Fjórflokkurinn festir sig í sessi!

Ég óska nýju ríkisstjórninni velfarnaðar.  Vonandi tekkst henni vel til.  Vonandi sitja Framsóknarmenn á strák sínum (orðið svolítið strákagengi þar). það er augljóslega mikilvægt að ríkisstjórnin nái að koma málum sínum fram.  Ekkert er verra fyrir þjóðina en þras og pattstaða. Ég óska Jóhönnu og ríkisstjórninni alls góðs og styð hana fyrstu sporin a.m.k.

Skelfilegu tíðindin eru svo auðvitað þau að gamli fjórflokkurinn virðist vera að festa sig í sessi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Sigurðarson

Áhafnarskipti hjá fjórflokkunum er nú samt nauðsynleg forsenda þess að honum takist að læsa völdum sínum að nýju.

Annars: breyting á kosningalögum með óröðuðum framboðslistum gefur kjósendum nýja sjens. . . . ; ekki satt?

Benedikt Sigurðarson, 1.2.2009 kl. 22:12

2 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Stjórnmálaflokkur allra landsmanna mun fá kærkomið hlé frá stjórnmálastússi og svigrúm til að ná áttum. Svo kemur hann til baka tvíefldur og gott betur, laus úr viðjum einstrengingslegrar hugmyndafræði, sem hamrað hefur verið á af fólki sem ekki hefur kastað vatni í hafið (eða þannig!). 

Flosi Kristjánsson, 1.2.2009 kl. 22:40

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er best að vera raunsær. Ekkert mun í rauninni breytast í íslenskri pólitík fyrr en drottinn sjálfur blæs í dómsdagslúðurinn!

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.2.2009 kl. 23:33

4 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sigurður, það er spurning hver þessi Drottinn þinn er?

Margt til í því að fátt breytist. SF er búin að redda sér í smátíma og VG líka. Á meðan eru baktjaldamenn beggja flokkanna að ákveða hvernig kosningabaráttunni verður háttað.

Held að við komum til með að sjá blóðuga kosningabaráttu því það böggar engin íhaldið!

Séra minn. Kveðja í Þorlákshöfn.

Sveinn Hjörtur , 2.2.2009 kl. 00:00

5 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

Það er nokkuð athyglisvert hve margir óska Jóhönnu til hamingju. Skítt með þjóðina ef forsetisráðherran er hamingjusamur.

Þó er aukalega minnst á þjóðina hjá Baldri.

Kristján Sigurður Kristjánsson, 2.2.2009 kl. 14:56

6 identicon

Háskólafólkið í ríkisstjórninni eru bara að verma þau fyrir Framsókn í sumar.Sjálfur vildi ég fá hagfræðingaráð góðra hagfræðinga sem legðu meginlínur (sbr.herforingjaráð á stríðstímum)

Hörður Halldórsson (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 22:56

7 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Sammála nafni!  Óttast að fjórflokkarnir séu að festa sig aftur í sessi.  Engar góðar fréttir það!  En sjáum hvað setur.

Baldur Gautur Baldursson, 3.2.2009 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband