Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Hinn trúarlegi dans með hæfilegu daðri!
20.4.2008 | 17:29
Í fljótu bragði sýnist mér að moskur á Íslandi ættu að vera fimm eða sex að sama hlutfalli. Það er engin moska á Íslandi. Múslimar á Íslandi fáir.
Það mætti breytast. Íslendingar eru upp til hópa kristnir þó þeir sinni trú sinni lítið. Við munum samt áfram vonandi um ókomna tíð byggja samfélag okkar á kristnum gildum og kristinni menningu. Við höfum engu að síður gott af fjölbreytninni. Mæta lífinu eins og það er með öllum þess kostum og göllum. Ef við lokum okkur af á eyjunni okkar í fábreytni verðum við eins og ,,álfar út úr hól í flókinni og fjölbreytilegri veröld.
Tuttugasta og fyrsta öldin verður sennilega öld ,,secularismas þ.e. veraldarhyggjunnar. Öld vísinda og raunhyggju. Einnig öld fjölmenningar. Stjórnvöld verða í vaxandi mæli óháð kirkjum og trúarhreyfingum. Trúaðir eiga tvo mögulega í Evrópu a.m.k: Annarsvegar að dansa saman í sátt og sameiningu og í sæmilegu daðri. Vinna brautargengi þeim trúarlegu gildum sem þeir eiga sameiginlega og stíga út öfgafólk sem kemur úr öllum áttum eða verða að öðrum kosti sameiginlega úthýst úr meginstraumi samfélaga að sinna.
Valið er um þetta tvennt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Osló-fallegasta höfuðborgarstæðið!
19.4.2008 | 18:51
Sigling á Oslófirði. Kon Tiki safnið. Fram safnið sem geymir Fram, skip Friþjófs Nansens á Norðurpólinn og Amundsen á Suðurpólinn. Víkingasafnið. Osló er frábær túristastaborg. Það er hátíð í lofti í dag. Heiðskýr himinn, sól, hiti, fyrsti góði vordagurinn. Fólk þyrpist út á torg og stræti. Brosandi mannþröng á Karl Johans götu, ís, bjór, kaffi. Setið í grasi og hlustað á unglinga spila og syngja kristileg lög, norskt.
Á eftir gengið upp á Óperuna þar sem Ólafur Ragnar var um daginn við vígslu. Hægt er að ganga upp á hvítt hallandi þak þess þaðan sem er kostulegt útsýni yfir Osló og fjörðinn. Þetta er eins og ganga á aflíðandi fjall eða jökul, allt hvítt, skemmtileg hönnun að utan. Almúginn komst ekki inn. Boð var inni fyrir útvalda. Fólk lá á gluggum en ekkert að sjá svosem því ekki er hægt að sjá inn í Óperusalinn.
Stöðugur straumur er upp á Óperuþakið en frá hóteli mínu blasir við Óperan, fjörðurinn og byggðin.
Osló er alvöruborg og státar senilega af fallegasta höfuðborgarstæði í Evrópu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.4.2008 kl. 05:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hermann og Thorolfur
19.4.2008 | 07:25
Mer er thad litt skiljanlegt hvers vegna Hermann Gunnarsson og Thorolfur Beck eru ekki i hopi 10 bestu knattspyrnumanna Islands. Their eru alla vega i throngum hopi haefileikarikustu manna sem vid hofum att i fotbolta. Thad var unun ad horfa a tha med knottinn.
Vid hrifust vid mest thegar vid erum ung. Thad sem hrifur okkur ung fylgir okkur alla aefi. Hermann og Thorolfur voru min eftirlaetisgod a gamla Melavellinum og Hermann sidar vidar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Norðmenn fjarlægjast hefðbundna trú sína.
18.4.2008 | 06:10
Eins og nú er skipar ráðherra biskupa og prófasta úr litlum hópi sem kirkjan tilnefndir. Tilhneiging hefur verið hjá hinu veraldlega valdi að skipa konur og menn í frjálslyndari kantinum í þessar stöður. Þetta vald færist nú yfir til kirkjunnar sjálfar. Margir þeirra sem eru á móti breytingunni segja að þarna missi hið veraldlega vald ákveðin áhrif á þróun kirkjunnar sem gæti orðið íhaldssamari í félagslegum efnum fyrir vikið. Aðrir þar á meðal fulltrúar annarra trúarbragða óttast að aðskilnaðurinn leiði til þess að ráðamenn verði fráhverfari stuðningi við trúarhreyfingar almennt.
En flestir eru á því virðist mér að rétt sé að draga úr hinum nánu tengslum ríkis og kirkju. Norðmenn eigi vitaskuld að varðveita og byggja á hinum kristna arfi en fóstra líka margbreytileikann og fjölbreytnina.
Heima er aðskilnaður nokkur. Ráðherra skipar þó enn biskupa. Síðast skipaði Sólveig Pétursdóttir Jón A. Baldvinsson en hann og Kristján Valur Ingólfsson höfðu hlotið jafnmörg atkvæði í kirkjulegri kosningu.
Misheppnuð Reykjavík!
17.4.2008 | 06:08
Bæjarstæði Oslóar er frábært eins og flestir Íslendingar þekkja. Ég er að hugsa um að gera hana að höfuðborg minni. Kaupmannahöfn kemur annars til greina líka. Reykjavik verður misheppnaðri sem borg með hverju árinu sem líður. Fyrst og sídast flugvallarsvæði sem hefur byggst upp einhvern veginn. Miðborgin hvorki gömul eða ný og einhvern veginn án stefnu og tilgangs. Í heildina er Reykajvík eins og bandarískur smábær með flugvöll í miðjunni að auki.
Rými, lokað, opið, saga, fegurð, gamlar byggingar og nýjar. Fólk, umhverfi. Allt þhetta þarf að vera til staðar eigi borgarbarnið í manni að nærast.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Trúarleg kyn(hneigðar)greining
16.4.2008 | 05:43
Páfinn í Ameríku! Minnir á það að kaþólikkar í Evrópu gætu í vaxandi mæli upplifað sig í samfélagi sem tekur jafnrétti fram yfir trúarleg rök sem aðgreina fólk samkvæmt kyni og kynhneigð (gamlar bábiljur í mörgum tilfellum). Þannig hafa trúfélög hingað til verið undanskilin frá jafnréttislögum. Nú heyrast þær raddir frá samfélögum, sem eru í vaxandi mæli secular eins og sagt er (við getum sagt lítt iðkandi trú), að þetta sé ekki rétt. Allir skuli hlíta jafnrétti. Það myndi þýða að kaþólikkum væri gert ómögulegt að banna konum og samkynhneigðum inngöngu í prestaskóla og að verða prestar. Sama myndi gilda um Immana hjá múhameðstrúarmönnum, sem mega ekki konu sjá í þeirri stöðu.
Það skyldi þó ekki verða framtíðin að öll trúfélög eða flest sameinuðust í viðleitni sinni til að hamla á móti samfélagi sem í sífellt minnkandi mæli tekur mark á trúarlegri kyngreiningu og trúarlegri kynhneigðargreiningu.
Miðað við stöðu íslensku kirkjunnar nú, verður auðveldara fyrir hana en margar aðrar kirkjur að aðlaga sig að þessari líklegu framtíð. Við höfum lagt trúarlega kyngreiningu á hilluna og stigið skref í þá átt að leggja kynhneigðargreiningu á hilluna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hættuleg stefna!
15.4.2008 | 06:27
Heima er menn að borga foreldrum sem eru heima með börn sín. Það er hættuleg stefna í þessu tilliti.
Framsókn í slóð Jóns Baldvins!
9.4.2008 | 12:53
Bjarni Harðarsson er í hádegisviðtali á Stöð 2. Hann segir efnislega að smáríki eigi að vera samviska heimsins. Þar er ég sammála honum. Erindi smáríkja á alþjóðavettvang er að segja sannleikann.
Auðvitað eiga ráðamenn að gæta hagsmuna ríkja sinna. Í tilfelli smáríkis gera þau það hins vegar best til langs tíma litið að tala röddu mannréttinda í heiminum. Það skapar þeim virðingu.
Jón Baldvin Hannibalsson hafði þetta að leiðarljósi. Ísland nýtur gífurlegrar virðingar í Eistlandi, Lettlandi og Litháen og Króatíu vegna þess að við þorðum að standa með þessum þjóðum þegar þær lýstu yfir sjálfsstæði sínu.
Eflum þessa arfleifð. Bæði vegna þess að þetta er rétt og svo vegna hins að í þessu felast raunverulegir hagsmunir okkar.
Og það er notalegt að sjá Framsóknarflokkinn í slóð Jóns Baldvins.
Af mögnuðum sárindum mínum!
9.4.2008 | 11:20
Ég ætla aldrei að skipta við Glitni oftar og bið ættmenni mín í allar áttir að gera það ekki heldur. Og báða vini mína. Ég ætla að tala illa um bankann helst tala gengi hans niður úr öllu valdi. Vildi helst geta staðið yfir rústum hans. Ástæðan: Mér var ekki boðið á fyrirlestur Al Gore þrátt fyrir ágengar tilraunir mínar til að komast að. Svo sé ég hér á blogginu að alls konar jepplingum var boðið meðan ég jeppinn mátti sitja heima. Og til þess að strá salti í sárin sé ég í sjónvarpi auð sæti í Háskólabíói undir fyrirlestrinum. Mér er ekki skemmt.
Og ég sem er ákafur Goristi og hef verið síðan 1988 þegar hann tapaði útnefningu demókrata fyrir Mikael Dukakis sem Bush eldri rústaði.
Demókratar eru óttalega seinheppnir. Republikanar verða ekki lengi að ganga frá Obama en fara sér hægt þangað til hann hefur hlotið útnefningu flokks síns.
Óheppileg staður fyrir alþjóðaflugvöll!
9.4.2008 | 10:05
Í annað sinn á stuttum tíma dregst áætlunarflug til útlanda vegna umferðarteppu á Reykjanesbraut. Í fyrra sinnið voru það vörubílstjórar. Í morgun var það slys og ófærð. Þetta leiðir hugann að því hvað þessi flugvöllur er á óheppilegum stað, einhvern veginn út á enda þessa stóra lands og að honum bara einn vegur. Erlend hernaðaryfirvöld réðu þessari legu eins og þau gerðu með Reykjavíkurflugvöll. Það má segja að við séum enn að kljást við afleiðingar 20. aldar ófriðarins í Evrópu.
Alþjóðaflugvöllur íslenskur hefði verið skemmtilega miðsvæðis í landinu hér á bökkum Ölfusár. Eða þá vestur á Mýrum svo annað dæmi sé tekið.
![]() |
Tafir á flugi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |