Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Rétti tíminn fyrir brids og skák.....

Ég hef tekið þá ákvörðun að treysta stjórnvöldum til þess að sjá til þess að innistæður mínar í bönkunum hverfi ekki og ég verði heldur ekki rændur eigi ég eitthvað í sjóðum (á tímum eins og þessum kemur sér vel að hafa kosið þá klárustu til forystu).  Sjálfur ætla ég að fara að fylgjast með Olympíumótinu í Bridge en Íslendingar tefla þar fram úrvalsliði með nokkrum þeim sömu spilurum og unnu Bermúdaskálina fyrir tæpum tveimur áratugum og frægt varð af margskonar tilefni.

Á tímum kreppu er gott að snúa sér að bridsi og skák og bókmenntum og listum. Að þessu sögðu er rétt að taka það fram að ég finn til með þeim sem þjást hvort sem það er vegna peningaleysis eða veikinda eða annars er veldur hryggð í huga.  Okkur er líka gott að hafa í huga að efnahagslegar þrengingar einar sér eru lítið harmsefni miðað við aðra harma sem sækja að manneskjunni.


mbl.is ÓL í brids: Ísland í 8. sæti í sínum riðli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Notið hverja stund því dagarnir eru vondir

Nú um stundir er ekkert hægt að segja af viti. Flest sem sagt er um efnahagskreppuna er fávíslegt en um leið er vandræðalegt að tala um eitthvað annað.  Best er að þegja. Það er þó allt í lagi að vekja athygli á einum af þeim textum sem Þjóðkirkjan hefur valið til upplestar á morgun, sunnudag, sem er 20. sunnudagur eftir þrenningarhátíð hafi það farið fram hjá einhverjum. Textinn úr Efesusbréfinu á ágætlega við nú (sem endranær):

,,Hafið því nákvæma gát á hvernig þið breytið, ekki sem fávís heldur sem vís. Notið hverja stund því að dagarnir eru vondir. Verið því ekki óskynsöm heldur reynið að skilja hver sé vilji Drottins. Drekkið ykkur ekki drukkin af víni, það leiðir aðeins til spillingar. Fyllist heldur andanum og ávarpið hvert annað með sálmum, lofsöngvum og andlegum ljóðum. Syngið og lofið Drottin af öllu hjarta og þakkið jafnan Guði, föðurnum, fyrir alla hluti í nafni Drottins vors Jesú Krists."

Flestir hefðu gott af því að hugleiða þetta sem annað.

 

 


Samræmdan tíma takk!

Ég er eins og draugur í dag eftir að hafa horft á Palin –Biden í nótt og mér fannst Biden frábær.  Palin fannst mér standa sig illa – var orðmörg og klisjukennd og svaraði ekki spurningum og svo er ég auðvitað ósammála henni í skoðunum. Palin hefði alveg átt heima í eldhúsdagsumræðunum hér heima hefði sómt sér þar vel við hliðina á mörlandanum.  Var ekki verri en það.  Steingrímur Sigfússon var bestur að mínu viti í umræðunum hér – sýndi virkilega þjóðarleiðtogatakta.  Geir Haarde á við tengslavanda að stríða.  Augun kvika vandræðalega yfir salinn þegar hann lítur upp úr handriti sínu. Getur enginn sagt honum að horfa fast á punkt yfir dyrunum andspænis?

Að lokum legg ég til að tíminn í heiminum verði samræmdur. Það er nauðsynlegt á tímum alþjóðavæðingar –svo maður þurfi ekki að vaka svona!


Að ganga í Noreg!

Ég held að það sé að sannast sem ég hef löngum haldið fram að það hafi verið mestu mistök lýðveldistímans að hafa ekki hafið samningaviðræður við ESB fyrir löngu síðan og gengið inn að uppfylltum vissum skilyrðum.  Við ættum ekki síðar en í dag að lýsa yfir þeirri ætlan að sækja um aðild og biðja um leið hreinskilningslega um aðstoð við að rétta við hagkerfið.

Hinn kosturinn er að flýja til baka þ.e. ganga í Noreg. Norðmenn kunna að fara með peninga.  Eitt er víst. Það vcoru ekki mennirnir með fjármálavitið sem flúðu hingað unda Haraldi hárfagra.

 


Áhyggjur og kvíði setjast að!

Ég ætla ekki að fjalla um það hvað óheppilegt það er að hafa gamla umdeilda stjórnmálamenn í Seðlabankanum.  Og ég ætla ekki heldur að fjalla um þau ósköp sem fest hafa í sessi að Alþingi sé bara málfundur og stimpilstofnun.  Ég ætla að fjalla um þær áhyggjur og þann kvíða sem sest að mönnum þessa dagana, körlum og konum. ,,Ég ætla ekki að fara í bankann” sagði gamall maður við mig í gær ,,en ég er dauðhræddur um að sparnaður minn hverfi.” Þúsundum saman nudda smáverktakar hendurnar og ljúga því að sjálfum sér og konunni að verkefnastaðan sé nú ekkert svo slæm. Atvinnulausir horfa ungir snillingar upp á drauma sína hrynja.  Í gær var glæsti jeppinn skilinn eftir með lyklum í á planinu hjá Lýsingu.

Svo verður mér að sjálfsögðu hugsað til allra skjólstæðinga minna, sem þræla frá morgni til kvölds, skúra safnaðarheimilið eða sjoppuna eftir erfiðan vinnudag og horfa uppá verðtryggð lán sín rjúka uppúr öllu valdi. Þetta fólk hefur lagt mikið á sig til þess að verða ofaná í samfélagi sem lofaði því með látbragði sínu góðum tímum.

Merkilegt nokk þá mun efnahagsöngþveitið styrkja Geir Haarde í sessi. Hann er þrátt fyrir allt, í fjarveru Ingibjargar Sólrúnar, eini flokksformaðurinn sem lítur út fyrir að vita eitthvað um efnahagsmál.  Staða hans væri ennþá betri ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði skipt um leiðtoga þegar þeir skiptu um formann. Ingibjörg hins vegar setti Björgvin G. niður um margar hæðir þegar hún sendi Össur í Seðlabankann til þess að blessa yfirtöku Seðlabankans. Eftir það hljómar Björgvin G., ráðherra banka- og viðskipta, eins og kotroskinn strákur án nokkurra valda.


Sittu bara og segðu ekki orð!

Sestu hjá vini þínum sem hefur tapað miklu en segðu ekki orð. Nærveran ein og sér skiptir máli.

Ekki segja:

 ,,það birtir upp um síðir”

,,þetta átti að gerast”

,,þetta gátum við sagt okkur.

,,Það sem fer upp kemur niður”

,,Það hefði ekki verið gaman fyrir bankann að lifa svona”

,,þetta var best úr því sem komið var”

,,Af hverju keyptirðu þessi hlutabréf”

,,Ég var skynsamur að selja”

Sittu bara og þegiðu- eða farðu! 


Skúmaskotaaðferðin!

Hvernig væri að gagnrýna lýðræðisskortinn Guðni? Í Bandaríkjunum hafa þingmenn deilt í tíu daga um sambærilegt mál.  Fídusinn í lýðræði (Demókratí) er að hin besta lausn komi út úr (hörðum) umræðum.  Hjá okkur, sem tölum um vöggu lýðræðis hér, er Alþingi, þing þjóðarinnar eftirástofnun, stimpilstofnun.  Ég vil eins og aðrir vita hvernig var gengið frá hnútum. Fæ ég sem skattgreiðandi þessa peninga til baka? Var sett fyrir ofurlaun og bónusa?  Það er kannski ekki von að Guðni geti sagt mikið.  Undir ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks var skúmaskotaaðferðin fullkomnuð.
mbl.is Svartur dagur í sögu Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnrétti er réttur - ekki valkostur!

Evrópusambandið rekur stofnun sem það kallar FRA eða  Fundamental Rights Agency.  Verkefnin eru í fyrsta lagi að að safna upplýsingum um grundvallarmannréttindi, í öðru lagi að ráðleggja Evrópusambandinu og ríkjum þess í þeim efnum og í þriðja lagi að örva umræður um grundvallarréttindi meðal almennings. Þetta er má segja systustofnun ECRI sem er sú stofnun hjá Evrópuráðinu sem fæst við misrétti sem stafar af uppruna manna, litarhætti og trú. Þar er Ísland aðili.

 Almennt er jafnréttislöggjöf góð í ríkjum Evrópusambandsins. Þá er ekki bara verið að tala um kynjamisrétti heldur alhliða jafnrétti. Þó er sá hængur á að ekki er alltaf farið eftir því sem í lögum segir eins og við þekkjum með jafnréttislöggjöf kynjanna hérna heima.  Innan Evrópusambandsins er talið er að aðeins þriðja hver manneskja að jafnaði þekki rétt sinn.

Evrópusambandið skorar því á ríkisstjórnir aðildarríkja sinna að upplýsa fólk almennilega um rétt sinn. Í áskoruninni segir:  Á hverjum einasta flugvelli eru auglýsingar um réttindi farþega. Af hverju eru ekki sams konar auglýsingar hvað varðar almenn réttindi út um allt í fyrirtækjum, skólum, ráðhúsum, pósthúsum? Jafnrétti er nefnilega réttur, ekki valkostur.

Þegar kemur að jafnréttismálum erum við Íslendingar gildari í orði en á borði.  Við mættum því að skaðlausu taka til okkar, miklu betur, ráðleggingar Evrópuráðsins, sem við erum aðilar að og Evrópusambandsins, sem við verðum aðilar að.


Þegar Biskupsstofa og Utanríkisráðuneyti plottuðu!

 Í Herðubreið nýútkominni rifjar Árni Páll Árnason upp þá atburði þegar Biskupsstofa þar sem Þorbjörn Hlynur (bróðir Árna Páls) réði ríkjum ásamt Ólafi Skúlasyni og Utanríkisráðuneyti Jóns Baldvins og Árna Páls afrekuðu það í sameiningu, með lævíslegu plotti, að halda flóttamanni í landinu m.a. með því að fá Sigurbjörn biskup emerítus til að rita grein í Morgunblaðið sem hét ,,Hýsum hælislausan” að morgni miðvikudags ríkisstjórnarfundar þar sem Sigurbjörn dregur fram skyldu kristinna manna að aðstoða hælislausa í samræmi við boðskap frelsarans.

Atburðarásin er lýsandi fyrir þáverandi tregðu íslenskra stjórnvalda að taka á móti flóttmönnum sem hefur raunar lítið breyst nema þegar við fáum tækifæri til að velja flóttamennina sjálfir. Umfjöllunin bregður líka ljósi á það að sama hugsana- og skoðanagjáin var milli  Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks í ríkisstjórn þá og Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í ríkisstjórn nú. Umfjöllun Herðubreiðar gefur raunar líka tilefni til kirkupólítiskrar umræðu um þróun íslensku þjóðkirkjunnar.

Herðubreið er sem sagt yfirfullt af áhugaverðu efni og maður ritsins er ,,hinn þjóðhættulegi”Sigurbjörn Einarsson biskup nýlátinn en Sigurður A. Magnússon, sem fær ekki heiðurslistamannalaun frá Alþingi, ritar stórfróðlega grein um feril þessa andlega stórmennis sem mótaði kirkju og kenningu mjög en verður svo biskup á tímabili þegar trúin er síður en svo í tísku

Ég er auðvitað búinn að lesa palladóm Róberts Marshall um áhrifamesta Framsóknarmanninn Bjarna Harðarson sem er ekki inn í þingflokki Framsóknarflokksins til þess að láta Valgerði Sverrisdóttir, Birki Jón eða aðra segja sér til í Evrópumálum.  Og svo las ég líka Jón Baldvin auðvitað sem hiklaust var stjórnmálamaður tíunda áratugar síðustu aldar á Íslandi og ásamt Steingrími Hermannsyni þess níunda líka. Grein Jóns Baldvins er góð og við þurfum auðvitað stóra samhengið og halda því að fólki. Gallinn við eyjarskeggja er hvað þeir verða uppteknir af skerinu sínu. Lesi einhver sem hittir Jón Baldvin þetta skili þá hinn sami kveðju til hans frá mér.  Í Litháen fékk ég frítt í leigubíl fyrir það eitt að vera frá sama landi og Jón Baldvin og Slóvakískur stjórnarerindreki heimtaði að fá að borga kvöldverðinn minn af sömu ástæðu.  Housholdname víða kallinn.

Sem sagt nýjasta tölublað Herðubreiðar enn eitt stórvirkið úr smiðju Karls Th. Birgissonar ritstjóra.


Kristinn H. Gunnarsson og hin laskaða kynslóð!

Svona úr fjarlægð talað finnst mér Kristinn H. Gunnarsson góður.  Hann er einn af þeim pólitíkusum sem skilur og gerir sér far um að ræða um fólk sem einstaklinga en ekki hópsetja það í sífellu á grundvelli uppruna, þjóðar,litarháttar eða trúarbragða.  Kristinn er því laus við að ala á fordómum sem hljótast af staðalímyndum.  Of fáir stjórnmálamenn hérlendis ná þessu og of fáir fjölmiðlamenn (einna helst þó á Morgunblaðinu og fréttastofu Sjónvarps). það er af því að þeir sem hafa alist upp á Íslandi og eru nú yfir fertugt fóru í gegnum skólakerfið án þess að hafa heyrt minnst á mannréttindi en því meira um fullveldisbaráttu Íslendinga og vonda útlendinga. þessi kynslóð er segja má löskuð af nálægð sinni við fullveldisbaráttuna.
mbl.is Sjálfsagt að útkljá deiluefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband