Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Af frambærilegum mönnum!
9.6.2008 | 18:53
Óskar Bergsson er einn frambærilegasti fulltrúi Framsóknarflokksins, skynsamur, jarðbundinn og hugsar áður en hann talar. Hjarta hans slær til vinstri. Það væri mjög óklókt hjá Samfylkingunni að móðga hann út af borðinu. Hallur Magnússon bloggmeistari ætti að verða kandidat Framsóknarflokkins í borginni til Alþingis enda bæði sviphreinn og tillögugóður. Hefur ótvíræðan kjörþokka. Örflokkurinn hefur ekki efni á því að sniðganga slíka talenta.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þegar haustar kemur vetur vonbrigðanna!
9.6.2008 | 08:20
Frammarar komnir í gírinn.. Nú þekki ég mína menn. Spila betur en hitt liðið og tapa. Það er hinn frumkristni hugsanagangur. Rúlla ekki yfir aðra. Sjá til þess að aðrir fari glaðir heim. Við erum svona fórnarar, við Frammarar.
Það er hins vegar allt með öðrum brag hjá okkur í Tottenham Hotspur. Sumarið er okkar tími. Þá vinnum við okkar stærstu sigra. Þá kaupum við snillinga. Núna efnilegasta drenginn hjá Barcelóna. Nítján ára snilling. Þegar haustar kemur vetur vonbrigðanna, ellefta, tólfta sætið og nýr þjálfari. Svo leggjumst við aftur í sigurgöngu næsta sumar.
Í þeirri miklu grein körfubolta á ég einnig mína menn, Þeir klæðast grænu og eru Bolton Celtics. Og við unnum Lakers aftur í nótt. Glæsilegt. Ég hvarf aftur til áranna upp úr 1980 og sá fyrir mér Larry Bird, Kevin McHale og Róbert Parish. Nú höfum við eignast nýja þrenningu sem ég er ekki búinn að læra nöfnin á. En það kemur.
Kosturinn við að vera eldri en tvævetur er að maður man blómatíma liðanna sinna. Spurs 1961. Frammarar undir stjórn Ásgeirs Elíassonar 1985-1990 og Boston Celtics á níunda áratugnum. Maður þarf blómatíma af og til og getur þá lifað kreppuna af. Á meðan þrengir að hjá manni í boltanum njóta aðrir sigra. Þannig á það að vera.
Því miður vinna samt ekki allir. Hvorki í boltanum eða í lífinu sjálfu. Stundum spila menn bara einfaldlega illa úr lífi sínu. Stundum eru menn eins og Frammarar. Spila vel en tapa samt. Það er eiginlega versti verkurinn.
Sigurinn felst í uppgjöfinni
8.6.2008 | 13:35
Seigla Hillary Clinton er eftirdæmi verð. Þó að það hafi legið fyrir í sex vikur hjá öllum nema nokkrum blindum stuðningsmönnum að Hillary væri með tapað spil hefur hún haldið áfram, haldið áfram og haldið áfram. Hún hefur neitað að gefast upp, ekki misst móðinn, ekki látið hugfallast. Þess vegna er hún ennþá inn í myndinni. Þess vegna kemur hún ásamt Barak Obama út sem sigurvegari úr forkosningum demókrata sem hún þó tapaði.
Allir sem eru að bjástra við markmið af hvaða tagi sem er ættu að taka sér hana til fyrirmyndar. Ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Láta ekki þann fjölmenna hóp sem alltaf er að tala allt niður hafa áhrif á sig. Fólk á að fylgja sannfæringu sinni. Fólk á að fylgja metnaði sínum eftir. Engan músaleik takk. Berjumst áfram. Gefumst ekki upp.........
fyrr en að því kemur að sigurinn felst í uppgjöfinni. Hættum þá, ekki fyrr. Þetta augnablik held ég að Clinton hafi fundið.
![]() |
Obama hrósar Hillary Clinton |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Latir og feitir karlar!
6.6.2008 | 07:34
Ég heyri í útvarpinu að skilnaðartíðni á Austfjörðum hefur snaraukist á tímum virkjana og verksmiðjubygginga. Vitaskuld hefur það áhrif á hjónabönd þar eystra þegar þúsundir myndarlegra karlmanna streyma inn á svæðið sumir að sunnan, aðrir frá Hornafirði enn aðrir frá Bratislava eða Kænugarði menn aldir upp á helstu siðmenningarsvæðum Evrópu. Það hafa auðvitað skapast sömu skilyrði og í hernáminu hérna um árið þegar Bretar og Bandaríkjamenn heilluðu íslenskar fegurðardísir með kavalíelliframkomu og snyrtimennsku, Chesterfield sígarettum og sígildum danssporum. Enn og aftur hefur það komið í ljós að karlmenn eru latir og feitir heima hjá sér en hin mestu sjentilmenni að heiman og bera þá með sér ilm framandi slóða.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hin heimska, íhaldssama og grimma kirkja!
5.6.2008 | 08:35
Hvað er síminn að kenna okkur með auglýsingum um G 3 síma. Fyrir utan boðskapinn um símann lærum við að kirkjan á miðöldum hafi verið heimsk, grimm, ihaldssöm og skilningssljó. Hún hafi barist á móti tilraunum mannsins til að skilja veröld sína. En var þetta svo eins og Síminn segir?
Bæði og. Vissulega höfðu öfl sem lýsa má með lýsingarorðunum hér að ofan iðulega undirtökin innan kirkjunnar en þar voru líka frjálslyndir og víðsýnir menn sem auðvitað unnu hægfara sigra. Iðulega munaði mjóu í atkvæðagreiðslum í rannsóknarréttinum þar sem öfl þessi tókust á. Kirkjan endurspeglaði sem sagt á miðöldum sjónarmið menningarelítunnar og Biblían var þá eins og nú baráttutæki í höndunum á bæði íhaldssömum mönnum og frjálslyndum. Líkt og nú er.
Í auglýsingum símans er sem sagt dregin upp einhliða mynd af kirkjunni á miðöldum. Síminn má það. Hann hefur rétt til þess að kaupa sér aðgang, með hvaða boðskap sem er nánast, að okkur heimskingjunum sem borgum fyrir það að vera útsett fyrir auglýsingar sem móta í vaxandi mæli hugmyndaheim okkar.
þannig má búast við því að 99% af áhorfendum fái aldrei gleggri mynd af miðöldum en þeir fá af auglýsingum símans. Jón Gnarr er með öðrum orðum áhrifameiri en allir prófessorar í Háskólanum á Íslandi í sögu og menningarsögu.
Og kaþólskir segja upp símanum og mótmæla með undirskriftum. Þeir eru í sjálfu sér bara að gera það sama og múslimar vegna dönsku teikninganna sem hætta að kaupa danska vöru og menningarvitar sem aldir eru upp í fásinninu í Reykjavík eða Árósum geta ekki skilið. Til þess að hnykkja á samanburðinum skal fullyrt að skiptu kaþólikkar hér á landi milljörðum þá væru örugglega einhvers staðar uppþot og læti.
![]() |
Segja upp viðskiptum við Símann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
Ted Kennedy og bandaríska heilbrigðiskerfið!
4.6.2008 | 07:41
Ted Kennedy er búinn í heilaskurðinum. Hann handpikkaði skurðlækna. Hann valdi sér sjúkrahús. Fyrir nokkrum árum gerði hann það sama þegar dóttir hans fékk krabbamein. Kennedy greiðir starfsfólki spítalanna sem annast hann aukalega. Aðgerðin virðist hafa tekist vel og Kennedy er kominn í geislameðferð. Elskaður og dáður öldungadeildarþingmaður. Einn af þeim allra áhrifamestu. Karismatískur orator og löggjafi.
Á ferli sínum hefur Kennedy barist fyrir endurskipulagi bandaríska heilbrigðiskerfisins og horft til Kanada í því sambandi. Kanadíska kerfið er giska líkt því sem er á Íslandi. Jafn aðgangur, ódýrt, bannað að kaupa sig framfyrir. Fox fréttastöðin sem hefur fjallað mjög virðulega um Kennedy í veikindum hans hefur samt bent á að ef Kennedy hefði náð sínu fram hefði hann líklega ekki getað valið sér skurðlækna eða sjúkrahús hvorki fyrir sig eða dóttur sína. Einn álitsgjafinn, yfirlæknir, gekk svo langt að segja að í kanadíska eða breska kerfinu væri Kennedy kominn á biðlista sem væru að jafnaði sex mánaða langir. Hann bætti því reyndar við að í þessum ríkjum væru áhrifamenn teknir framyfir almenning þó enginn talaði um það. Hvernig skyldi það vera hér?
Hvað sem því líður er hér á ferðinni siðferðlegt pæling. Auðkýfingurinn notfærir sér sín réttindi í kerfi sem hann vill sjálfur afnema vegna skorts á jafnræði. Jafnræðið hefði að öllum líkindum leitt til þess að hann hefði ekki ráðið eins miklu og raunin varð um eigin meðferð. Hefði hann kosið sínar eigin breytingar í ljósi þess að það skerti hans eigin forréttindi? Eða verður bæði sleppt og haldið.
Ekki efast ég um heilindi Kennedys en fell fyrir pælingunni. Vonandi nær Kennedy sér vel og vonandi nær hann fram umbótum á bandaríska heilbrigðiskerfinu þar sem tugmiljónir eru án sjúkratryggingar.
Við stöndum hins vegar frammi fyrir þeim vanda að við vitum ekki hvers konar umbætur við viljum. Íslenska kerfið hefur misst sjarma sinn en engin eining er um það hvers konar umbætur séu gagnlegar.
Og við eigum engan Ted Kennedy.
Clinton kemur aftur!
3.6.2008 | 16:05
Ósigur Clinton hefur legið fyrir nokkuð lengi þó að einstaka fréttamiðlar hafi reynt að halda spennunni. Sumir spennunnar vegna aðrir af fákunnáttu. Barak Obama verður eflaust góður frambjóðandi. Hann og hans menn hafa hingað til rekið frábæra kosningabaráttu. Mér segir svo hugur að Clinton eigi eftri að koma aftur. Eftir 4 ár ef Obama tapar en eftir 8 ár ef hann vinnur.
Hún verður hins vegar tæplega varaforseti. Gæti orðið heilbrigðisráðherra og fer þá í öfuga átt við Guðlaug Þór.
![]() |
Clinton mun játa sig sigraða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ólukkulega að þessu staðið!
3.6.2008 | 13:52
Trúi Agli að nóg deyfilyf hafi verið til í landinu. Eru ekki dýralæknar með þetta í töskunum sínum? Dýrið hlýtur þar að auki að hafa verið hungrað og lokka hefði mátt það í gildru með selbitum. það virðist ósköp illa að þessu staðið. Við höfum svo sem áður verið ansi fljót að grípa til þess að fella dýr af litlu tilefni. Var ekki líka fullhátt farið í stjórnunarstiganum. Var ekki réttara að hafa samband við dómsmálaráðherra en umhverfisráðherra væri þetta ráðherramál á annað borð? Þetta var miklu fremur öryggismál en umhverfismál. Eftir að búið var að fella dýrið, ef Björn hefði úrskurðað svo, hefði mátt hafa samband við umhverfisráðherra um urðun á skepnunni.
þetta er auðvitað sagt meðvitað af ákveðnu ábyrgðarleysi. Þeir menn sem þarna komu nálægt eru auðvitað pottþéttir skynsemismenn sem vita hvað þeir eru að gera. En samt....?
![]() |
Hefði átt að loka veginum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vanhæfir forystumenn og mikli áhrif Styrmis!
3.6.2008 | 07:42
stjórnun. Hið dulda markmið að ná völdum fyrir sig og sína flokksmenn.
Meinið við stjórnmálaflokka er að innan þeirra ná yfirleitt framgangi
þeir sem sjá ekki samfélagið fyrir flokknum. Þeir sem lifa fyrir
flokkinn. Þeir sem vega menn og vigta eftir flokksskírteinum.
Ráðamönnum hættir þannig til þess að vera orðnir vanhæfir vegna
flokkshugsunar þegar þeir komast á toppinn. Það má segja þetta þannig
að það komist ekki aðrir á toppinn en þeir sem eru vanhæfir með þessum
hætti. Þess vegna er nauðsynlegt fyrir samfélög að takmarka völd
stjórnmálaflokka sem mest og auka gegnsæi og beint lýðræði.
Var þetta síðasta ekki lokatillaga Styrmis Gunnarssonar? Á heimili mínu
hefur Mogginn verið keyptur alla hans ritstjórnartíð og gott betur.
Styrmir hefur því sennilega haft meiri áhrif á mig en ömmurnar til
samans. Þau áhrif leiddu þó ekki til neinnar fylgispektar við
Sjálfstæðisflokkinn, en Styrmir verður seint sakaður um að halda ekki
fram hlut hans. Því miður leiddu áhrif Styrmis ekki til slíkrar
fylgispektar get ég sagt því maður situr hérna uppi valdalaus og
einangraður. Þó með útsýni yfir Atlantshafið. Það merkilega er að ég
minnist þess ekki að hafa hitt Styrmi Gunnarsson.Hef ég þó marga hitt
en of langt yrði að telja þá upp hér.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svipuganga reykvískra Sjálfstæðismanna!
2.6.2008 | 08:39
Harðnandi svipuganga Hönnu Birnu og Gísla Marteins og hinna sem Sjálfstæðisflokkurinn bauð fram í síðustu kosningum á sér auðvitað margar og flóknar skýringar. Ein er sú að þeir sem aðhyllast stefnumál þeirra kjósa Samfylkinguna eða Vinstri græna en ekki Sjálfstæðisflokkinn. Þeir sem vilja hjólreiðastíga út um borg og bý kjósa ekki Sjálfstæðisflokkinn. Það er vinstri manna háttur að hjóla. Þeir sem vilja ókeypis í Strætó kjósa ekki Sjálfstæðisflokkinn. Það er vinstri manna háttur að vilja ókeypis. Þeir sem vilja ódýra leikskóla kjósa þau ekki. Það er vinstri mann háttur að vilja ódýra og góða leikskóla. Þau vilja flugvöllinn burt. Það er líka vinstri í því. Eins og málin hafa þróast þá höfðar borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna að svo miklu leyti sem hann hefur stefnu til fólks í öðrum flokkum en sínum eigin og hættir um leið að höfða til síns gamalgróna fylgis. Hann hættir að höfða til fólks sem aðhyllist hörð gildi hægri stefnu, fólks sem elskar bíla og bensín, fólks sem vill ekki eyða fé skattborgaranna í strætó og leikskóla, fólks sem vill hafa hlutina eins og þeir hafa verið. Hægri menn hneigjast þeir til að vera sem vilja lága skatta og eftir því takmarkaða félagsþjónustu. Sjálfstæðismenn sem skynja þetta ekki hætta að höfða til eins eða neins.