Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Egill Helgason og sköpunarsagan!

Leiðist hvað áhrifamesti sjónvarpsmaður eyríkisins hæðist að þeim sem benda á þær hættur sem steðja að mannkyni vegna loftslagsbreytinga sem sannanlega eru að einhverju leyti og kannski að töluverðu leyti af manna völdum.  Með greinilegri afstöðu sinni (sem hann má hafa) leggur hann  að mínu viti lóð á vogarskálar heimsku, fáfræði og græðgi.

Sami þáttastjórnandi, ég á við Egil Helgason, hneigist til að leggja málin þannig upp (og hann má það) að Evrópa logi í átökum milli múslima og annarra. Hampar hann hægri öfgamönnum óspart og sækir vit sitt í smiðju þeirra en ekki þess óskaplega fjölda og mikla meirihluta hófsamra manna í Evrópu sem mála hlutina öðruvísi litum sem líklegri eru til að stuðla að friði og farsæld í Evrópu.

Mér er svo sem sama.  Meðan Egill fer ekki að berjast fyrir því að þróunarkenningin verði lögð af og sköpunarsaga Biblíunnar tekin upp í skólakennslu sem sannleikur um tilurð heimsins þá horfi ég á þættina hans. Hann er eftir allt saman eini Íslendingurinn sem er nokkuð eðlilegur í sjónvarpi. 

 (Og svo hefur hann skemmtilegar og oft á tíðum umdeildar skoðanir og þorir að láta þær í ljósi. En um það er fjallað hér að ofan).


Hrúturinn Hreinn, úlfar og sauðir!

Textar dagsins í Lúthersku þjóðkirkjunni, sem þið eruð flest í,  fjalla um góða hirðirinn sem er Jesú Kristur.  Góði hirðirinn gætir sauða sinna m.a. fyrir úlfunum.  Svona textum má auðveldlega snúa uppí aðvörun til unglinga að gæta sín á eiturlyfjaúlfunum.

Það eru margskonar úlfar sem við ættum að gæta okkur á . Einn er  úlfur félagslegrar íhaldssemi sem þarf síður en svo að fylgja kristindómi.  Þannig er óþarfi að hrópa úlfur úlfur hvenær sem maður sér eitthvað nýtt og framandi.  Kristinn maður má/á að taka heiminum með opnum huga.

Maður á heldur ekki að vera eins og sauður.  Jafnvel þó að hirðirinn sé góður.  Maður á að vera hugsandi og leitandi. Best er  að vera eins og hrúturinn Hreinn – hann er sjálfstæður, leitandi, uppfindingasamur, öðruvísi en hugsar þó fyrst og fremst um hag rolluhópsins sem hann tilheyrir.

Og kemur ýmsu góðu til leiðar í samstarfi við sauðahirðinn (jesúmyndin) en svona stundum hálfpartinn á bak við bóndann (guðsmyndin), sem er svolítið gamall og íhaldssamur (guð Gamla testamentisins). En samt góður inn við beinið (guð Nýja testamentisins).


Stofnanarasismi og Martin Luther King

Martin Luther King á mikið í manni. Ég hygg að fáir hafi mótað ræðustíl til að mynda presta og stjórnmálamanna meira en hann.  Og fáir ef nokkrir nema ef vera skyldi Páll postuli dregið skýrar upp drauminn um þjóðfélag án misréttis, þjóðfélag þar sem allir sætu við sama borð án tillits til uppruna, litaháttar, þjóðernis eða trúar.

Enn eru þeldökkir menn undirmáls í Bandaríkjunum þó þeir hafi formlega séð sömu réttindi og þeir hvítu. Stofnanarasismi, sem við getum kallað svo, er innbyggður í þjóðfélagið og ívilnar þeim hvítu í einhverjum mæli.

Þeesi stofnanarasismi er til staðar í öllum þjóðfélögum. Hjá okkur ívilnar hann þeim sem eru af íslensku bergi brotnir.  Þess vegna verða stjórnvöld að tryggja rétt aðfluttra ætli þau að stuðla að réttlátu samfélagi.  Hann ívilnar líka karlmönnum. Þess vegna þarf samfélagið að vera vakandi fyrir rétti kvenna ætli það að teljast réttlátt samfélag jafnra tækifæra.


Viltu verða 100 ára?

Heilræði: Rauðvín, olivu olía, alifuglakjöt, fiskur, baunir  sem sagt typiskt mataræði þeirra sem lifa í  suðvestur Frakklandi. (red wine, olive oil, poultry, fish and haricots of the typical French south-western diet.) Sjá:  http://www.independent.co.uk/life-style/health-and-wellbeing/health-news/want-to-see-your-100th-birthday-be-like-the-french-and-drink-red-wine-804902.html

Þetta vita nú reyndar flestir. En hvernig væri að fara eftir því. Gleði Frakka og vandamál er að um 20000 Þeirra eru nú 100 ára eða eldri á meðan aðeins 11000 slíkir supergamlingjar eru í Bretlandi. Hver vill ekki verða 100 ára?

Íslenskir karlar verða reyndar allra karla elstir tæplega áttræðir.  Merkilegt er hins vegar að konur verða töluvert eldri þrátt fyrir það að þær þræla meira fyrir lægri laun!


Feministar dregnir af leið!

Pabbi þarna er kona sagði dóttir mín 3ja ára og benti á Angelu Merkel kanslara Þýskalands.  Við vorum að horfa á fréttir af leiðtogafundinum í Rúmeníu.  Í tröppum höfðu stillt sér upp fyrir myndatöku ca. 18 karlar og ein kona. Á meðan ég var að reyna að koma auga á Geir kom barnið auga á konuna í  hópnum og varð furðulostið.

Áður var það Thatcher, nú Merkel, ein kona, ein skrautfjöður.  Það hefur ekkert breyst.

 Á meðan eru karlarnir á Íslandi búnir að draga feministana á Íslandi út á sitt uppáhaldsumræðusvið:  Hvort að konur eigi að vera berbrjósta í sundlaugum eða ekki!


Í tilefni af Kilju- leið skilnings eða leið öfga!

Í Evrópu nútímanns er það gæfa milljóna manna, kristinna manna, gyðinga sem múhameðstrúarmanna að þeir lifa saman í sátt og samlyndi þrátt fyrir það að þeir séu ekki fæddir á sama blettinum, séu mótaðir af mismunandi menningu og játi ekki sömu trú. Þetta tekst yfirleitt mæta vel. Þó að viðfangsefnið sé alls ekki alltaf auðvelt auðgar það líf flestra. Mikið vantar þó upp á algjöra fegurð. Þannig ber mikið á árásum á Gyðinga og Múslima í Evrópu og viðurkennt er að þessir hópar og aðrir minnihlutahópar eru misrétti beittir hvað varðar atvinnu, húsnæði, menntun og nánast á öllum sviðum mannlegs lífs.

Málið er að ef leið samtals og skilnings fer ekki fram, leið sem flestir múslimar í Evrópu aðhyllast, leið sem flestar ríkisstjórnir svokallaðra Arabaríkja aðhyllast, leið sem flestar kirkjudeildir aðhyllast, leið sem bæði Evrópuráðið og Evrópusambandið eru einhuga um að fylgja og fylgja fram af fullri einurð, leið sem allar ríkisstjórnir Evrópuríkja fylgja, sé þessi leið ekki farin þá mun bresta á í Evrópu stríð skilningsleysis og haturs.

 Raunveruleiki nútímans er að í öllum ríkjum Evrópu býr fólk af ólíkum uppruna sem játar mismunandi trú.  Það er enginn annar vegur til en vegur samtals og skilnings. Ef sjómnarmið islamista ná yfirhöndinni eða þá sjónarmið öfgafullra kristinna manna mum ríkja stríð skilningsleysis og haturs í Evrópu um ófyrirsjáanlega framtíð.


Hver á alla þessa trukka og trailera?

Þessar mótmælaaðgerðir minna mig fyrst og fremst á hvað hér er skelfilega mikið af hræðilega stórum trukkum og trailerum á vegum.  Af hverju voru strandsiglingar lagðar af þegar búið var að byggja höfn í hverjum firði og annarri hverri vík?

Spyrja má einnig:  Hvers vegna er ekki fraktflug á íslandi?  Ein sæmilega stór fraktflugvél sem flygi á Akureyri, Egilsstaði, Ísafjörð, Vestmannaeyjar og Höfn gæti meira og minna séð um þetta allt saman.

þetta er auðvitað af því að skattgreiðendur borga vegina og göngin.

Auðvitað er annars ágætt að Íslendingar rísi upp og mótmæli.  Eru þeir annars að því? Á ekki Eimskip orðið alla þessa trukka?


mbl.is Sennilega lítil seinkun á flugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samklippa af óhróðri!

Það er lenska meðal íslenskra ,,gáfumanna” að mikla sig af ,,þroskaðri” afstöðu sinni til málfrelsis.Það eitt er málfrelsi sem er óheft. Þá er maður fyrst málfrjáls að hann megi átölulaust leita eftir því sem særi aðra og láti það vaða.  Önnur nálgun kallast að láta undan einhverju sem ekki er ,,ég” og er slegin út af borðinu með því að æpa upp að vegið sé að málfrelsi.  Þá er fyrst málfrelsi þegar kjaftháttur, grín, skop, óhróður hefur haldið inn í öll svið mannlegrar tilveru án vægðar án tillitssemi.

 Eyjarskeggjum mörgum sem ólust upp við einsleitni er vorkunn. Þeir eru eins og kálfar að vori. Láta eins og málfrelsi sé nýtt íslenskt/danskt fyrirbrigði.  Önnur hugtök eins og ,,virðing” ,,tillitssemi” ,,trúartilfinningar” ,,nærgætni” eru með hrokafullum gorgeir hlegin út af borðinu.  Málfrelsi án afsláttar heitir það.  Allt má, allt skal.

 Skynsamir draga mörk sín eigin máls við það sem særir ekki aðra eða dregur líf þeirra niður á einhvern hátt.  Draga hring í sandinn.  Samfélög gera þetta líka, evrópsk samfélög. Þau gera það refsivert að níða hópa manna á grundvelli uppruna, litarháttar trúar og þess vegna fleirri atriða. Rökin eru þau að slíkur kjaftháttur sem oftast er settur fram af einstaklingum sem hafa yfirhöndina leiði til msiréttis, ofbeldis og  yfirgangs, vegna óheilbrigðra staðalímyndina um fólk.  Þessi samfélög eiga sér sögu og hafa af henni lært.

 Þessi texti min er auðvitað til kominn vegna hinnar ómerkilegu hollensku stuttmyndar eftir Geert Wilders sem er ekkert annað en samklippa af óhróðri.  Enginn efast um að Evrópuráðið sé einn af útvörðum og málsvörum málfrelsis í veröldinni. Læt ég fylgja hérna yfirlýsingu Evrópuráðsins um þessa mynd.  Þessari nálgun er ekki nægilega á lofti haldið hér á landi.  Í fjölmiðlum er upphlaupum hvers konar gerð ágætis skil –eðli málsins samkvæmt- þannig að oft mætti halda að allt væri á hverfanda hveli í Evrópu.  En svo er alls ekki.

Strasbourg, 28.03.2008, “The film by the Dutch politician Geert Wilders is a distasteful manipulation which exploits ignorance, prejudice and fear. It is simply political propaganda and it plays into the hands of extremists who are given such a prominent role in his film. The film will upset the great majority of people of Islamic faith in Europe who reject violence and accept our common values.

As the Secretary General and the Deputy Secretary General of the Council of Europe, which is the guardian of the European Convention on Human Rights, we defend freedom of expression, but in this case we do so with disappointment and concern. It is a sad day for European democracy when the most fundamental principles on which it has been built are used to promulgate intolerant and deeply offensive stereotypes.

The vast majority of people in Europe, in all communities and of all faiths or no faith, believe in dialogue, mutual respect and European values. We call on all our fellow Europeans to join us in rejecting this offensive and distorted image of Islam.”

Vefslóð: https://wcd.coe.int/ViewDoc.jsp?id=1267151&Site=DC&BackColorInternet=F5CA75&BackColorIntranet=F5CA75&BackColorLogged=A9BACE

 

 

 


Valgerður og Björgvin í eina sæng -strax í dag!

Eftir að hafa horft á Silfur Egils finnst mér  að Valgerður Sverrisdóttir og Björgvin G. Sigurðsson ættu að vera í saman flokki a.m.k. saman í ríkisstjórn. Sú ríkisstjórn ætti að sækja um ESB alðild strax á morgun. Þá myndu hlutirnir fara að ganga. (Þá myndi áætlun Jónasar frá Hriflu ganga upp. Hann ætlaði þessum flokkum að starfa saman. Jónas var ennfremur Evrópusinni mikill. Sótti allar hugmyndir sínar til Evrópu.)

Ti þess að koma þesu í kring mætti framlengja fundarheferð Guðna Ágústssonar á Kanaríeyjum og hafa Bjarna Harðarson þar með honum.


Farsímar: Hættulegri en haldið var!

Nú eru að koma fram vísbendingar um að farsímar orsaki heilaæxli. Tilfellin eru ekki komin fram vegna þess að þau eru tíu ár að þróast í heilum manna.Vísindamenn telja að farsímageislun eigi eftir að drepa fleirri en reykingar og asbest. Allir sem mér þykir vænt um eru hér með beðnir um að stilla farsímanotkun í hóf eins og kostur er. Sjálfur er ég hættur að bera þá upp að eyranum en nota hátalarann. Ég ætla að reyna að deyja úr öðru. Grein um þetta er í Independent í dag. http://www.independent.co.uk/life-style/health-and-wellbeing/health-news/mobile-phones-more-dangerous-than-smoking-802602.html

Annar hver keyrandi maður er  að blaðra í farsíma. Það er ólöglegt. Það er leyfilegt að nota handfrjálsan búnað við akstur þó það sé hættulegra að dómi vísindamanna.  Stundum eru Alþingismenn furðulega vit-lausir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband