þakkaði mér fyrir og fór umsvifalaust að hallmæla Ísraelsstjórn.

Árhundruðum saman kraumaði gyðingaandúð í Evrópu með afleiðingum sem við þekkjum öll. Víða í Evrópu er Helförin kennd sérstaklega.  Það ættum við líka að gera til þess að íslensk æska verði ekki of auðkeypt fórnarlamb nýnazistaáróðurs í heimi sem skreppur sífellt meira saman.


Tökum á gyðingahatri!

Í gær var alþjóðlegur minningardagur um helförina. Maður les um gyðingahatur við Hverfisgötu í Reykjavík – eigandi reiðhjólaverslunar segir ,,júða” ekki velkomna í verslun sína. Vonandi er hér um staðbundna heimsku að ræða. Þó kannski ekki.  Í skýrslu sinni um Ísland frá 2007 gagnrýnir Evrópuráðið að íslensk stjórnvöld aðhafist ekki þó að hatursyrði í garð gyðinga séu höfð frammi á opinberum vettvangi. Á slíku ber að taka eftir réttum lögum, fordómar skjóta rótum eins og illgresi séu þeir ekki reittir upp. 


Áhrifalitlir undirviktarmenn!

Ágúst Ólafur var sendur til þings áður en hann lauk námi.  Framsóknarmenn stunduðu þetta að senda menn á þing áður en þeir fóru í skóla. Þetta er auðvitað séríslenskt og er vottur um hnignun Alþingis.  Með tveimur undantekningum sem hétu Gunnar Thoroddsen og Eysteinn Jónsson hefur sagan sýnt að menn hafa ekkert að gera inná Alþingi fyrir fertugt. Ágætis menn verða áhrifalitlir undirvigtarmenn sé látið undan ungæðislegu frampoti þeirra.


Forsetinn- holdi klædd brúða?

Á undanförnum árum hefur þróast sú lýðræðishefð hér á landi að menn hafa einkum áhyggjur af því hver segir hvað hvenær og hvers vegna. Svo var komið að enginn þorði að segja neitt.  Skoðanir voru ekki eftirsóttar heldur einhvers konar leiðindamál. Þess vegna finnst mér gott hjá forseta vorum að úttala sig um ástandið. Hann á hiklaust að hafna því að forsetinn sé einhvers konar holdi klædd brúða.  Og ekki virðist veita af að leggja stjórnmálamönnum línurnar.

 


mbl.is Stórkostlegur misskilningur forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri grænir þrasa sig niður!

Nú er hin úrsérgegna flokkapólitík komin á fullt. Við skipum okkur í lið, verðum meira og minna dregin í okkar dilka. Sjálfstæðismenn fara að tala með sínum hætti, Samfylkingarmenn með sínum.  Og úrslitin 9. maí eru nokkuð fyrirsjáanleg.  Núverandi tjórnarflokkar tapa einhverju. Forystumenn Vinstri grænna þrasa sig niður í 20%.  Framsókn réttir lítilsháttar úr kútnum, hinir nýju forystumenn of óreyndir.  Frjálslyndir standa í stað. Ný framboð þ.á.m. framboð Lýðræðisbyltingarinnar fá 10-15% atkvæða, því miður, ekki meira, flokksræðið blívur.


mbl.is Ný ríkisstjórn í kortunum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband