Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Hraksmánleg meðferð á Roma fólkinu !
24.6.2008 | 14:36
Roma fólkið er að komast í sviðsljósið eftir hraksmánlega meðferð á Ítalíu þar sem búa 150 þúsund Roma þar af um 60 þúsund frá Rúmeníu. Í framhaldi af ódæðisverkum sem rakin eru til ólöglegra innflytjenda frá Rúmeníu þar af er a.m.k. einn Roma eða Sígauni(eins og okkur er tamt að nota) hafa ofsóknir á hendur þessu fólki aukist m.a. vegna óásættnlegs orðfæris stjórnmálamanna af hægi öfga væng (sem eiga nú aðild að ríkisstjórn og fara t.a.m. með Innanríkisráðuneytið). Evrópuráðið (ECRI) hefur mótmælt þessu framferði stjórnmálamanna og fyrirhugaðri lagasetningu (sem auðvelda mun stjórnvöldum að reka fólk fyrirvaralaust úr landi) sem stenst tæpast neina mannréttindakvarða.
Mér eru málefni Roma fólksins hugleikin enda unnið með þau og dreg hér upp gamla grein til fróðleiks (í bili vegna veðurs).
,,Sígaunar eða Roma fólkið eins og það er víða kallað eða Roma-Sintí fólkið eða Roma Gypsi er að finna í flestum löndum Evrópu. Uppruni þess er talinn vera á Indlandi annars er hann horfinn í huliðshjúp sögunnar. Margt af Roma fólkinu hefur aðlagast samfélögum sínum prýðilega en annað ekki. Þeir sem fjallað hafa um Roma fókið draga fram að það hugsi meira í fjölskyldutengslum en samfélagstengslum, hugsi meira um að lifa lífinu meðal sinna nánustu en að ná frama í samfélaginu sem verður þeim meira framandi en öðrum. Í gegnum aldirnar hafði Roma fólkið meira svigrúm en nú til þess að ferðast eftir sínu höfði og hirti ekki um ríkisfang. Þeir áttu samt sín svæði og sín þing. Með lokuðum ríkjum og reglugerðarverki nútímans hefur líf þeirra orðið erfiðara og þeir í auknum mæli verið neyddir til að setjast að um kyrrt og reyna að aðlagast þjóðfélaginu. Það hefur gengið misjafnlega og ekki hefur bætt úr að þeir mæta alls staðar fordómum þar sem þeir koma og þar sem þeir eru: Gott dæmi af íslenskri bloggsíðu :
Sígaunar þessir héldu sterkt í menningu sína sem einkennist einna helst af betli og þjófnaði.
Verið er að tala um hópinn sem kom hingað (hljóðfæraleikarar sem lögreglan sendi úr landi). Skæðari kynþáttafordóma og endurspeglast í þessari setningu er vart hægt að hugsa sér.
Víðast hvar býr Roma fólkið við fátækt. Það á erfitt með að fá vinnu og húsnæði og mjög fáir ganga menntaveginn. Verst eru kjör þeirra í Rúmeníu. Ótrúlega hátt hlutfall Roma barna þar eru í skóla fyrir seinþroska nemendur og oftast er ástæðan sú að þeir eru illa heima í máli svæðisins. Mjög fáir Roma ganga menntaveginn.
Það að vera Roma þýðir að þú færð ekki inngöngu í skóla hversu fær sem þú ert. Þú færð ekki húsnæði hversu venjulegur sem þú ert og þú færð ekki vinnu hversu duglegur sem þú ert.
Ég heimsótti Romahverfi í útjaðri Kiev um daginn ( vor 2007) og það var mikil fátækt. Fólkið þar hafði haft vinnu í verksmiðju sem var lögð niður. Það flutti á staðinn vegna verksmiðjunnar fyrir áratugum síðan og byggði sín hús. Það hafði ekki hirt um lóðaleigusamninga. Nú voru stórfyrirtæki að hrekja þau af lóðum sínum og veifuðu þinglýsingum. Einhverjir mannréttindalögfræðingar voru komnir í málið. Þær sögðu okkur konurnar að þeim væri alltaf sagt fyrst upp.
Þó að aðstæður þarna væru ömurlega þá var gleði og kátína ríkjandi. Allar konurnar höfðu safnaðst saman við stórt borð og spiluðu lottó eða bingó. Sælgætismolar voru í verðlaun.
Menning Sígauna er nefnilega rík og fjölbreytt. Fjölskyldu- og vinahópar halda vel saman eins og fyrr segir, dans og söngur og hljóðfæraleikur er mjög áberandi í menningu þeirra og alls kyns töfrabrögð og leikir. Litskúðugur og sérstakur fatnaður kvennanna er dæmigerður og skartklæði karla og kvenna einstök.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Frammarar í toppbaráttu !
24.6.2008 | 11:34
![]() |
Tottenham á eftir Gomes |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Steingrímur -meira en einnar messu virði !
23.6.2008 | 08:59
Ég vildi að ég hefði komist til að heiðra Steingrím Hermannsson í gær. Það var synd að Framsóknarflokkurinn skyldi setja málþingið um hann á messutíma. Það hefði sá mæti flokkur ekki gert hér á árum áður þegar elítan sótti enn messur enda hefði það varðað við landslög. Eftir á að hyggja hefði ég átt að aflýsa messunni sem ég sjálfur saung því að Steingrímur Hermannson er svo sannarlega meira en einnar messu virði.
Ég kynntist Steingrími aðeins á árum áður. Sá hann á fundum og ráðstefnum eins og gengur og svo hringdi hann stundum í mig á þeim tíma sem ég skrifaði leiðara og pistla í NT. Þetta voru reyndar pínu vandræðaleg símtöl því að það áttu ekki að vera tengsl milli NT og Framsóknarfokksins- það var hugmyndafræðin. En hvað gerir ungur drengur með pennastöng þegar formaður Framsóknarflokksins hringir í hann. Hann reynir að halda sínu en hann er samt feiminn og kurteis. Steingrímur var einnig mjög kurteis og þetta var ábyggilega hluti af daglegri rútínu stjórnmálaforingjans - að hafa áhrif sem víðast. Og það hafði hann. Hann var í orðræðu maður skynseminnar og hófseminnar og hann vildi einlæglega stuðla að réttlátu og góðu samfélagi. Leiðarar mínir urðu eflaust betri og örugglega eilítið Framsóknarlegri vegna þessara samtala - enda Framsóknaráratugur og landsbyggðin átti ennþá möguleika.
Loksins er fylgi Sjálfstæðisflokksins að minnka á landsbyggðinni. Kannski er sveitavargurinn að verða skynsamari því að frjálshyggja eða óheftur markaðsbúskapur er sú stjórnmálastefna sem síst er hliðholl dreifðum byggðum. Það er miklu hagkvæmara út af fyrir sig að allir búa á sama blettinum. Landsbyggðarmenn ættu að fylkja sér um Vinstri græna og Framsókn flokka sem eru vísir til að styrkja landsbyggðina og þeir ættu auðvitað að styðja aðild Íslands að ESB og komast þannig í byggðasjóði Evrópusambandsins.
Það er hins vegar eðlilegt að Sjálfstæðismenn séu sterkir í harðasta þéttbýlinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagshugvekjan
22.6.2008 | 10:47
Sumarið hefur sigið inn með öllu sínu veldi. Sólin allan sólarhringinn. Þetta er ótrúlegt. Náttúran er lifnuð. ,,Allt í fjöri iðar titrar/ angar blóm sem fyrrum kól. Dásamlegur tími fyrir okkur Íslendinga sem við mættum gera meira af því að njóta. Þó ekki væri nema með því að leggjast út á grasflöt, finna gróðurangan, nema suð býflugunnar, fegurð blómanna, finna fjögurra laufa smára, óska sér, gleyma áhyggjum, lifa í núinu, lifa í dagþéttri veröld eins og barn eða dýr, hafa ekki áhyggjur af stríði eða friði, glæp eða refsingu, lífi og dauða, bara vera, njóta verundarinnar, fíla lífið í botn. ,,Sé maður gamall er gott á horfa á börnin leika sér í grasinu áhyggjulaus og glöð, sjá sig í sporum þeirra, minnast liðinna daga með ánægju. Baða sig í skini sólar yst sem innst. Láta gleðina leika um sig. Grípa hamingjuna sem er hérna innan seilingar. Sunnudagur dagur sólarinnar dagur gleðinnar dagur hvíldarinnar. Aldrei skulum við vanmeta hvíldina. Það er gott að hvíla lúin bein. Gott að hvíla hugann líka. Sökkva sér niður í Sunnudaginn. Láta öðrum dögum amstrið eftir. Hafa mánudaginn til sinnar mæðu.
Í dag er samkvæmt kirkjutímatalinu fimmti sunnudagur eftir Þrenningarhátíð en þrenningarhátíð eða trínitatis er sunnudagurinn eftir Hvítasunnu. Jesús er í guðspjalli dagsins við Geneseretsvatn og mannfjöldinn þrengir að honum til að hlýða á Guðs orð. Við ,,eftirbátar hans þurfum ekki að hafa bát til taks þó að kirkjunni sé reyndar sótt eins og á öllum tímum reyndar af fólki sem hafnar trúarbrögðum, telur þau vera vitleysu í besta falli saklausa í versta falli stórhættulega. En Jesú sá tvo báta við vatnið og fiskimenn að þvo net sín. Hann bað mann að nafni Símon að leggja lítið eitt frá landi og tók að kenna mannfjöldanum úr bátnum. Þetta er glæsileg sviðsetning ræðunnar. Síðan segir hann við Símon: ,,Legg þú á djúpið og þeir fylla bátinn. Við þekkjum eftirmálann: ,,Héðan í frá skaltu menn veiða sagðann og þeir yfirgáfu allt og fylgdu honum.
Þetta er málið: Hann kallar í sína þjónustu karla og konur og framkvæmir með þeim verk sitt á jörðu. Hann kallar mig og þig en til hvers? Til allra góðra verka væntanlega. Bæði til þess að verða miskunnsamir Samverjar og reisa við þá föllnu, bera út í sólina þá sem ekki geta farið þangað sjálfir. Kynslóðirnar hafa í nafni hans reynt að lækna sjúka, bera smyrsl á sárin, aðstoða fátæka, standa með þeim sem minna mega sín, boða réttlæti, miskunnsemi, frið. Þeir hafa rekið málstað barna og gamalmenna, hinna kúguðu, afskiptu. Þeir hafa boðað og barist fyrir réttlátum samfélögum í stíl við guðsríkið framtíðarsýn allra kristinna manna þar sem réttlætið eitt ríkir. Þeir hafa boðað fagnaðarerindið ekki bara í orði heldur einnig í verki.
En boðendur hans hafa einnig drepið, misþyrmt, kúgað. Stuðlað að því að viðhalda misskiptingu, misrétti, þrælahaldi, dauðarefsingum, kvennakúgun í hans nafni. Í þessum efnum sannast hið fornkveðna: Veldur hver á heldur. Þar sem hann er ekki lengur í bátnum útifyrir í eiginlegri merkingu þá verðum við að treysta hvert öðru og okkar eigin hugsun þegar kemur að því að útleggja orð hans. Þegar kemur að því að gefa orðum hans vængi.
Hvernig má þetta vera?
Bókstafshyggjan gerir ráð fyrir því að Guð hafi gripið inn í söguna og sett ófrávíkjanlegar reglur. Svona skal þetta vera ,,drengir", þá væntanlega. Líkt og hann gerði ekki ráð fyrir þróun í hugsun mannsins, nýrri þekkingu, þróun hugmynda. Ég sé ekki alveg fyrir mér nútíma samfélag jafnréttis, lýðræðis, þekkingarleitar og framþróunar ef þessi áhersla hefði náð yfirhöndinni í kristnum samfélögum. Þá hefðum við ennþá þræla, konan væri ennþá ,,bakvið eldavélina og við fyrirlitum homma eins og fyrrum. Og ég sé ekki fyrir mér að kristin lífssýn verði meðal höfuðafla í hugmyndadeiglu framtíðar ef framlag hennar verður það eitt að hanga á því sem einu sinni var álitið rétt í ljósi orða Biblíunnar eins og hægt er að skilja þau bókstaflega.
Sú leið sem meirihluti kristinna manna hefur hins vegar ætíð farið er að leggja kærleiksviðmið Jesú Krists á alla hluti. Biblían er þeim vissulega innblásið Guðs orð en hana ber að skilja út frá kærleika Krists, túlka út frá kærleiksviðmiði því sem hann setur.
Nýir tímar kalla sífellt á ný viðfangsefni, nýja sýn, nýja túlkun, byggðra á reynslu mannkyns, nýrri þekkingu, nýjum rökum, himininn yfir oss er stöðugt að breytast. Þá ætti svar hinna kristnu manna við hverju nýju viðfangsefni að vera: Hvernig hefði hann brugðist við úr bátnum? Hvað hefði hann sagt? Hvernig rímar þetta við boð hans: ,, Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra?. Hvernig rímar þetta við boð hans: ,, Þú skalt elska....náunga þinn eins og sjálfan þig? Hvernig rímar þetta við það allir séu skapaðir í Guðs mynd? Hvar er kærleikur hans í þessu? Fordómaleysi? Sá sem grefur sig inn í bókstafstrúna og veifar sífellt fordæmandi setningum og setningarhlutum úr Biblíunni, honum má líkja við hellisbúa sem grefur sig sífellt lengra inn í fjallið en gengur ekki mót hellismunnanum og horfir yfir víðlendar sléttur, sér sól rísa yfir nýjum degi, rismikil fjöll, gróskumikla skóga, gleði og hamingju mannlífsins, ný og spennandi úrlausnarefni. Hann er eins og saltstólpi, fjötraður í eigin bing. Saltstólpar ferðast ekki. Hvorki með Kristi né öðrum. Kristnum er ætlað annað hlutskipti. Þess vegna kom Kristur fram og smellti kærleikanum í hvert orð, hverja hugsun, hverja sýn. Við eigum að fylgja honum. Verum með í ferð Krists í átt til framtíðar. Yfirgefum allt sem bindur hugsun okkar, leysum fjötra vanahugsunar og fylgjum honum. Áfram gakk..
Mestu mistök lýðveldistímans!
20.6.2008 | 07:17
Og það er skelfilegt að virða fyrir sér íslenskar hagtölur. Bretar eru ekki með böggum Hildar vegna þess að verðbólga stefnir í 4,5% og vextir nálgast 5% markið.
Börn ,,costs and benefits"
18.6.2008 | 13:56
![]() |
Há slysatíðni íslenskra barna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skódi flotti/spýtir gotti.
13.6.2008 | 08:24
Í þessu sem öðru er ég gáfaðasti Íslendingurinn. Síðan ég keypti svarta skodann minn fyrir tveimur árum hef ég tileinkað mér sparakstur. Ég ek eins og leiðinlegu leigubílstjórarnir gerðu í gamla daga. Lengi að fara á ferðina. Lengi að hægja niður. Ek á jöfnum hraða. Best er að vera á 76 km. hraða en ég ek á tæplega 90 km. hraða til þess að verða síður drepinn af augnaráði og hugsunum hinna bílstjóranna sem vilja fram úr á hinum einbreiða vegi. Ég nota hraðaátómatið nema ég slæ það af í brekkum bæði brekkum upp og brekkum niður. Á ferðum mínum milli Höfuðborgarinnar og Þorlákshafnar stoppa ég í Litlu kaffistofunni til að slaka á frá spennu umferðarinnar.
Á leið minni heim frá Prestastefnu hinnar evangelísku lúthersku þjóðkirkju í gær þar sem prestar börmuðu sér svo sem vera ber heilmikið út af vinnuálagi og dýrtíð reyndi ég í örvæntingu minni að spara sem mest við aksturinn þó ekki væri nema til þess að geta mögulega gefið fátækum einhverja smáaura og ég ók alveg sallafínan sparakstur og árangurinn samkvæmt hinni óskeikulu tölvu bílsins 3,5 lítra eyðsla miða við 100 km. akstur. Ég fór sem sagt frá Seljakirkju í Reykjavík austur í Þorlákshöfn á 1,7 lítra af olíu. Ég er Gull og gersemi/Guði sjálfum líkur orti Sölvi Helgason að vísu um sig en ekki mig. En vissulega sparaði ég þarna mikið gull.
Þetta var að vísu óvenju lítil eyðsla enda smá vindskotta í bakið en iðulega er ég nálægt þessu. Þeir spilla aðeins fyrir manni sem eru sífellt í bakinu á manni og sýna engan skilning hvorki á orkubúskap heimsins eða fjármálum fjölskyldu minnar eða sinnar. Flestir virðast eiga næga fjármuni til að spreða út í andrúmsloftið. það er eins og þeir eigi olíufélögin.
Mér var strítt þegar ég var lítill og fjölskyldan átti Skoda. Skódi ljóti/spýtir grjóti sögðu krakkafíflin. Nú segir ég stoltur Skódi flotti/spýtir gotti því að við ég og mín fjölskylda höfum efni á að stoppa í öllum sjoppum og kaupa allt það gott sem okkur langar í. Öfugt við alla hina kjánana sem sperrast þetta áfram eins og þeir hafi bara bensínfætur en engin höfuð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Svartur prestaormur!
11.6.2008 | 17:23
Ég veit ekki hvort það er rétt hjá prestunum að sniglast svona um bæinn eins og svartur ormur að sumu leyti eins og aftan úr grárri forneskju. Þetta er einhvern veginn ekki ,,núna. Þetta er einhvern veginn ,,þá. Þess vegna vekur svarthöfði blessaður upp bros jafnvel hjá guðhræddasta fólki. Hver myndi ekki kíma að sjá tíu þúsund immana sniglast um Istanbul á leið til þings síns? Í mussum og skrautklæðnaði á víxl eftir því hverjir væri valdamestir.
Andrúmsloftið í þessum efnum hefur breyst á áratug eða tveimur. Hluti af skýringunni er að galgopar eru farnir að taka til máls áður en galgopaskapurinn rennur af þeim. Hið kristna samfélag menntar nú fleiri skjótt og vel en nokkurn tímann fyrr og tæknin hefur í formi internetins gefið hverjum og einum sinn prédikunarstól. Og þeim vantrúuðu virðist liggja meira á hjarta en þeim trúuðu. Þeir óánægðu eru alltaf meira áberandi en þeir ánægðu.
En,gamanlaust. Tónninn er að breytast í samfélögum Vesturlanda. Veraldarhyggjan hefur tekið yfir. En kristnir menn halda áfram að þramma í gegnum söguna til fyrirheitna landsins. Spurning hvort þeir ættu ekki allir að vera í litklæðum sem hæfir jú erindi okkar fagnaðarerindinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Tákn um frelsi hins fullkomna töffara!
11.6.2008 | 07:43
Umfjöllun um jarðskjálftana á Suðurlandi þar sem einn maður meiddi sig er miklu meiri en samanlögð umfjöllun fjölmiðla um banaslys í umferðinni á Íslandi síðustu tíu árin. Fórnarlömb umferðarhörmunganna skipta þó hundruðum og mörg þúsund manneskjur eiga um sárt að binda ævilangt. 20-30 manneskjur láta lífið í umferðinni á Íslandi árlega. 20-30 fjölskyldur brotna saman af sorg og örvinglan árlega. þeir sem valda dauðaslysum með glæpsamlegum akstri fá prófið sitt fljótlega aftur. Menn líta á það sem sport að aka án réttinda. Allir fá bílpróf, líka dómgreindarlausir bjálfar. Virt bílaumboð auglýsa glæsilega bíla sem tæki fyrir töffara og ofurhuga. Tákn um frelsi hins fullkomna töffara. Menn sýsla við græjurnar, éta, reykja og tala í síma þegar þeir aka. Léleg og ófullkomin umferðarmannvirki eru í notkun. Í þorpum og bæjum hafa göturnar forgang. Litið er á beiðnir um gangbrautir, hraðahindranir, hraðatakmarkanir og beiðni um skilti um varúð vegna barna sem raus og röfl í íbúum. Hugarfar okkur þegar kemur að umferð og bílum er hreinlega fáránlegt og býður hættunni heim. Alvöru hættu. Hættu sem sviptir okkur lífinu og lífshamingjunni.
![]() |
Á ofsahraða á stolnum bíl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindadómstóll og íslensk stjórnvöld!
10.6.2008 | 07:48
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)