Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Samræmd próf, fjölmenning og kunnuleg munstur!
29.4.2008 | 07:19
Dagurinn i dag er þýðingarmikill og merkilegur fyrir heilan árgang ungra Íslendinga og fjölskyldur þeirra. Í dag hefjast samræmdu prófin. Fyrsta greinin er Íslenska.
Þó ég sé hallur undir skólakenningar sem gera lítið með samræmd próf en leggja því meira upp úr einstaklingsmiðaðri framvindu náms þá hafa samræmdu prófin þann augljósa kost að veita nemendum og kennurum aðhald. Kostir þeirra eru m.a. þeir að sjá má visst munstur einkunna sem virðast halda sér milli ára og áratuga eftir landshlutum og innan þeirra milli skóla.
Tilraunir til þess að komast að orsökum þessa viðvarandi mismunar eru hins vegar ekki áberandi enda heldur munstrið sér vel. Segja má að við séum orðin vön ákveðnu munstri og gerum lítið með það.
Í samfélagi fjölmenningar, þar sem nemendur koma víða að, gefa niðurstöður samrændra prófa fágætt tækifæri til þess að finna út stöðu nemenda sem eiga foreldra sem fædd eru erlendis eða eru það sjálf. Vitað er að slíkum nemendum hættir til að detta út úr skólaferlinu fyrr en hinum. Vinna verður að því með öllum skynsamlegum úrræðum að koma í veg fyrir slíkt brottfall.
Við verðum að vinna gegn því að munstur eftir því hvaðan fólk kemur verði viðvarandi og viðurkennt.
Umræðan um ESB heldur áfram
28.4.2008 | 10:31
Í mínum huga er ekki vafi á því að við eigum að taka fullan þátt í samstarfi Evrópuþjóða og sækja um aðild að ESB. Ingibjörg Sólrún nálgaðist málið vel í Silfri Egils í gær: Þetta er það form sem þjóðir Evrópu hafa valið sér til samstarfs. Við verðum að ákveða hvort við ætlum að vera með eða ekki.
Spurningunni um yfirráð yfir auðlindum verður ekki svarað nema í aðildarviðræðum. Að mínum dómi verður hægt að búa þannig um hnútana að yfirráð þeirra verði í raun ekkert síður í okkar höndum en nú er. Viðræður munu leiða í ljós réttmæti þessarar skoðunar.
Ef Sjálfstæðisflokkur snýst til aðildarviðræðna verður núverandi ríkisstjórn langlíf. Viðfangsefnin verða næg. Spennandi tímar framundan. Ísland í evrópsku samhengi verður viðfangsefnið. Ekki Ísland einangrað við heimskautsbaug ofurselt innlendu okri og fáræði. Snúist Sjálfstæðisflokkurinn of hægt gæti Framsóknarflokkurinn gripið framtíðargæsina og virðist tilbúinn til þess ef undan er skilinn ráðandi hópur Framsóknarmanna á Suðurlandi.
Það kankvíslega í málinu er að bændur una vel sínum hlut inna ESB. Þannig eru sænskir bændur og ekki síður finnskir ánægðir með sinn hlut eftir að þjóðir þeirra gengu í ESB.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Kristinn engum líkur!
28.4.2008 | 09:03
Kristinn Sigmundsson er engum líkur. Sennilega eini Íslendingurinn sem stendur eitthvað upp úr nú um stundir. Það fer um mig sæluhrollur þegar ég heyri hans voldugu og fallegu rödd. Ég held að menn eins og hann syngi í himnaríki. Hvar getur maður séð hvar hann syngur næstu misserin? Væri til í að skella mér til meginlandsins þegar hann syngur þar í einhverju fallegu Óperuhúsi. Já Evrópa er okkar meginland.
![]() |
Kristinn fær lofsamlega dóma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Smásaga á sunnudagsmorgni
27.4.2008 | 08:05
David Hume (1711-1776) var skoskur heimspekingur og sagnfræðingur. Þekktastur fyrir verk sitt A Treatise of Human Nature. Hume var efahyggjumaður og guðleysingi (atheist). Sagan segir að hann hafi fallið ofaní dý rétt hjá þar sem hann var að reisa sér hús í Edinborg. Tvær gamlar konur áttu leið hjá, þekktu kauða og guðleysi hans og neituðu að draga karl upp fyrr en hann færi með Faðirvorið og trúarjátninguna. Hume var praktískur og lét sig hafa það en þó ekki fyrr en hann var búinn að minna dömurnar á það að kristnir menn ættu að elska óvini sína og hlytu þar með að eiga að hjálpa þeim.
David Hume þótti skemmtilegur maður og var umræðulist hans rómuð. Nútíma guðleysingjar gætu margt af honum lært. Kristnir láti hins vegar vera að læra af gömlu konunum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Til varnar Láru Ómarsdóttur
25.4.2008 | 20:12
Það er fáránlegt að Lára Ómarsdóttir segi upp. Það er dómgreindarskortur hjá yfirmönnum hennar að taka uppsögn hennar í mál. Þeir standa greinilega ekki við bakið á henni eins og þeir ættu að gera. Það er augljóst af myndskeiðinu alræmda að Lára setur þessa tillögu með eggin fram í hálfkæringi. Það er enginn ásetningur á bak við orðin. Hún á stresskælandi samtal við samstarfsmann. Slík írónísk hálfkærings samtöl þvert um hug eru mjög algeng meðal þeirra sem gegna álagsstörfum og ekki ætluð til útflutnings. Slíkt hjálpar fólki gegnum daginn. Hjartaskurðlæknar, prestar, dómarar, blaðamenn. Orðið kaldhæðni nær þessu svolítið, þó ekki alveg. Þetta er hins vegar karlmannafyrirbrigði. Konur nota þetta minna. Dómharðir bloggarar og yfirmenn sem styðja ekki nægilega við bakið á Láru eru kannski að refsa henni fyrir það.
Ég skora á yfirmenn á fréttastofu Stöðvar 2 að bjóða henni starf sitt aftur og ekki til málamynda heldur í fullri alvöru.
(Setti svipaðar skoðanir fram í athugasemdakerfi Egils Helgasonar í dag áður en ég vissi af uppsögninni.)
Að sjá aldrei til sólar
25.4.2008 | 09:27
Sumarið komið og sól í sinni.. Okkur vantar tvímælalaust meiri gleði í tilveruna. Ég er ekki það mikill innanbúðarmaður í menningu annarra þjóða að ég viti hvort þetta er algilt en Íslendingar hneigjast til að vera í opinberri umræðu aðfinnslusamir og rövlandi. Og ég, skilgetið afkvæmi þessarar menningar, er engin undantekning og set hér á miklar aðfinnslur. Við höfum allt á hornum okkar á blogginu yfirleitt. Leiðtogar stjórnarandstöðu eru yfirleitt reiðir, ekki fyndnir eða humorískir, heldur reiðir. Mótmælendur eru reiðir. Bílstjórar gefa hvor öðrum puttann. Bændur lemja lömb í göngum. Við erum að mörgu leyti vansæl þjóð.
Þetta gæti verið vegna þess að það svo stutt síðan við komum upp úr mógröfunum.
Hafandi sagt þetta vil ég taka fram að ég hef mikla samúð með þeim fjölda Íslendinga, þar á meðal eru flestir þeirra sem eru af erlendu bergi brotnir, sem strita á lágmarkslaunum frá morgni til kvölds í hinu þunga íslenska umhverfi...og sjá aldrei til sólar.
Útkeyrðir reiðir menn!
24.4.2008 | 07:54
Ég er þjálfaður í því að hafa áhyggjur af mannlegum löstum. Einn af þeim er reiðin. Mér er hálf brugðið við að sjá reiði flutningabílstjóranna. Reiði þeirra er augljós og mikil. Þeir eru reiðir þegar þeir tala við lögregluna. Þeir eru reiðir í Kastljósi. Þeir sýna af sér mikla reiði.
Svo berast fréttir af reiðum vöruflutningabílstjóra sem ræðst að bílstjóra skólabíls í Kópavogi.
Eru menn reiðir vegna ákafrar réttlætiskenndar. Tæplega. Eru þeir reiðir vegna sveltandi barna heimafyrir. Trúi því heldur ekki. Reiðin gæti verið vegna lítils hvíldartíma.
Þessir menn vinna of mikið. Eru of hart keyrðir.
Þeir eru útkeyrðir.
Það gildir meira og minna um alla Íslendinga.
Ég vil helst ekki mæta reiðum mönnum á mjóum vegum landsins.
Þessi pistill hefur ekkert með það að gera að olíverð er of hátt og sífellt fleirri sjá ekki fram úr reikningsdæminu. Ég hef tilhneigingu til að vorkenna litlum atvinnurekendum t.d. sjálfstæðum vöruflutningabílstjórum. Þeir áttu sér draum. Kreppan bitnar hart á þeim. Reiðin brýst fram þegar draumurinn snýst í martröð.
Er velferðaríkið Ísland að verða land reiðinnar?
Spaugstofukallinn
23.4.2008 | 19:59
Nei, sjáðu, þarna er spaugstofukallinn, sagði sonur minn sex ára og benti á Geir Haarde þar sem hann birtist í sjónvarpsfréttunum. Vöruflutningalögreglubardaginn hafði fangað athygli sonarins sem ætlar að verða spæjaralögga.
Fréttir hafa hingað til ekki vakið áhuga hans. Við horfum hins vegar alltaf saman á spaugstofuna.
Þetta atvik sýnir hvað Örn Árnason er mikill snillingur. Vekur jafnframt upp ugg um það, hætti spaugsstofan eins og þeir hafa boðað, að börn hætti að þekkja forsvarsmenn þjóðarinnar.
Lýðræðið og leitin að sannleikanum!
23.4.2008 | 07:32
Óskert málfrelsi er hvergi til. Í öllum samfélögum eru takmarkanir. Siðaðar takmarkanir í siðuðum samfélögum. Norðmenn hafa t.a.m.verið að sauma að þeim í löggjöf sem vilja nota málfrelsið til að sauma að öðrum. Hugsunin er þessi. Málfrelsi er ekki markmið í sjálfu sér. Leitin að sannleikanum og lýðræði eru markmiðin. Málfrelsið er tækið sem notað er til þess að ná þessum markmiðum. Með öðrum orðum: Þegar málfrelsið þjónar ekki markmiðum lýðræðis og sannleiksleitar er nauðsynlegt að takmarka það. Þetta á við um þegar hópum manna er ógnað. Þetta á við þegar menn í máli sínu töluðu eða skrifuðu stuðla að kynþáttahatri.
Hver á að dæma heyrist spurt? Í þjóðfélagi eins og okkar eru það að lokum Hæstaréttardómarar. Öryggisventillinn er svo í Strassborg. Þannig er það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Hinn íslenski vilji og hagur launafólks!
21.4.2008 | 16:46
Þesar tilskipnir eru frá árinu 2001 og eiga að tryggja vinnumarkað án mismununar. Ekki hvað síst hafa þessar tilskipanir komið konum vel sem eiga kerfisbundið undir högg að sækja á vinnumarkaði. Þá hafa þessar tilskipanir reynst fólki af erlendum uppruna vel.
Norðmenn felldu þessar tilskipanir inn í sína löggjöf 2005 ef ég man rétt. Ísland situr eitt eftir. Þrír félagsmálaráðherrar Árni Magnússon, Magnús Stefánsson og Jóhanna Sigurðardóttir hafa ,,reyntað fella þessar tilskipanir að íslenskri löggjöf með þeirr vonlausu aðferð að tefla launþegum og fulltrúum atvinnulífsins saman í nefnd.
Vitaskuld vilja samtök atvinnulífsins ekki reglur sem hefta frjálsræði þeirra sem reka fyrirtæki.
Ég skil ekki hvernig sumir talsmenn launþegasamtaka geta böðlast á móti þáttöku okkar í Evrópusamstarfi. Þaðan hefur þó flest það komið sem telja má til aukinna réttinda fyrir íslenskt launafólk undanfarna áratugi.