Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Alþjóðadagur gegn dauðarefsingum!

Í dag 10. október er Evrópudagur gegn dauðarefsingum og einnig alþjóðlegur dagur gegn dauðarefsingum. Evrópa er eina svæðið í heiminum þar sem dauðarefsingar eru ekki framkvæmdar.  Öll 47 ríki Evrópuráðsins hafa annaðhvort horfið frá því að dæma á þann veg eða horfið frá fullnustu slíkra dóma.  Síðan 1997 hefur engin aftaka farið fram í ríkjum Evrópuráðsins. 2002 var samþykktur sáttmáli sem bannar aftökur algjörlega – einnig á stríðstímum en slíkt hafði verið leyfilegt frá árinu 1983.

Þessi afstaða Evrópu endurspeglar m.a. það kristna siðgæði að hvert mannslíf sé óendanlega dýrmætt og ekkert réttlæti það menn taki líf.  Þetta er grundvallarafstaða sem hefur ekkert að gera með alvarleika þess glæps sem kann að hafa verið framinn.


Dæmi sem Íslendingar ættu að skilja!

Nú væri ráð fyrir okkar ágæta menntamálaráðherra Þorgerði Katrínu að beita sér fyrir aukinni mannréttindakennslu í grunnskólum. Það er nefnilega komið dæmi sem ætti að auka skilning Íslendinga á einu grundvallaratriði. Með þessu dæmi, sem er dæmið frá Íslandi, væri hægt að kenna þeim að falla ekki í gryfju staðalímynda og þar með rasisma. Hvort sem um er að ræða Litháa, Pólverja, Gyðinga, Múhameðstrúarmenn, hælisleitendur eða Íslendinga...að meta ekki hópinn fyrir það sem einstaklingar eða stjórnvöld aðhafast. Dæma  fólk sem einstaklinga – ekki meta fólk á grundvelli þjóðernis, litarháttar, trúarbragða eða slíkra hluta.

Þó að sá sem féflettir þig sé Íslendingur byrjar þú ekki að hafa vara á Íslendingum.  Flestir hafa nokkuð til síns ágætis, Íslendingar ekkert síður en aðrir.


Örmagna af áhyggjum!

Þegar ráðamenn eru spurðir um það hvort að Íslendingar verði ekki háðir Rússum þiggi þeir stórt lán frá þeim með hagstæðum kjörum svara þeir því til að þeir viti ekki til að nein skilyrði fylgi láninu. Mér finnst þeir sleppa létt frá erfiðri spurningu.  Annars finnur maður til með körlunum sem eru sið stýrið (allt eru þetta karlar). Þeir eru búnir að leggja nótt við dag í marga sólarhringa og  eru örugglega að verða örmagna af álagi og áhyggjum.

Og brimskaflarnir skella á suðurströndinni. 


Fólkið sem þorði!

Margir verða reiðir, ekki síst þeir sem áttu sparnað sinn í hlutabréfum í bönkunum og misstu allt. Þeir verða ekki bara reiðir  -þeir fyllast vonleysi.  Allir töldu víst að bankarnir yrðu varðir. Gætu lækkað úr öllu valdi vissulega en í núllið – það fór fram úr ímyndunarafli hárra sem lágra. Fulltrúi gamla tímans sem lagði allt sitt á sparisjóðsbók heldur sínu á meðan sá sem hlýddi kalli tímans tapar öllu.  Er nú manneskja án viðspyrnu- án vonar. Það hefði verið gott innlegg í framtíðina að skilja slíkt fólk eftir með einhverja táfestu.  Það er eftir allt saman fólkið sem þorði.  Nú er búið að kýla það fólk niður.  Það mun hafa deyfandi áhrif á íslenskt samfélag til framtíðar.


Fram - Fjölnir yrði gríðarlega sterkt félag!

Auðvitað eiga Fram og Fjölnir að sameinast. Hið gamla sögufræga félag mitt Fram hefur lokast inní hverfi þar sem eldri borgarar hafa yfirhöndina og þeir eru ekki góðir í fótbolta eða öðrum íþróttagreinum og ekki heldur góðir í því að eiga börn. Hið sama má segja um Val og KR og Þrótt- það má tala um sögulega slæmsku að þessi félög skyldu ekki þróast með byggðinni - unga fólkið og barnafólkið þyrptist upp í hæðirnar þar sem íbúðir voru ódýrari og betri en félögin sátu eftir bundin við vesturbæinn, norðurmýrina, hlíðarnar, háaleitið, laugardalinn, eins og kýr á bás.  Útkoman: Allt of mörg léleg félög í Reykjavík, kröftunum allt of mikið dreift og hellingur af fortíðarpöbbum eyddi frístundum sínum í það að keyra börnin sín vestur í bæ eða niðrí Safamýri.

Fram- Fjölnir yrði gríðarlega sterkt félag.  Reynsla Frammarana og frumkraftur Fjölnismanna mundi gera það að stórveldi og það myndi ná yfir helstu vaxtarsvæði Reykjavíkur. Sjálfsagt myndi það heita Fram- Fjölnir til að byrja með en menn ættu endilega að leyfa því nafni að lifa sem er léttast og best á tungu í íþróttalegu samhengi. Fram nafnið er með allra bestu íþróttafélagsnöfnum og hlýtur að verða ríkjandi fái nöfnin að spreyta sig saman. Hreinlegast væri náttúrulega að nýja félagið héti einfaldlega Fram - eitt af bestu vörumerkjum íslenskrar íþróttasögu.


mbl.is Selfoss í efstu deild sameinist Fjölnir og Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mynd okkar......

Dorian Gary Oscars Wilde lifði þá tíma þegar ,,hinir ónauðsynlegustu
hlutir urðu nauðsynlegir og hinir nauðsynlegu hlutir urðu
ónauðsynlegir". Nú höfum við einnig líka lifað slíka tíma. En nú verða
nauðsynlegir hlutir aftur nauðsynlegir og ónauðsynlegir hlutir aftur
ónauðsynlegir.  Fátt er svo með öllu illt.........En öll hefðum
við gott af að líta mynd okkar og finna út hvort hún hafi elst meira en
við sjálf.

Illa borgað jobb!

http://bjorgvin.eyjan.is/ bendir á linku íslenskra blaðamanna gaganvart bankafurstum og hittir naglann á höfuðið eins og oft áður. Ég held að vandi fjölmiðla liggi ekki hvað síst í því hve fáir ílendast á fjölmiðlum. Venjulegt blaðamannajobb er illa borgað og flestir þeir sem eitthvað geta forða sér í blaðafulltrúastöður stórfyrir tækja fyrir fertugt eða þá í prestskap ef ekki vill betur. Kannski sumir þeirra komi nú aftur á fjölmiðla reynslunni ríkari. En gamanlaust: Ísland er sennilega og lítið fyrir alvöru blaðamennsku.

Andleg fjöldafangelsi

Flokkar eru falsguðir segir Egill Helgason http://www.eyjan.is/silfuregils/.  Ég hef einhvern tíma orðað svipaða hugsun þannig að flokkar séu hagsmunatæki fárra en að öðru leyti andleg fjöldafangelsi.  Hér á blogginu er fróðlegt að sjá hvernig hópar manna og kvenna renna jafnan jarmandi í dilk.

Kirkjan og kreppan!

 

Á kirkjan erindi inn í efnahagsumræðu dagsins? Undir ákveðnum formerkjum Já.  Hún á erindi með þann boðskap að hvað sem gert er skuli ávallt gætt hags hins fátæka og smáa. Ekkjunnar, útlendingsins og munaðarleysingjans eins og það er stundum orðað í GT. Þessi áhersla Gyðingdóms og Kristni hefur ekkert breyst.  Það er hið boðaða réttlæti að gæta þess að sá fjarstaddi, sá sem ekki getur varið sig, sá sem þarf á öðrum að halda gangi ekki með skarðan hlut frá borði. Hlutverk kirkjunnar væri sem sagt það að gæta jafnréttis, sanngirni og jafnræðis eins og það myndi vera orðað nú á tímum og reyna að  sjá í gegnum orðalag sem dulbýr sérgæsku og sérdrægni og hafna tillögum er byggja á slíku.


Að gefast aldrei upp!

Eiður Guðjohnsen gæti orðið  öðrum Íslendingum góð fyrirmynd.  Hann leggur aldrei árar í bát.  Hann gefst aldrei upp og er á góðri leið með að hleypa lífi í feril sinn á nýjan leik. Og hann er óhræddur við Evrópu. Áfram Eiður.
mbl.is Eiður á blaði í stórsigri Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband