Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ofsóknirnar á hendur Roma fólkinu halda áfram!

Þeir fordómar sem Roma fókið hefur orðið að þola af ítölskum yfirvöldum eru þeim til skammar. Beint og óbeint er Roma fólkið stimplað sem glæpamenn af málsmetandi mönnum í ríkisstjórn úr Norðurbandalaginu.  Roma eru handteknir og þeir fluttir fyrirvaralaust úr landi (þrátt fyrir það að vera ESB borgarar en allur gangur er á því hvort þeir hafa sinnt skráningarskyldu).  Vísað er í nýsett lög. Tekin eru fingraför af börnum og fullorðnum líkt og gert var á tímum nasista í Þýskalandi. Ofsóknir á hendur Roma, bæði Roma frá Rúmeníu og ítölskum Roma ríkisborgurum fara dagvaxandi. Þau lífskjör sem margir Roma búa við eru fyrir neðan allt velsæmi. Andúð á innflytjendum almennt fer vaxandi á Ítalíu og það bitnar örugglega á mönnum sem koma frá Íslandi í leit að pólitísku hæli.  Þannig er nú það.  Og íslenskir fjölmiðlar tala hver í kapp við annann um sígauna þó að alveg ljóst sé að þessar manneskjur vilja láta tala um sig sem Roma fólkið.


Um hælisleitendur á Ítalíu og Íslandi!

Amnesty telur að aðstæður til móttöku flóttamanna á ítalíu séu ekki góðar og það er alveg rétt.  Mjög margar umsóknir berast um hæli og afgreiðsla umsókna dregst á langinn. það vill til að eigandi þessarar síðu var meðhöfundur að síðustu skýrslu Evrópuráðsins um Ítalíu þar sem vikið er að aðstæðum hælisleitenda.  Þar er m.a. þessi grein:

,,It has furthermore been reported to ECRI that reception conditions for asylum seekers are at present not adequate. After applying, asylum seekers receive financial assistance for 45 days. Following this time-period, however, they are left with no official support from the State and it is often the voluntary sector who takes care of destitute individuals. ECRI notes that a programme involving the Ministry of Interior, UNHCR, local authorities and non-governmental organisations has since 2001 provided adequate reception services, including housing, social and legal assistance, to a number of asylum seekers. It welcomes the fact that this programme has been given legal recognition by the Bossi-Fini Law. However, ECRI notes that, due to limited funding, this programme can at present cater for approximately 2250 persons at any one time, and that there are marked disparities in the availability of funding for this programme between the regions. ECRI notes that the introduction of the system of Identification Centres – which has only been operational since April 2005 and is in the process of being finalised – will obviously have a serious impact on reception of asylum seekers. In this respect, ECRI also notes that living conditions in some of these centres are reported to be sub-standard." 

Nánar á http://www.coe.int/t/e/human_rights/ecri/1-ecri/2-country-by-country_approach/italy/italy_cbc_3.asp#P480_82126

greinar 104 til 109.

það er ekki hægt að segja að Ítalir séu að marki verri en aðrar stórþjóðir að þessu leyti.  Greinilega er þó mikið að gera við að afgreiða hælisumsóknir og ástandið  satt að segja óviðunandi.  Við þetta má bæta að ástandið er mjög eldfimt á Ítalíu núna og rökrétt að búast við að umsóknir dragist enn meir á langinn en venjulega og þótti þó mannréttindasamtökum nóg um.  Verst er að þurfa að dvelja í móttökumiðstöð.  Það er 111  meðferð á fólki að láta það hírast á móttökustöðvum mánuðum saman. Undirritaður hefur heimsótt nokkrar slíkar stöðvar og vægast sagt líður fólki mjög illa og maður sárvorkennir börnunum. Að vera í lífi sínu og vita ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér er hræðilegt.

 

Til samanburðar um ECRI skýrslu um Ísland. 

44. In its second report, ECRI noted that there had been an increase in asylum applications in previous years. Only one person had been granted refugee status, although other persons had been granted leave to stay in Iceland on humanitarian grounds. ...... The Icelandic authorities have underlined that these low recognition rates reflect the nature of the applications received. 

45. ECRI recommends that the Icelandic authorities carry out research on the low rates of recognition of refugee status. It recommends that they ensure that all persons entitled to refugee status actually secure this status. To this end, it recommends that further efforts be made to improve the quality of first instance decision-making.

 


Útrás eða Innrás kirkjunnar hér og í USA

Það er athyglisvert að Barak Obama tekur undir og ætlar að útvíkka hugmyndir Bush um  að trúarhópar fái fé til þess að halda úti félagsþjónustu. Með öðrum orðum.  Félagsþjónusta alríkisins yrði veitt í einhverjum mæli gegnum kirkjur og trúarhópa.

Þetta er gömul og umdeild áætlun Bush forseta sem hann hefur áður þurft að bakka með m.a. vegna spillingar í framkvæmdinni og óteljandi spurninga sem vakna. Þá er þetta baráttumál frjálsra trúarhópa í Bandaríkjunum. Andmælendur telja þetta brot á ákvæðum stjórnarskrár um aðskilnað ríkis og kirkju. Þeir óttast að aðstoðin muni blandast trúboði og benda m.a. á það að trúarhópar ráði fólk til starfseminnar úr sínum hópi þ.e. eftir trúarskoðunum.

Margir frjálslyndir stuðningsmenn hafa gagnrýnt Obama fyrir það að taka undir áætlanir í þessa veru en hann er auðvitað í baráttu um atkvæði trúaðra.  Um leið og hann hefur talað um að ganga jafnvel lengra en Bush forseti hefur hann lagt áherslu á að fé sem trúarhópar fengju mætti aðeins nota til veraldlegra verkefna á faglegum grunni.

McCain hefur tekið undir þetta.  Augljóst er því að trúarhópar fái aukin verkefni í Bandarísku samfélagi.

Hvernig er þetta hérlendis.  Höfum við ekki þjóðkirkju? Væri ekki upplagt að fela henni og öðrum verkefni af þessu tagi? Kirkjur eru í því að hjálpa fátækum og líkna sjúkum og víða í Evrópu urðu þær hluti af hinu formlega félagskerfi.  En ekki hér.  Gæti útrás eða innrás kirkjunnar inn í hið veraldlega samfélag verið fólgið í slíkum ,,konkret” verkefnum?


Af ,,heiðursmorðum" og ,,okkar" eigin morðum!

Engum dettur í hug að mæla ,,sæmdarmorðum" bót. Yfirleitt eru það dætur sem eru myrtar af feðrum sínum eða bræðrum af  því að þær ,,svíkja" fjölskyldur sínar með því að taka saman við menn af öðru menningarsvæði. Morð af þessu tagi eru þekkt meðal fólks frá Asíu einkum Pakistan sem sest hefur að í Evrópu.  Sem betur fer hefur lögreglu í samvinnu við minnihlutahópa tekist að stemma mjög stigu við þessum djöfullegu og virti firrtu morðum sem kalla yfir sig sorg í marga ættliði.

Á vesturlöndum er ekki óalgengt að morð séu innan fjölskyldna.  Það er ekki svo fátítt að menn fæddir á vestulöndum aldir upp í hinni grísk,gyðinglegu,kristnu menningu drepi maka sína, foreldra sína, frændur og frænkur. Jafnvel börnin sín. Af innanlandsvettvangi minnist ég þess að maður af íslensku bergi brotinn drap konu sína sem var ættuð frá Asíu. Hundruðum saman, í þessu fámenni sem hér er, flýja íslenskar konur, margar hverjar frá Asíu, lúbarðar til Stígamóta eftir misþyrmingar maka sinna. Margt af þessu eru sannkallaðr ,,heiðursbarsmíðar" sprottnar af abrýðissemi.

Þannig er að við lítum á þetta sem afbrigðilega hegðun sem einhvern veginn tengist okkur ekki þegar ,,við" eigum í hlut en hluta af menningu ,,hinna" þegar þeir eiga í hlut. Jafnvel eitthvað sem ,,þeir" ætla að yfirfæra á ,,okkar" samfélag.

Ég held að ,,heiðursmorðin" hjá Pakistönum flokkist undir afbrigðilega hegðun líkt og ,,okkar" eigin morð og ,,okkar" eigin barsmíðar.  Nema að morð og barsmíðar eigi rætur í menningu beggja?

 


mbl.is Reiði í Danmörku vegna sæmdarmorðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofsóknirnar gegn Roma fólkinu!

það sem er að gerast á Ítalíu er auðvitað svakalegt og hefur bitnað gríðarlega  á Roma fólkinu bæði því sem hefur komið frá Rúmeníu (ESB borgarar með fullan rétt til að dvelja á Ítalíu  en víða áfátt með skráningu) og ítölskum Róma. Eftirfarandi yfirlýsing frá Terry Davis framkvæmdastjóra Evrópuráðsins segir eiginlega allt sem segja þarf um ástandið.

"The Italian Minister of Interior is reported to have proposed that all Roma, including children, living in camps in Italy should be fingerprinted. This proposal invites historical analogies which are so obvious that they do not even have to be spelled out. While I believe that Italian democracy and its institutions are mature enough to prevent any such ideas becoming laws, I am nevertheless concerned that a senior member of the government of one of Council of Europe member states is reported to have made such a proposal.”

Innanríkisráðherrann er úr Norðurbandalaginu samstarfsflokki flokks Berlusconi. Hann ásamt borgarstjóranum í Róm hafa sent frá sér ótrúlegar yfirlýsingar sem hafa ekki aðeins bitnað á Róma fólkinu heldur fjöldamörgum (öðrum) innflytjendum.

Ég trúi ekki öðru en að íslensk yfirvöld þ.m.t. lögrega meðhöndli Roma slétt eins og annað fólk svo ég tali nú ekki um fjölmiðlafólk.  Full ástæða er til aðgætni þar sem fordómar í garð Róma fólks eru mjög inngrónir.  Mér finnst t.d. að fjölmiðlar ættu að nefna Roma sínu nafni en ekki gildishlöðnu norrænu heiti sem þeir sjálfir vilja ekki kannast við.

 


Vestræn gildi -múslimar og hollenskur þingmaður !

Þúsundir Múslima taka þátt í stjórnmálum á Vesturlöndum sem þingmenn, sveitarstjórnarmenn. Þúsundir og aftur þúsundir eru embættimenn í stjórnarráðum, hérðasstjórnum og sveitarstjórnum.  Þúsundir og aftur þúsundir múslima taka af heilum hug þátt í hinu lýðræðislegu þjóðfélögum á vesturlöndum. Langflestir múslima á vesturlöndum virða lýðræðið og lýðræðisleg gildi ekki síður en þeir sem teljast kristnir og miklu frekar en þær þúsundir sem telja sig nýnazista eða hallir undir viðlíka öfgasamtök.  Múslimar á vesturlöndum, sem við köllum svo af því að þeir eiga uppruna sinn í löndum þar sem Múhameðstrú er ríkjandieru margir ekkert síður veraldlegir í hugsun en hinir kristnu. Múslimar eru þetta 2-8% af íbúafjölda ríkja í vestanverðri og norðanverðri Evrópu t.d. um 4% Dana. Minna en einn Dani af hverjum tuttugu er sem sagt múslimi. Hlutfallið hefur ekki aukist undanfarin ár.  Samt eru menn að ala á múslimafóbíu talandi um að ,,þeir” séu að brjóta niður samfélög ,,okkar” eins og hollenski þingmaðurinn í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gær. Hræðsluáróðri hans er reyndar hafnað af langflestum sem til máls tala. Hann elur á hræðslu og ótta sem kemur fram í ofbeldisverkum gegn múslimum sem víðast hvar eru í verstu djobbunum, búa við lakastan húsakost og upplifa oft á tíðum ósæmilega framkomnu í sinn garð af hálfu kristinna manna sem eru þá aftur þeir sem eiga uppruna sinn í löndum þar sem kristni hefur verið ríkjandi.

Við gerum þá kröfu að allir fari eftir lögum samfélagsins og virði vestræn gildi.  Meðal vestrænna gilda er að allir þegnar samfélagsins sitji við sama borð. Samt er það viðurkennd staðreynd í Evrópu að lög eru brotin á múslimum þegar kemur að réttindum til atvinnu og framgangs í starfi og kaup eða leigu á húsnæði. Skiptir þá engu hvort menn eru nýfluttir eða hafa borist til vesturlanda ófæddir í genum forfeðra sinna.


Af svikaprettum Rúmena eða Roma fólks eða Sígauna?

Fyrir nokkru voru nokkrir Rúmenar staðnir að svikaprettum hér á Suðurlandi þegar þeir seldu grandalausum Selfyssingum glingur sem verðmæta skartgripi. Bæði lögreglan og fjölmiðlar töluðu um Sígauna í þessu sambandi.  Einn sagði að þeir hefðu líkst Sígaunum!?  Fyrir utan það að það er mjög hæpið að kynþáttagreina fólk með þessum hætti þá spyr ég: Af hverju notum við ekki Roma eða Roma fólkið þegar við tölum um fólk af þessum ættkvíslum sem okkur er tamt að kenna við Sígauna og á uppruna sinn í djúpi sögunnar í Indlandi? (sjá færslu mína hér fyrir nokkru). Ég er viss um að þetta Rúmenska fólk hefði ekki  viljað láta kalla sig Sígauna og sennilega aldrei heyrt það orð.  Það er hins vegar líklegt að það hefði samþykkt að vera kennt við Roma, Roma fólkið sem þýðir eiginlega manneskjur.

Roma er það heiti sem fólkið sjálft vill nota.  Í nær öllum löndum Evrópu. Sumir nota þó Roma-Gypsy, aðrir Roma-Sintí. Aðeins einu sinni hef ég hitt Roma sem góðkenna Sígaunanafnið.

Haraldur Ólafsson vakti athygli á því fyrir áratugum að Eskimóar gengjust ekki við því heiti og vildu láta kalla sig Inuita.  Það bar árangur. Við vísum yfirleitt til Inuita. Ég spyr: Ætum við ekki af sömu ástæðu að fara að nota Roma fólkið eða Róma fólkið yfir það fólk sem við höfum nefnt Sígauna og hefur á sér flökkubragð en ekki næstum því allir Róma eru flakkarar, öðru nær.  Mundum við kjósa að vera kallaðir eitthvað annað en við vildum?

Gaman væri að fá málefnaleg sjónarmið á þetta frá blaðamönnum, íslenskufræðingum eða mannfræðingum eða bara venjulegum bloggurum sem eru margir hverjir vel að sér og vel menntaðir nema hvort tveggja sé.


Eitt samfellt ævintýri

Nú skal slegið í helgarreisu að Svínafelli í Öræfum sem er næsti bær við Skaftafell hjarta hins víðlenda og flotta Vatnajökulsþjóðgarðs.  Þarna er einn fegursti blettur Íslands svartur sandurinn, blá lúpínan, grasið grænt, hrikaleg fjöllinn, bláhvítur jökullinn og ber við bláan himininn. Í góðu veðri ríkir þarna fegurðin ein svo jafnvel Gunnlaugur B. Ólafsson væri fullsæmdur af með sitt Stafafell í Lóni þar sem Lónsöræfin hrikaleg glitra í öllum regnbogans litum hrikaleg himni mót með sífelldar ögranir á göngumanninn.

Ræman sólarmegin við Vatnajökul frá Skaftafelli að Staðarfelli er annars eitt samfellt ævintýri.  Útivist á íslandi að sumarlagi er það einnig.  Því miður þá njóta ekki allir þeirra lífsgæða. Menn átta sig ekki á þessu:  Eru latir, staðir eða þunglyndir og svo eru auðvitað margir sem ekki hafa efni á því að taka sér frí og ferðast innanlands.  Þó ættu flestir að hafa efni á þvú að  ferðast með bakpoka og tjald í rútu eins og útlendingar gera margir.

Það þarf að auglýsa þessa paradís, Ísland,  betur. Íslendingar eru orðnir vanir því að láta auglýsa allt ofaní sig. 


Farinn að hljóma eins og Bjarni Harðarson...!

Geir Haarde telur allt eins koma til greina að taka upp dollar eins og evru.  Um leið og hann segir það í Viðskiptablaðinu í gær gefur hann það í skyn að við gætum allt eins tekið upp Skandinavískar myntir.  Upptaka dollars myndi þýða að við færðumst enn þá meir yfir á Bandarískt áhrifasvæði og fjarlægðumst Evrópu. Vill forsætisráðherra það? Sér hann það í alvöru lausn fyrir Íslendinga að taka upp norska krónu? Eiga þá Norðmenn að stjórna sveigjanleikanum?  Vitaskuld er Evran eini raunhæfi kosturinn. Það er hafið yfir allan skynsamlegan vafa.

Það verður svo að segjast alveg eins og er að forsætisráðherra er farinn að hljóma eins og Bjarni Harðarson þegar talinu er vikið að myntmálum og evrópumálum.  Það er hlaupið úr einu víginu í annað.  Leitað út um allt að rökum gegn hinni óhjákvæmilegu og nauðsynlegu þróun.

Það er svo aftur gráglettni örlaganna að forsætisráðherra hefur vísað í málflutning hins nýja þingmanns (Bjarna) daginn eftir kosningar sem rök fyrir því að halda ekki inn í kjörtímabilið með eins manns meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.  Reynslan er að sýna það að þeir hefðu sofið vært saman í ríkisstjórn(fljótandi að....) skoðanabræðurnir.


Hvenær afnámum við aftur þrælahald..?

Íbúðarlán sem ég tók fyrir 6 mánuðum og var 8, 3 milljónir stendur nú í 9.1 milljón. Þó ég hafi greitt tæplega 300 þúsund krónur af láninu hefur lánið hækkað um tæplega 700 þúsund krónur.  Á sama  tíma hefur kaupið mitt staðið í stað og þess vegna lækkað að raunvirði væntanlega um tæp 10%.  Allt sem ég þarf að kaupa hefur hækkað um minnsta kosti um 10% svo sem matvara og olía.  Markaðsvirði húseignar minnar hefur lækkað á tímabilinu (um a.m.k. 10%) og mun lækka enn meira. Ég hef verið ginntur inn í svikamillu.  Ég hafði ástæðu til að ætla að kerfið sem umlykur mig væri réttlátt en svo er ekki. Einhverjir aðrir en ég hafa allt sitt á hreinu.

Nú eru þetta lágar upphæðir enda ég kominn fyrir vind í lífinu. En þrefaldi maður íbúðarlánið, setji það í 24 milljónir sem mun vera raunveruleiki margra í dag þá hækkar slíkt lán um tæplega 300 þúsund krónur á mánuði eða 3,6 milljónir á ári þrátt fyrir að skuldari  hafi greitt 1,8 milljón í afborganir, verðbætur og vexti. Á sama tíma lækkar kaup viðkomandi að raunvirði og kostnaður við að lifa snareykst.  En það er þess vegna sem lánið hækkar.........Hvenær afnámum við aftur þrælahald?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband