Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Til hamingju Árborg og Hveragerði!
20.12.2008 | 13:50
Aftur til framtíðar -upp með kaupfélögin!
14.12.2008 | 16:26
![]() |
Hyggst stofna lágvöruverðsverslun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ný gömul ríkisstjórn hugsanleg?!
13.12.2008 | 19:38
![]() |
Hótaði formaður Samfylkingar stjórnarslitum? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þetta fólk á ekki pening!
12.12.2008 | 14:41
Margir foreldrar eiga vart til hnífs og skeiðar. Það er algengt þar sem fyrirvinna er ein, veikindi hafa verið, ef um öryrkja er að ræða eða atvinnuleysi. Margt af þessu fólki sem þessi lýsing gæti átt við er að borga af íbúð og bíl. það getur ekki minnkað við sig - nú selur enginn íbúð- það getur ekki selt bílinn- það selur enginn bíl. Margt fólk sem svona er ástatt um á engan pening. Það eru ekki allir sem geta farið til mömmu og pabba og kirkjan eða Rauði Krossinn sjá ekki alla og hafa takmörkuð úrræði.
þessi staða bitnar á börnunum en hún má ekki bitna á börnum. Við viljum ekki sjá samfélag þar sem sum börn komast ekki í íþróttir, þar sem sum börn fá ekki skólamáltíðir. Þess vegna verða sveitarfélög að halda þannig á málum að öll börn geti notið ofangrreinds og annarra sjálfsagðra og eðilegra hluta eftir einhverju því kerfi sem ekki kallar á stríðni, einelti eða sært stolt. þetta hlýtur að vera forgangsverkefni í því árferði sem nú er.
![]() |
Fólk á ekki fyrir mat |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Friðarbarátta- barátta gegn fátækt!
11.12.2008 | 01:54
Ekta maður Martti Ahtisaari. Ég horfði á athöfnina í kvöld í norska sjónvarpinu þegar hann tók á móti friðarverðlaunum Nóbels í Osló. Í ræðu sinni lagði hann áherslu á að berjast yrði gegn fátækt í heiminum. Það væri besta leiðin til að berjast fyrir friði.
Athisaari hefur áratuga feril sem diplómat, sendifulltrúi Sameinuðu Þjóðanna og sem forseti Finnlands. Hann leiddi samningasveit SÞ sem hjálpaði Namibíu til sjálfstæðis. Kom að lokafriðarsamningum í Kosovo og miðlaði málum í Indónesíu en þar höfðu stjórnvöld barist við Aceh skæruliða í þrjá áratugi.
Farsæll maður, látlaus, afalegur. Það er góð ára yfir Finnum í veröldinni um þessar mundir. Þeir Finnar sem ég hef kynnst eru allir sérstakir menn, ekta menn.
Réttlátt þjóðfélag -takk!
10.12.2008 | 10:19
Sé kenning John Rawls um réttlátt samfélag rétt rakin hjá mér gengur hún út á það að hugsaður hópur manna setjist niður og komi sér saman um skiptingu gæða í einu samfélagi. Rawls gengur út frá því að fólk sé eigingjarnt. Þess vegna á enginn að vita hvaða hlutverk hann leikur í hinni nýju skipan. Enginn veit ekki hvort hún verður starfsmaður á leikskóla, kennari, lögregla eða bara forstjóri lífeyrissjóðs.
Grunnkenning Rawls er að gæðum í samfélagi ætti að dreifa jafnt, gæðum eins og frelsi, tækifærum og tekjum nema hvað að hygla ætti þeim sem hefðu það hvað lakast. Viti enginn um sína komandi stöðu mun hópurinn ekki þora öðru en að hafa samfélagið sæmilega réttlátt þ.e. dreifa gæðum nokkuð jafnt.
Nú legg ég til að þverskurður úr íslensku samfélagi, stjórnmálamenn, auðjöfrar, fiskvinnslumenn, bændur, öskukarlar og kennarar, svona fjörtíu manna hópur verður lokaður inni og gert að setja niður frumreglur tekjuskiptingar og annars slíks í samfélaginu. Hlutkesti mun svo ráða því hvaða hlutverki hver og einn þeirra gegnir í hinu nýja samfélagi. Undir það skal þetta tilraunafólk ganga. Ég trúi því að eiginhagsmunir fólksins muni verða til þess að réttur hinna lökust settu verði ekki fyrir borð borinn.
Kreppur og stríð!
9.12.2008 | 17:50
Það versta við kreppur og stríð, snjókomu, hríð og ófærð er að þá kemst ekkert annað að. Það eitt talar fólk um. Allt annað lendir utan vitundarsviðs. Það bitnar á bókmenntum, listum, vísindum og íþróttum. Það alversta við kreppur, stríð og hríð er að menn og konur og börn þjást og einangrast. Það besta við kreppu, hríð og stríð er engu að síður það að þessi ósköp þjappa fólki saman þ.e. þeim sem eiga sameiginlegt hlutskipti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sama gamla heystæðan!
8.12.2008 | 13:27
Það skelfilegasta sem maður heyrði í Silfrinu í gær var frá Jóni Steinssyni að gamla eignakompaníið væri að vinna að því leynt og ljóst innan banka sem utan að eignast þetta allt saman aftur. Kaupa góssið á hálfvirði. Koma öllu í sama farveg. Og stjórnvöld spila með þó að Jón Steinsson færi ekki út í það. Ekki gefið færi á neinni kerfisbreytingu. Sama lýðræðið. Áfram keyrt yfir þrískiptingu valdsins. Sömu aðilar í öllum embættum. Engin uppstokkun, hvert sem litið er sama gamla heystæðan. Svo verður skeleggum álitsgjöfum smám saman ýtt til hliðar og öðrum notalegri hampað.
Íslendingar láta alltaf rúlla yfir sig. Nú er þeir hættir að mótmæla. Skýringar eru reyndar einfaldar. Þeir eiga nóg með að lifa af kuldann, veturinn, storminn, hafa alltaf átt. Svo eru þeir látnir vinna mikið.
Leggjum af átakahefð - gerumst alvöruþjóð!
5.12.2008 | 14:27
Gerum Ísland að alvöruþjóð. Tökum almennilega til. Förum að ráðleggingum Evrópuráðsins og Sameinuðu Þjóðanna í mannréttindamálum. Gerum bæina allt í kringum landið fallega. Gerum Reykajvík að fallegri borg. Leggjum reiðhjólastíg meðfram öllum hringveginum. Merkjum reiðleiðir um allt land. Bönnum auðmönnum að loka svæðum. Gerum auðlindina við landið aftur að almenningseign. Ökum um á sparneytnum bílum.Finnum sáttaleiðir í viðkvæmum deilumálum. Útrýmum átakahefð hvort heldur er á landsvísu eða á sveitastjórnarstigi. Leggjum úreltum stjórnmálamönnum.Verum óhrædd við að tjá okkur en gerum það kurteislega. Stöndum með þeim sem beittur er órétti. Gefum gaum að börnum okkar. Gefumst aldrei upp. Þetta og svo ótalmargt annað getum við gert.
Hvar er Agnes núna?
4.12.2008 | 13:50
Maður les að hinir og þessir valdahópar, sem sagðir eru hafa auðgast á því að selja lífsbjörgina frá fólkinu sumir hverjir og eru auðvitað á móti ESB sem myndi auka hér réttlæti og stemma stigu við spillingu og klíkuskap séu að bera víurnar í Morgunblaðið og allir vita að blöð á Íslandi eru notuð í pólitískum tilgangi helst flokkspólitískum.
Ég spyr: Af hverju getum við lesendur ekki eignast Morgunblaðið? Getur ekki einhver skipulagt það? Hvar er Agnes? Þegar öllu er á botninn hvolft erum það við sem höldum blaðinu uppi kaupendur og lesendur. Ef Mogginn kemst í hendurnar á þeim sem seldu kvóta úr byggðarlagi og hafa einhverja slíka slóð að verja þá er ég farinn og geri Færeyjartíðindi að mínu blaði.