Fínn maður í heilbrigðisráðuneytinu
25.3.2009 | 18:53
Tek ofan fyrir Ögmundi Jónassyni. Það er sjaldgæfur eiginleiki að vera ekki gráðugur og normið hjá stjórnmálaelítunni er að taka að fullu lögvarin laun. Í raun og veru ættu ráðherralaun að vera aðeins 20% ofaná þingfarakaup eða það sem skynsamlegra er. Ráðherrar ættu að afsala sér þingmennsku og þar með þingfararkaupi.
Annars er greinilegt að í stól heilbrigðisráðherra er nú maður sem hefur kynnst kjörum fólks og ber hag þess fyrir brjósti. Maður hlýtur að óska þess að hann fái tækifæri til að vera í heilbrigðisráðuneytinu næstu árin. Í þessu embætti þarf að vera manneskja sem hugsar út frá sjónarhorni sjúklinga og starfsmanna.
Ögmundur fær ekki ráðherralaun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Mér finnst þetta virðingarvert hjá Ögmundi að afsala sér ráðherralaunum.
Eyþór Laxdal Arnalds, 25.3.2009 kl. 21:14
Það sakaði ekki að allir þingmenn í björgunarstjórninni gerðu hið sama.
Hlédís, 25.3.2009 kl. 22:02
Þetta er glæsilegt hjá Ögmundi.
Hilmar Gunnlaugsson, 25.3.2009 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.