Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Sameiginlegt skipbrot muniði!

Nú þarf að hjálpa fólki.  Hjálpa fólki að finna störf innanlands sem utan.  þetta er sameiginlegt skipbrot muniði. Ekki bara senda fólk heim til að stara á vegginn. Hringja í fólk, finna leiðir, finna verkefni.  Nú reynir á vini, kunningja, stjórnvöld. Ekki skilja fólk eitt eftir.  Minni á færslu mína hér um daginn.


mbl.is 200 missa vinnuna í Kaupþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig endar þetta?

það er ónotatilfinning í mér eftir að hafa horft á Björgólf Thor í Kompásþættinum. Þetta gæti endað með því að forystumenn ríkisstjórnar, Seðlabanka og Fjármálaeftirleits verði allir að taka pokann sinn til þess að þokkaleg sátt verði í samfélaginu. Það er að safnast upp eitthvað óþol gagnvart öllum þessum aðilum með réttu eða röngu og  upplýsingar Björgólfs Thor glæða eldinn.

Sögulegt dómgreindarleysi!

Sjö af hverjum tíu Íslendingum vilja aðild að ESB samkvæmt könnum Fréttablaðisins. Venjulegt fólk er orðið þreytt á þessu samfélagi þar sem menn vita aldrei hvað þeir skulda mikið á morgun og geta ekki gert neinar áætlanir af viti. Fólk er ekki fífl og horfir öfundaraugum til samfélaga Evrópu þar sem miklu meiri stöðugleiki ríkir.  það er sögulegt dómgreindarleysi forystufólks Vinstri Grænna að berjast gegn aðild.  Bandalagið er að sönnu markaðsbandalag en hefur ásamt Evrópuráðinu haft forystu um löggjöf til  verndar rétti launafólks og neytenda og hefur gert mannréttindaákvæði Evrópuráðsins og Sameinuðu Þjóðanna að sínum.

Sorgarsagan með Framsókn heldur áfram!

Sjálfstæðisfokkurinn hangir inni á því að þrátt fyrir allt er menntaður
hagfræðingur við stýrið.  Hefðum við á tilfinningunni að hann
stæði einn við stýrið stæði flokkurinn enn betur.  Hvar er annars
Þorgerður Katrín?  Helsta tromp flokksins er hætt að sjást. 
Sorgarsagan með Framsókn heldur áfram. Hvernig má annað vera þegar mest
áberandi þingmaður flokksins berst með hnúum og hnefum í skjóli
formannsins gegn því að Framsóknarflokkurinn verði framfarasinnaður
flokkur sem vilji sjá Ísland í samstafi sjálfstæðra þjóða í Evrópu
m.a. dreifbýli og landbúnaði til hagsbóta.
mbl.is Minnihluti styður stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Okur á enska boltanum!

Það er ættarfylgja að halda með þessari peningamaskínu en ekki öðrum.  Við erum stórliðið sem getur aldrei neitt nema í framtíðarplönum. Þannig gat ég skrifað með mikilli vissu í sumar:

,,Enn höldum við Spursarar áfram að hlaða að okkur leikmönnum.  Sumrin eru okkar uppáhaldstími þá kaupum við hvern stjörnuleikmanninn á fætur öðrum. Svo kemur veturinn.  Eftir hinn stórkostlegu innkaup sumarsins kemur vetur vonbrigðanna."

Leikmenn jafnt sem þjálfarar verða meðalskussar við það eitt að koma til okkar.  Gengi félagsins er alltaf afleitt.  Síðast vorum við reyndar með ágætan Hollending sem leit út fyrir að vera vörubílstjóri og var rekinn fyrir vikið. Sá næsti skv. Sky verður Harry Redknapp þjálfari Portsmouth.  Hann mun halda okkur uppi. 12. sætið verður okkar í vor.

Annars horfði ég ekki á þetta. Stöð2 sá fyrir því þegar hún bauð brjálæðislega mikið í enska boltann svo að menn þurfa að borga þetta 8-9 þúsund á mánuði fyrir að hafa aðgang að heimsknattspyrnunni.  það gera ekki óbilaðir menn sem vilja horfa á einn til tvo leiki á mánuði.  Við neyðumst til að liggja yfir drottningarviðtölum í Mogganum í staðinn.


mbl.is Ramos rekinn frá Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biskupinn gæti hafa spurt!

Biskupinn minnir á það hlutskipti miljóna barna um allan heim að eiga ekki til hnífs og skeiðar og bæta má því við að milljónir barna deyja fyrir fimm ára aldur úr læknanlegum sjúkdómum. Það hlýtur því að vera óhætt að spyrja: Hví hefur þeim peningum sem nú er varið til þess að aðstoða hið auðuga Ísland ekki verið varið til þess að hjálpa bláfátækum ríkjum í heiminum á legg efnahagslega t.d. með því að byggja upp framleiðslugreinar, skóla og heilsugæslustöðvar.  Peningarnir sem renna til Íslands eru auðvitað smápeningar en frá sjóðnum streyma margfaldar þær upphæðir til stærri ríkja.  Eru þessir peningar kannski ekki til - er þetta ein rúlletan enn eða er fólk samviskulaust í skjóli ríkja sinna og bandalaga og stofnana þeirra- þar á meðal við sem vorum eftirbátar flestra annarra en Bandaríkjamanna á auðsældarárum okkar í aðstoð við aðra.
mbl.is Aldrei verið auðugri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvaðrið um samstöðu!

Að missa vinnuna og verða atvinnulaus er það allra versta fyrir utan það að missa barn eða maka. Það er skelfilegt áfall.  Þér líður eins og þú sért einskis virði. Þú hefur stórkostlegar áhyggjur af framtíð þinni. Þér finnst þú hafa brugðist sem faðir, móðir, maki, sonur, dóttir.  Sértu þunglynd(ur) að eðlisfari er þetta lífshættuleg staða. Þú reynir að halda andlitinu út á við en heima er grátið, starað, rifist eða tekið úr viskíflösku.  Í atvinnuleysysskráningunni eru biðraðir svo allir geti horft á þig vel og lengi. Stéttarfélagið býður upp á fundi með öðrum ,,lúserum”. Farir þú þangað, sem er ólíklegt, líður þér ennþá ver á eftir.

Fyrst trúirðu því jafnvel að þetta sé tækifæri.  Það komi símtal eða tölvupóstur.  En það gerist ekki.  Veruleikinn stðfestir það að þú ert einskisnýt manneskja og vinalaus. Á þessu stigi byrja sjálfsvísgshugsanir að sækja að.

Ef vinur þinn eða kunningi er atvinnulaus skaltu gera þér erindi við hann, upplogið ef ekki vill betur.  Ekki hringja bara til að spyrja hvernig honum líði.  Hann ber sig vel og bandar frá sér einhverri aumingjasamúð. Athugaðu heldur hvort það vantar ekki manneskju til að fara yfir bókhald félagsins ykkar, hvort það vantar ekki einhvern til að stjórna briddskvöldum, hvort hún geti ekki fundið fyrir ykkur félagana ódýra ferð á leik, komið á frönskunámskeið sem stéttarfélagið greiðir, kannski vantar kosningastjóra, manneskju til að skipuleggja fund, dragið hinn atvinnlausa út til einhvers konar þátttöku.

Hættan er sú að þeir sem stjórna samfélögum hafa sjaldnast upplifað atvinnuleysi.  Þetta eru yfirleitt súkkulaðidrengir eða pipamyntukonur sem alltaf hafa verið tekin fram yfir aðra.  Annað hvort vegna þess að fólkið er sjarmerandi eða það hefur stigið flokkspólitíska dansinn af óhuggulegri skynsemi. Ef stjórnendur hefðu sára reynslu í bakpokanum að þessu leytinu til myndi það horfa til atvinnulausra þegar vantaði fólk í ráð og nefndir, vinnuhópa, starfshópa.  Það þarf nefnilega svo ofboðslega lítið klapp á kollinn eða örvun til að bjarga heilu mannslífi, til þess að endurvekja mannsæmandi feril, til þess að tryggja hamingju barns móður eða föður. Og hinn atvinnulausi er ekkert síður hæfileikaríkur en sá sem hangir á vinnu sinni.

Það er þvaðrað um samstöðu og að leggja hvort öðru lið og að standa saman. Þetta syngja þeir sem trjóna efst á haugnum. Slíkt tal er yfirleitt innantómt kjaftæði og hljómar sem háð í huga hins afskipta, því að hann veit að orðum fylgja sjaldnast athafnir sem gagnast honum.


Skynsamir San Marínó menn!

Við værum menn að meiri ef við fengjum óháða erlenda rannsóknaraðila til að fara yfir málin.  Í San Marino, sem er sjálfstætt ríki en fámennt er það stjórnarskrárbundið að í Hæstarétti landsins sitji einvörðungu erlendir menn.  Þjóðin er of fámenn, segja þeir, til þess að óvilhöll málsmeðferð sé tryggð.  Að sumu leyti á það sama við um okkur þó við séum 300 þúsund en ekki 40-50 þúsund eins og þeir.   það er eiginlega sjálfgefið þegar áfall verður sem snertir alla helstu valdapólana að við förum slíka leið.
mbl.is Vill erlenda sérfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú fyrst munum við gleyma sem aldrei fyrr!

Þá kemur mér í hug að í þeim þrengingum sem framundan eru megum við ekki gleyma gamla fólkinu. Víða út um landsbyggðina eru þau mál í sæmilegu horfi en á Reykjavíkursvæðinu er fólk víða í öngum sínum út af öldruðu fólki sem ekki kemst inn á hjúkrunarheimili. Puttarerglan er sú að ef höfuðið er í lagi þá kemst þú ekki inn á hjúkrunarheimili þó að heilsan sé búin. Útkoman er sú að mjög víða eru aldraðir einstaklingar einir heima þó þeir séu algerlega ófærir um að sjá um sjálfa sig. Þeir berjast við kvíða og hjálparleysi á meðan þeir gætu átt góða tíma á hjúkrunarheimili.

Ástæður eru þær að allt of lítið hefur verið byggt af hjúkrunarheimilum á Stór –Reykjavíkursvæðinu.  Ofnaí kaupið taka stofnanir eins og Hrafnista ekki við nýju fólki því að þær eru að breyta tveggja manna herbergjum í eins manna og þess vegna munu engir komast inn næstu tvö til þrjú árin í stað þeirra sem deyja. Yfirfærslan í tveggja manna herbergi er ekki að kröfu gamla fóksins heldur sprækra flottræfla á sextugsaldri.

Á þessum síðustu og verstu tímum (loksins gat maðru notað þetta orðtak með réttu) munum við örugglega gleyma gamla fólkinu eins og öðrum þeim sem ekki hafa rödd. 

Þrátt fyrir mikil uppþot fyrir einum eða tveimur árum í þessum málum hefur ekkert gerst. Og enginn talar máli gamla fólksins. Skáldin eru í miðaldrakrísu og kirkjan er ,,reyrð í fjötra vantrúar”. Hvar er rödd hins raddlausa? Hvar er rómur hins rómlausa. Hverjir gæta að réttlætinu í samfélaginu?  Hverjir gæta hags þeirra sem virkilega eru orðnir aldraðir?


Fordómar í Bretlandi og fordómar á Íslandi!

Þetta er ólöglegt samkvæmt breskum lögum og samkvæmt lögum allra ríkja í Evrópu enda lýsir þetta hreinum og beinum racisma þ.e. fordómar eru hafðir í frammi gagnvart fólki á grundvelli þjóðernis þess. Eðlileg viðbrögð við svona löguðu er að kæra til lögreglu.

Hér á landi hafa Litháar goldið tiltekinna landa sinna, glæpamanna. Íslendingar hafa neitað að leigja Litháum bara af því að þeir eru Litháar.  Saklaust fólk hefur óumdeilanlega orðið fyrir barðinu á fordómum okkar hér á Íslandi.

Lærum af þessu. Og það er út af þessu að  Evrópuráðið (ECRI) leggur áherslu á það að þjóðerni þeirra sem komast í kast við lögin sé ekki tíundað sé það ekki nauðsynlegt vegna samhengis.  Evrópuráðið hefur margítrekað þessa ráðleggingu til okkar.  Fáir fjölmiðlar, einna helst þó Morgunblaðið og fréttastofa Sjónvarps þegar Elín Hirst leiddi hana, hafa virt þessa sjálfsögðu reglu. Sjálfsögðu já, því að þegar þjóðerni er tíundað  þá elur það á fordómum í garð allra frá viðkomandi landi. Staðalímynd verður til. Það erum við Íslendingar að upplifa nú.


mbl.is Óvelkomnar í gæludýraverslun í Glasgow
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband