Að selja aðgang að mér og mínum!

Fór í bíó í gær með börnin mín, barnamynd.  Áður en myndin byrjaði sátum við í 20 mínútur undir auglýsingum. Fyrst í tíu míunútur fyrir auglýstan tíma. Síðan í tíu mínútur eftir auglýstan tíma. Aftur í tíu mínútur í hléinu.  Ég er með bjánahrollinn hans Guðmundar Steingrímssonar.  Einhver er að græða óskaplega á því að selja auglýsendum aðgang að mér og börnum mínum.  Ég hagnast ekkert.  Ég er í hlutverki bjánans.  Við borgum okkur inn dýrum dómum og étum rándýrt popp og kók á meðan auglýsingarnar móta varnarlausa heila barnanna minna.

Ég auglýsi(já þetta er auglýsing)hér með eftir (barna)bíói með einhverjum menningarbrag. Með klassískri tónlist fyrir sýningu og snjöllum aukamyndum. Auglýsingafríu bíói.  Svo heimta ég auglýsingalaust ríkissjónvarp á meðan ég er skyldugur til að borga af því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, sammála-  það er hvergi friður fyrir þessu.

María Kristjánsdóttir, 7.10.2007 kl. 09:25

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ditto.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 7.10.2007 kl. 11:46

3 identicon

Alveg sammála þér.

Georg Birgisson (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 14:03

4 identicon

Ég mæti alltaf of seint þegar ég fer í bíó og það er nú ekki oft, en ég mæti svona 10 yfir auglýstann tíma, þar sem ég nenni ekki að sitja undir þessum auglýsingum.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 17:14

5 Smámynd: Þóra Sigurðardóttir

Orð í tíma töluð

Þóra Sigurðardóttir, 7.10.2007 kl. 18:28

6 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þetta er svo sannarlega satt og rétt Baldur og veldur m.a. því að ég þoli ekki við bíó. Það tekur svo steininn úr eins og þú bendir á, þegar farið er með börnin í kvikmyndahús og þau þurfa að sitja jafn lengi undir auglýsingum eins og myndinni.....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 7.10.2007 kl. 22:10

7 Smámynd: Theódór Norðkvist

Skýringin á auglýsingaflóðinu er sú að kvikmyndabransinn gengur út á að hafa fé af fólki og ekkert annað. Listrænt gildi er bara yfirskin. Einu kvikmyndirnar sem sýndar eru í kvikmyndahúsum eru þær sem hala inn peninga, þar á meðal auglýsingatekjur.

Theódór Norðkvist, 8.10.2007 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband