Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Óþarflega flókin Útlendingalög!
10.9.2008 | 08:39
Ég bið Útlendingastofnu afsökunar ef ég hef oftúlkað ætlun hennar þá að senda Mark Cumara úr landi sem dvaldist hér vissulega ólöglega. Það var hins vegar ekki annað að skilja á fjölmiðlum en að hann yrði að fara úr landi og ekki boðið upp á neina fresti. Hann sjálfur og fjölskyldan voru skelfingu lostin.
Af þessu tilefni finnst mér ástæða til að fara yfir verkferla og hvort að ekki sé ástæða til að endurskoða lög um Útlendinga. Eru t.d. tenglar út um land sem fara og tala við útlendinga og útskýra fyrir þeim rétt sinn og órétt? Eru sveitarfélögin ekki með neina ábyrgð í þessum efnum? Lögin eru óþarflega flókin og ekki nógu mannúðleg vil ég segja. Þannig hef ég grun um að staða fólks sem kemur hingað annars staðar frá en úr Evrópu hafi versnað á sama tíma og hagur Evrópubúa hafi batnað. Evrópusambandssvæðið er eitt atvinnusvæði mega koma og fara og dveljast og vinna og allt gott um það. Fólk utan þessa svæðis er hins vegar hætt að koma af því að Evrópubúar sjá um vinnuna. Tilfinningin segir mér það að það sé mjög erfitt fyrir fólk utan Evrópu að koma og setjast hér að. Viljum við það? Vorum við ekki að tala um það hvað fólk frá fjarlægum heimshornum væri dásamlegt innlegg í íslensku flóruna?
Mál Mark Cumara, fiskvinnslumannsins í Þorlákshöfn vekur upp spurningar um Útlendingalögin og um leið hvernig við lítum á manneskjur. Nú eru börn hér í skjóli foreldra sinna upp að átján ára aldri. Þá verða þau skyndilega réttlaus. Flokkast t.d. ekki undir nánasta aðstandenda lengur og fá ekki dvalarleyfi á þeim forsendum. Tökum tilbúið dæmi af barni filipínskrar móður sem fæðist hér á landi og elst upp með föður og móður og frændgarðinum öllum, ömmum og öfum sem hafa dvalarleyfi sem aðstandendur af því að þau eru orðin 66 ára. Það má vísa barninu burt úr landi á 18 ára afmælisdeginum. Það verður að útvega sér dvalarleyfi með sjálfstæðum hætti og verður væntanlega að leggja fram gögn um að geta framfleytt sér með sjálfstæðum hætti, hafi atvinnu o.s.frv. Dvölin, starfið, fjölskyldan tryggir engan rétt. Dæmið með Cumara er giska svipað. Hann kemur hingað unglingur. Kjagar tröðina í Frostfisk á hverjum einasta morgni og stendur og flakar allan daginn.Skemmtir sér með jafnöldrunum um helgar í sjoppunum í Þorlákshöfn eða á böllunum í Ölfusi. Býr heima með mömmu og pabba, flytur svo í eigin íbúð. Heldur áfram að sinna þúsund þorskum á færibandinu. Hans nánustu eru foreldrarnir og frænkurnar, fólk utan Íslands þekkir hann ekki. Samt er hann réttlaus sem manneskja hér. Það má einhvern veginn fara með hann eins og skepnu. Eftir 16. september mega laganna verðir sækja hann, troða honum upp í vél, eitthvað út í heim.
Nú hefur hann og hans fjölskylda ekki áttað sig á réttleysi sínu og ekki farið allar mögulegar formlegar leiðir. En hvílir ekki sú skylda á okkur sem hér erum öllum hnútum kunnug að leiðbeina og upplýsa, veita alla mögulega fresti. Fjölskyldan gáði ekki að sér en hún var heldur ekki að leyna neinu. Eigum við ekki að starfa eftir mannúðlegum lögum og framfylgja þeim með mannúðlegum hætti.
Þeir ráðast að konum þessir djöflar!
8.9.2008 | 20:48
![]() |
Forsetaslagurinn hafinn af fullum krafti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópusinnar vinna umræðuna!
8.9.2008 | 10:14
Ég sé ekki betur en að Evrópusinnar séu að vinna umræðuna. Enginn hefur orðað það skýrar en Jónas Haralz að rétt sé að sækja um aðild að ESB. Rök hans eru þau helst: Við þurfum að vera í myntsamstarfi. Fullveldi okkar mun aukast í samstarfi frjálsra þjóða. Við vitum ekki fyrr en í aðildarviðræðum hverju við náum fram. Fram að því verður þetta þref. Þjóðir hafa náð fram í samningum því sem þær telja nauðsynlegt vegna sérstöðu sinnar.
Í Silfri Egils var Björgvin G. Sigurðsson rökréttastur eins og venjulega og tók meira og minna undir rök Jónasar. Guðni Ágústsson móar um atkvæðagreiðslur og undirbúning, er ráðvilltur með Valgerði Sverrisdóttur í öðru eyranu og Bjarna Harðarson í hinu.
ESB er fyrst og fremst aðgangur að markaðssvæði og í gegnum samninga aðgangur að enn öðrum markaðssvæðum. Það er hinn nýi samstarfsvettvangur frjálsra fullvalda ríkja á okkar heimssvæði. Þá hefur ESB sýnt marktæk tilþrif í neytendamálum, vinnuréttarmálum og mannréttindamálum og gengið þar í spor Evrópuráðsins sem Íslendingar eru aðilar að. Íslendingar eru aftar á merinni þegar kemur að réttindamálum fólks enda liggja tilskipanir frá Evrópusambandinu um réttindi fólks í skúffum ráðuneyta íslenskra þar sem menn hafa vanist því að vilja hafa slíkt í hendi sér.
Innganga í ESB yrði því tvímælaust íslenskum almenningi til góða, ekki síst almenningi í dreifðum byggðum landsins.
Stríðsmaður í forsetastól!
5.9.2008 | 08:59
Bandaríkjamenn ætla að kjósa yfir sig ,,commander in chief. McCain er fæddur í herstöð. Faðir hans og afi voru herforingjar. Sjálfur er hann stríðsmaður og er líklegur til að standa uppí hárinu á Rússum sem þegar eru farnir að hnykla vöðvana. Hann hefur bæði fengið Silfurstjörnuna, Bronsstjörnuna og Purpurahjartað en þetta eru meðal æðstu heiðursmerkja Bandaríkjahers. Hans þrekvirki var að lifa af fangavist í Víetnam 1967 til 1973 og þiggja ekki lausn þrátt fyrir það að vera sonur herforingja (sem opnar okkur nýja sýn á hernaðarkúltúrinn - óvinir sleppa sonum háttsettra herforingja).
McCain ætlar að verða öðruvísi Rebúblikani. Hann verður þó örugglega stríðsmaður. Og konan hans hjálpar fórnarlömbum jarðsprengja - fallegt.
Kosturinn við gamla stríðsmenn er hins vegar sá að þeir falla fljótt. Nema að þeir séu klókir og haldi sig aftarlega.
Fjármálaráðherra hefji sig upp!
4.9.2008 | 15:58
Starfsstéttin á Íslandi sem tekur á móti nýjum eintökum af okkur er í verkfalli. Það mætti halda að við værum nógu mörg. Að okkur þætti nóg komið. Værum búin að fá leið á börnum. Ánægð með þetta eins og það er. Vildum loka. Kysum óbreytt ástand.
Sjálfum finnst mér miður að að ríkið hafi ekki leyst þessa deilu með því að koma til móts við ljósmæður. Þetta er alvöru stétt -í alvöru hlutverki. Ef marka má fréttir fær hún ekki laun í samræmi við ábyrgð og menntun. það hlýtur að vera til sanngjörn lausn á svona deilu.
Fjármálaráðherra á að semja við ljósmæður. Lýsa því yfir að þetta sé kvennastétt sem hafi dregist afturúr. Það sé skandall. Að auki sé þetta með þýðingarmeiri störfum. Hækkunin hafi þess vegna ekki fordæmisgildi.
Með þessu gæti fjármálaráðherra hafið sig upp úr meðalmennskunni.
Eru ljósmæður óþarfar?
3.9.2008 | 08:04
Hvernig stendur á því að ein af lykilstéttunum í heilbrigðisgeiranum er nánast komin í verkfall? Hvers vegna í ósköpunum geta málsaðilar ekki komið sér saman um launakjör henni til handa sem tekur mið af launum annarra stétta í greininni að teknu tilliti til menntunarkrafna? Eru ljósmæður að gera óeðlilegar kröfur? Krefjast þær viðveruálags ofaná viðveruálag ofnaá viðveruálag? Eða er hið ,,karlgervða ríkisvald" einn ganginn enn að svína á starfsstétt kvenna? Er fjármálaráðherra með þá hugsun bakatil í kollinum að ljósmæðrum eigi að borga í góðvild eins og í gamla daga þegar þær voru sóttar yfir stórfljót og eyðisanda ekki fyrr en þegar barnið stóð fast í fæðingarveginum? Spyr sá sem ekki veit, og hefur ekki rekist á neina fræðandi útterkt, en undarlegt er þetta verkfall nú þegar friður ríkir að öðru leyti á vinnumarkaðnum. Að mínum dómi hafa einhverjir einhvers staðar klikkað á því að finna lausnir. Er svarið kannski það að ríkið telji hjúkrunarfræðinga geta tekið yfir starfssvið ljósmæðra en ljósmæður vilji áfram vera ljósmæður?
![]() |
Víða engin neyðarvakt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sarah Palin!?!?!
1.9.2008 | 11:46
Sarah Palin varaforsetaefni Rebúblikana í Bandaríkjunum vill láta kenna sköpunarsöguna í grunnskólum sem vísindi til jafns við þróunarkenninguna. Hún vill banna fóstureyðingar alfarið líka eftir nauðgun og sifjaspell. Hún er á móti hjónabandi og sambúð samkynhneigðra og því að þeir fái að ættleiða börn. Hún vill láta bora eftir olíu í þjóðgörðum Alaska. Hún er ævifélagi í samtökum byssueigenda og því á móti allri takmörkun á byssueign. Hún er fylgjandi dauðarefsingum. Þetta las ég einhvers staðar. Getur þetta verið satt?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (66)
Hafið ekki áhyggjur af morgundeginum!
31.8.2008 | 09:08
Stundum eru textar Biblíunnar auðskildir eins og upp úr nýtísku sjálfshjálparbók, þessi er þannig en þó margræður. Inn í íslenskan samtíma á hann margskonar erindi.
,,Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón.
Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufull um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin? Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn?"
,,Og hví eruð þér áhyggjufull um klæðnað? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins sem í dag stendur en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlítil!
Segið því ekki áhyggjufull: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast? Allt þetta stunda heiðingjarnir og yðar himneski faðir veit að þér þarfnist alls þessa. En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki. Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning."
Út af þessum texta úr Matteusarguðspjalli leggja flestir prestar hinnar íslensku þjóðkirkju í dag.
Hjálpsemi?
30.8.2008 | 08:24
![]() |
Lamaður bóndi sviptur sérbúnum vélum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |